Profile
Blog
Photos
Videos
Heitt
þá meina ég alveg of heitt sko - látið ekki plata ykkur þó það sé "bara" 29 stiga hiti.. því núna er ENGIN VINDKÆLING.. vindarnir blása ekki fallega um hárið á mér þegar ég labba út í strætó.. það er sjóðandi heitur sunnanblær sem gerir ekki rassgat gagn! Ég án gríns NÆSTUM því hlakka til að komast í smá kulda.. en bara næstum því .. annars labbar maður bara inn í næstu búð (kannski bara victoria secret) og kælir sig niður þar :)
Ég tók stærðfræðipróf í dag.. sem er mjög hressandi .. áður en ég tók samt prófið í stærðfræði þá var skyndipróf í lífrænni efnafræði sem ég næstum skilaði auðu .. en það má alveg því þetta gildir bara til upphækkunar.. og maðurinn vill að ég læri pKa utanað fyrir allar sýrur.. ég skrifaði bara einfaldlega: I dont know! á prófið.. sýna honum hver ræður sko
Ein sem býr hérna er að deita gaur .. (hún er sko í sérherberginu núna) og ég þarf alltaf að vakna fyrst á þessu heimili og var að troða í mig jógúrt einn morguninn þegar þau koma fram.. - halló var það vandræðalegt.. mér brá geðveikt, því ég hafði farið að sofa kl 22:05 og vissi ekki af næturgestinum... og þau voru eins og kleinur.. og þá varð ég eins og kleina.. en ég týndi kúlið mitt bara uppaf gólfinu og fór í skólann.
Ég þrái fisk .. það er rugl - stefnan sett á sushi um helgina til að mæta þessari fiskiþörf..
Annars er ekki mikið að frétta svona í alvöru .. rútínan er bara negld alla daga frá mán-fös.. ræs 06:15, skóli, crossfit strætó að eilífu og svo læra fram á kvöld. EN ég er buin að vera dugleg svo ég er að spá að detta í beachtime kannski á morgun úje! eða versla mér eitthvað fallegt..
Keypti mér mína fyrstu alvöru flip-flops - í FlipFlopShop .. ótrúlega fallegir en ekki mjög þægilegir.. er að reyna að venjast þeim .. en ég neita að vera í flipflops í skólanum.. alltof kalt þar inni til að vera á tánum.. svo er líka ekki fallegt að vera stanslaust á tánum þó allir hérna séu alltaf þannig
Ég gerði heiðarlega tilraun til að kaupa eggjahvítur í gær: "do you have any eggwhites?, like just the whites" .. og gaurinn rétti mér bakka af brúnum eggjum .. já nevermind bara.. heil egg eru flott
Það er súper vandræðalegt að taka strætó heim úr crossfit - en það er svo heitt alltaf að ég nenni ekki í sturtu þar, mundi bara vera aftur sveitt þegar ég loksins kæmist heim með allar töskurnar og draslið.. svo stundum er ég í strætó .. hann er sko troðinn.. maður snertir svona 10manneskjur - og það leka svitadropar niður stuttbuxurnar, og niður handleggina og maður er geðveikt skítugur.. ég vorkenni alveg fólkinu sem þarf að vera nálægt mér..
á morgun fáum við næturgest í 10 daga, ein dönsk að koma í heimsókn :) held það verði gaman :)
En ég hef í alvöru ekki mikið að segja meir.. er bara að taka einn dag í einu, gera mitt besta í skólanum, reyna að standa mig í crossfit (gerði 220 double unders í dag.. ekki mannlegt) og reyna að verða ekki hungurmorða.. so far so good :)
Mahalo for reading this
Guðný
- comments
axel tamzok GREYIÐGUÐNÝ Ég labbaði út í skóla áðan og leit út fyrir að hafa migið á mig.
Jakkarpun Fint! Fast vi har dem he4r i ve5r stadstre4dge5rd ockse5, med tuonnlbaner och motorve4gar som susar ff6rbi och ingen skog i sikte. De5 blir det inte lika charmigt, bara fel pe5 ne5got se4tt. Helt anpassade till stadslivet och ore4dda ff6r me4nniskor. Tittar bara pe5 mig ne4r jag rusar ut och hojtar ff6r att re4dda mina rabatter. Re5djuren hf6r ju hemma pe5 landet, se5de4r i morgondiset som pe5 dina bilder. Kram och ha en fin dag! Pernilla