Profile
Blog
Photos
Videos
Yahoo! - lenti hér í dag í rúmlega 30 stiga hita... ólíft get ég sagt ykkur með sanni!
Ferðalagið hefur verið mikið brölt en gengið samt ótrúlega vel bara.. mæli ekki með svona flugum hinum megin á hnöttinn
Fyrra flugið : lenti í miðjusæti! 8 tímar af eintómri hamingju... lenti á milli sextugrar konu frá svíþjóð sem er bóndi og vel þykkum ameríkana sem talaði bara um leiðinlega hluti og vissi ekki að ísland vær i efnahagskreppu... en þetta gekk nu bara
Gisti í seattle á litlu hóteli við flugvöllinn.. allir boðnir og búnir að hjálpa á flugvellinum og ég skilaði mér á hótelið að lokum.. svaf ekki mikið reyndar.. svoldið Sleepless in Seattle fílingur..
Seinna flug.. STÓR FLUGVEL... ekki einkaTV eins og hjá icelandair.. kláraði bókina mína þegar 90 min voru bunar ... útvarpið virkaði ekki - nema ein stöð um sögu hawaii.. lét það vera... svo ég glápti út í loftið og gerði krossgátur í 4.5 klukkutíma.. Lendingin var hræðileg því það er svoldið hvasst í dag en lifandi komst ég á þessa 3ju stærstu eyju hawaii eyja:)
Beið í ´rúma 3 tíma eftir herberginu minu, þvældist um með allan handfarangurinn á bakinu og hentist upp í rúm þegar eg loksins fékk herbergið.. En það er amk mjög fínt :)
Tilfinningarússibani í allan dag.. skrýtið að ferðast einn og hafa engann nema sjálfan sig.. þroskandi .. kannski .. herðir mann allaveganna:)
Næstu 6 dagar verða hér á hótelinu.. ætla að reyna að hitta stelpurnar sem ég fer svo að leigja með á morgun :)
Fyrsti kvöldmatur alein: núðlur í örbylgjunni ... ! :)
Ótrúleg vanlíðan sem fylgir svona Jet-lag og svefnleysi svo það er bara kúrt yfir ´TV núna..
Búðin sem eg verslaði í er asísk eða eitthvað og ég ætlaði að kaupa mer nammi og eitthvað ... en neinei.. þeir borða bara allt með rækjubragði og eitthvað vird.. svo ég á gulrætur og banana hér fyrir morgunmat ;)
Eyjan er samt æði, fólkið er eiginlega allt asískt - eða asísk blanda og allir mjög almennilegir:) hlakka til að koma mér almennilega fyrir og láta mér líða vel.
Ég vil annars aldrei búa alla ævi í svona heitu landi .. það er alveg átök..
Kisskiss
Guðný aloha-girl
- comments
Axel Tamzok Ohh, 30 stiga hiti, greyið þú! :) Hafðu það mega gott !
Erla Sturl Elska jet-lag :) Öfunda þig ekkert smá af þessum hita. Ég fór út áðan í vindjakka og með húfu!
Olga og co Gangi þér vel Guðný, fyrsta nóttin á nýjum stað er alltaf erfiðust svo verður gaman eftir það :) Hlökkum til að sjá myndir frá Hawaii
Sólveig Aaaahhhh næs 30 stiga hiti! Hér er einmitt byrjað að kólna pínu svo ég öfunda þig mikið, bara vera fáklæddur með vatnsbrúsa þá er hitinn svo góður! ....Kannski þú getir keypt þér fortune cookies í staðin fyrir nammi.. allavega prufaði ég að googla hawaiian candy og þá kom mynd af poka með svoleiðis, það er örugglega miklu meira stuð en nammi :)
Vala Gott að heyra að þú er lent :) - gangi þér og hlakka til að fylgjast með þér á blogginu :)
Kenji lol. i was in there!before someone was laievng they took their picture at the register with a cashier and their ipad.i ended up getting the bigger swiss pastrami.was going get one steak plate but thought i'd try them out. i usually don't go for burgers, especially messy expensive ones.ate the whole thing which is rare, except for the portabello mushroom from carl jr which closed down in kahala.