Profile
Blog
Photos
Videos
10. september- ég er að segja ykkur það .. tíminn er byrjaður að líða.. ! Fyrstu dagana hér var tíminn án gríns stopp.. alltaf þegar ég sá fólk með ferðatöskur eða strætó merktur airport brast ég í grát og vildi fara heim.. that time has passed gott fólk! Og komin tími til J
Skólinn rúllar á fullu- ákvað samt í gær að eðlisefnafræði væri bara EKKI málið hér í landi endalausa sólskinsins svo ég sagði mig úr því ógeði áðan og skráði mig í „Methods of Coaching" sem er svona online-kúrs í þjálfunarfræðum ... J ferlega spennt! Og þá þarf ég líka að vera minna í skólanum sem er alltaf jákvættJ
Svo bara líða dagarnir í einhverja vitleysu .. hef núna nokkrum sinnum farið út að hlaupa.. langoftast hef ég villst út í buskann en samt komist heim einhvern veginn.. þetta er nú ekki svo stórt svæði hérna. Ferlega erfitt að hlaupa.. hef ekki komist meira en 5k en þetta er að koma held ég, hitinn hlýtur að venjast
Fórum í enn eitt Hike-ið um helgina (sunnudagar eru hike-dagar). Við vorum 11 sem lögðum af stað í þessa ferð - allir þýskarar nema ég og ein bresk stelpa, ferlega fín. Ég þvingaði þjóðverjana í að tala ensku og þau eru öll að koma til, biðjast í sífellu afsökunar og blablabla.. ég og 3 þjóðverjar duttum í spjall og þau labba sko á ljóshraða og ég var með tárin bara af áreynslu en þóttist vera mega töff og hélt í við þau og lærin eru ansi aum í dag.. en upp fór ég og myndin við þessa færslu er einmitt frá toppnum á þessu fjalli J ótrúlegt útsýni - sá sjóinn báðum megin við mig (eyjan svo lítil sko) . Þýsku strákarnir vildu ekki fara sömu leið niður (kölluðu það ævintýragirni) og heimtuðu að velja nýja leið. Sem endaði í að við villtumst þvílíkt , maður hékk hálfur fram af hengiflugum (í minningunni) og fannst dauðinn vera nærri í hverju skrefi.. Kannski aðeins ýkt en við vorum samt orðin ansi smeyk svona í alvöru.. Svo fundum við leið niður en svo villtumst við aftur.. klóruðum okkur í gegnum lífsins þurrasta gróður og komumst niður að lokum , allir með blóðuga og ótklóraða fætur.. en kát að vera lifandi !
Næstu helgi( afmælisdagurinn maður!) er planið að fara Haiku stairs eða Stairway to heaven. Það eru 4þúsund tröppur uppá eitthvað fjall hérna. Herinn lét gera þetta í ww2(?) til að hafa aðgang að einhverjum símastaur þarna eða eitthvað. Það sem gerir þessa göngu ennþá meira spennandi er að það er ólöglegt í raun að labba hana. Það er vörður sem mætir alla morgna kl 07 og bannar manni að fara.. EN við ætlum að leigja bíl (held ég) og koma okkur þangað kl 05! Daddara! Labba þetta í fyrstu morgunskímunni, sjá sólarupprásina og allan pakkann! Hver vill ekki vakna kl 04 á afmælinu sínu vúhú! J
Ég er ferlega spennt (ekki lærin mín samt) að ganga þetta !
Annars er það bara alvara lífsins hérna alla daga.. mestur tími fer í að læra (eða þykjast læra með bókina í kjöltunni) og plana næstu máltíð
Ég er búin að vera svöng svona 75% af tímanum hérna.. sem er mjög spes.. en ég er alveg að læra að borða nóg og hafa með mér mat J maður gleymir sér bara stundum í stressi og gleði
Ég er komin upp á lagið með þessa strætómenningu og farin að reyna að njóta þess að hanga í strætó margar margar margar margar mínútur á hverjum degi ..
Þeir sem vilja senda mér íslenskt nammi mega það .. J
Þeir sem vilja fá usa númerið mega það líka - sendið mér bara skiló á face
Annars bara heyrumst og sjáumst
Guðný
- comments
Sólveig Úlala þessa hljómar pínu crazy þessar tröppur, þú verður að instagramma vel þessa göngu ;)
Berglind aka aðstoðarmamma ;) Viltu samt fara varlega! þú verður að komast heim á endanum allavega;) ég hlakka til að sjá fleiri myndir :*
Classic Mia LOh, she has a lot of new stuff. I saw her last weekend with my patenrr. You're going to love it.Are you planning to go to LV? If so, by all means get tickets before you try to get in.