Profile
Blog
Photos
Videos
Jóóóólajóóól!
Próflok í dag.. heimþráin fór útum gluggann og ég hentist á æfingu til að fagna þessum langþráða degi .. gerði ekki nema 140 hnébeygjur .. og lærin eru ekki ánægð .. Svo dreif ég mig heim og ég o Sidsel fórum á ströndina.. reyna að ná upp smá tani ..
á morgun er svo Money-spending-day! Klára gjafir og leggja lokahönd á að tæma kreditkortið (nei mamma ég er að djóka)
Vikan var hrikaleg.. bara læra læralæarlæralræalræalraæ.. svo fór maður í skólann .. tók próf.. fór á æfingu .. heim í náttföt og læra meira.. veit ekki afhverju maður leggur þetta á sig ár eftir ár..
En hér er gott að slaka vel á í sólinni eftirá;)
Horfðum á mynd hér um síðustu helgi - Pitch perfect.. svo fáranlega fyndin og skemmtileg! Berglind/Sólveig/Jóhanna - við förum á hana um leið og hún kemur í bíó!! Hefði ekki trúað því að svona mynd mundi höfða til min en eg elska hana! Elska segi ég
Sidsel er búin að horfa á hana 7x.. ogfór á hana 2x í bíó .. náði meira að segja 3 skiptum á 24 tímum..
Er á fullu að byrja að kveðja fólk hérna og það er hræðilega erfitt.. kvaddi uppáhalds þjálfarann minn í fyrradag.. hún verður á Mainlandinu yfir jólin .. svo er síðasta æfingin mín á morgun og 2 sem ég hef æft mikið með ætla að koma og æfa með mér :) verður hrikalega erfitt að kveðja alla þarna en samt hlakkar líkaminn til að fá smá hlé og ég ætla að éta allt sem ég sé ;) hahaha byrjum í kvöld með pantaðri pizzu :)
Annars er kvöldið í kvöld bara verkefnakvöld.. klára þetta sem eftir er.. ein lokaritgerð upp á 1400 orð og ein skýrsla.. fer svo upp í skóla á morgun og skila þessu inn .. og þar með er námi mínu á Hawaii bara lokið .. finito .. s***
Stelpurnar hans Axels lenda á Íslandi á morgun (föstudag) og þau ætla að reyna að hringja í mig á Skype á laugardag :) hlakka nú svoldið til að sjá þær aftur..
Held ég noti síðustu dagana bara í afslöppun og að hitta alla sem ég ætla að kveðja.. erum að skipuleggja deit um allan bæ með öllu þessu góða fólki sem maður hefur hitt.. ég er alveg hrikalega léleg í svona kveðjustundum .. segi bara bæ og hleyp út.. not my thing..
Hér er að verða jólalegra með hverjum deginum og við fundum jólaseríur inn í skáp og ætlum að hengja þær upp .. kannski minnkar þá myrkfælnin .. ferlegt að sofa svona einn í stofunni ..
Planið er að fara í Sunset dinner cruise á sunnudagskvöld.. held við förum bara 2, ég og Sidsel.. verður vonandi geggjað! Sigla með kokteil í annarri og sjá sólarlagið ..
Byrjuð að krota upp markmið 2013... elska nýtt ár.. ný tækifæri.. nýjir draumar!
En núna ætla ég að klára þessa ritgerð og byrja að njóta þess að vera hér og EKKI læra..
hef aldrei lært eins mikið neina önn eins og hér.. en þetta var ofsa gaman:)
og svei mér þá ef ég náði ekki bara öllu ;)
Ykkar
Guðný
- comments
Berglind þú ert dugnaðarforkur! njóttu sólarinnar! þú kemur heim á dimmasta degi ársins og sérð hana varla aftur fyrr en í vor ;)