Profile
Blog
Photos
Videos
First Friday í dag! Það er alltaf svona mega partý fyrsta föstudag mánaðar hjá háskólastúdentum .. við létum okkar ekki eftir liggja og mættum á ókeypis bíómynd- The Amazing Spiderman- hjá skólanum og fengum frítt popp og djús.. komnar heim á slaginu 21 til að læra.. rennur ekki beint bjór í þessum æðum
Dagurinn í dag tók á .. ég þarf að mæta í skólann í einn tíma á föstudögum, hann er 50mínútur sá tími (stærðfræði meira að segja). Strætóferðin í dag tók klukkutíma, svo var korters bið eftir shuttlebus - sú ferð tekur svo annað korter. 90mín ferð fyrir 50min tíma.. heimferðin.. eeeeeeeendalaust (án gríns) af fólki sem getur ekki gengið, er í hjólastól, er með hækjur, er 114 ára og á bara ekki að vera í strætó, andlega veikt fólk sem æpir og gargar á allt og ekkert, heimilislaus kona sem gengur um allt og skýtur fólk með puttunum.. Þegar ég loksins kom heim át ég RisaDraum sem mamma sendi mér.. og átti ég það skilið eller hvad sko!
ekki nema 2 próf í næstu viku og ein skýrsluskil, ein ritgerð og eitt umræðu innlegg.. plús að skila heimadæmum í stærðfræði og lífefnafræði.. þetta er í hverri viku og maður stendur á öndinni.. ég er samt að gera mér NoteCards, sem ég ætla með á ströndina.. þarf nauðsynlega að fá D-vítamín.. right?
Hitti eina þýska í strætó í dag sem ég kynntist hérna fyrstu vikuna.. hún er bara í skólanum á laugardögum... frá 11-17... OG SVO BARA 6 DAGA HELGI.. er þetta í alvöru háskólanám ? bara viðurkennt og alles eða? ég þarf að fara að læra eitthvað annað..
Annars er allt mjög mikið same old hérna.. svakalega gaman :) - svakalega heitt - og nóg að gera ! ég er komin með smáá (bara smá samt) ógeð af að vera stanslaust heitt.. það er mjög ofmetið að vera heitt.. litið hægt að gera í því nema vera bara sveittur.. en auðvitað er geggjað að geta lagst í sólbað þegar manni dettur það í hug :) svo ég skal ekki kvarta meir!
Ég er að prófa mig áfram í deadlift í crossfit, deadliftaði minni eigin þyngd (verður ekki nefnd hér) 9sinnum.. og djöfull hlýt ég að vera ógeðslega þung.. mér tókst amk að slasa mig eitthvað í öxlinni (en ekki hvað).. við mikil fagnaðarlæti Axels heima.. hann bókstaflega tók mér fagnandi á skype.. en ég hvíldi vel í dag og ég held hún sé betri.. ég ætla amk að halda því fram
Tók stórt skref í dag - fyrsti hamborgarinn síðan ég kom til USA! Fórum á svona ekta Diner, ein fékk sér Milkshake, ég fékk mér Strawberry Lemonade, og svo var bara burger á alla.. og shiiiit hvað hann var góður.. ! (gæti spilað inn í að ég er búin að éta egg og frosið grænmeti ansi lengi). bara algjör snilld..
Annars erum við loksins búnar að gera lista yfir það sem við viljum gera áður en við förum heim .. og hann er svoldið langur.. og svoldið erfitt að finna tíma.. skólinn svo fyrir mér í lífinu.. en við ætlum að reyna að troða þessu inn í dagskránna.. maður kemur svo sjaldan hingað ;)
Ég tek 3 jólapróf (final exams), eitt er 10unda, hin 2 eru 13.des.. svo ég er bara i prófi frá 9-5... verður sjúkt partý.. en þá hef ég líka 6 daga áður en ég legg af stað heim til að vinna upp tan.. og verða mega tönuð (sólveig mátt vera reið núna) :) Þeir sem vilja koma og tana í des með mér eru velkomnir!
Ekki lengra í bili
Ykkar Guðný
- comments
Axel Heimir Tek þér alltaf fagnandi snúllan mín ;-)