Profile
Blog
Photos
Videos
Aloha dyggu lesendur (þessir 3 sem lesa þetta kannski;) )
Lítið að frétta héðan úr sólinni svossum.. eeendalaus sól og hiti bara alla daga:) sem er kannski ljótt að ræða núna þar sem brjálað veður gengur yfir aumingjans landið mitt
Vikan fór í 2 próf og endalaus skilaverkefni - en þar sem helgin var nokkuð þéttskipuð girti ég bara í brók og kláraði næstum allt fyrir helgi.. Ég mætti alla daga í Crossfit og gerði í fyrsta skiptið wall walks - sem er hræðileg æfing en samt svoldið skemmtileg og ég gerði mína fyrstu Rx æfingu!
Fyrir óvana þá þýðir það að nota standard þyngdir .. Ég valdi mér að gera Rx á Halloween æfingunni en hún var: 5x swing og 5x medicine ball clean, 31 UMFERÐ.. ég þurfti á öllum mínum viljastyrk að halda til að gefast ekki upp.. við fengum bara 30 min til að klára og ég náði því á sléttum 27mín.. en boyóboy .. fólk var mætt að hvetja mig (því ég æfi með svo yndislegu fólki) og þegar ég loksins kláraði þá snéri ég mér bara út í vegg og það féll meira að segja eitt tár .. svo uppgefin var ég.. og pínu stolt að hafa klárað...
Í dag var svo frábær dagur (og er enn) .. við 3 fræknu sem gerum allt saman hér í íbúðinni fórum á fætur 5:30 til að ná strætó og mæta í COLOR RUN.. (myndir á facebook).. Vorum 7 saman sem fórum og þetta er bara aaaaalveg geeeggggjaaað! Hlaupið er 5km en þetta er meira svona labb og skokk enda fólk á öllum aldri og mikið af börnum þarna.. Við fengum litaduft í poka og gátum kastað í hvort annað og svo var á 4 stöðum á leiðinni verið að hella yfir mann litum og eintómri hamingju! Svo safnaðist fólk saman í lokin og kastaði litum og dansaði..
Svo kom ég heim og skype-aði uppáhalds drenginn (já það er Axel) og á meðan ég var að skype-a hann kom pakki .. frá honum! Algjör snilld - fullt fullt af íslensku nammi -mest þristar! Svo við tróðum í okkur hérna nammi eftir hlaupið. Stundum að skora fullt af stigum Axel!
Í kvöld er svo planið að glápa á mynd og borða jógúrt ís .. eftir lærdóminn auðvitað
Á morgun förum við til Kailua - ætlum að taka vindsængur og liggja bara og tana og slaka vel á! Erum búnar að taka hrikalega lærdómstörn í október (miðannapróf) og eigum alveg inni að slaka smá á... Svo kemur aftur törn núna um miðjan/lok nóv og svo eru lokaprófin í des.. hér er kennt til 7.des og próf byrja svo 10.des.. ég er svoooo heppin að fá að taka 2 erfiðustu prófin mín á sama degi og er því í prófi næstum bara frá 9-5.. þann 13.des
En mikið er ég fegin að Halloween er búið og það er svona að fikrast í smá jólafíling hérna.. samt ekkert komið af viti ennþá.. en starbucks þó farið að auglýsa jólabolla ... Nóvember verður ofsa skemmtilegur og við ætlum að reyna að halda áfram að gera hluti á listanum okkar góða, af nógu að taka hérna og vonandi truflar skólinn ekki of mikið
Ég sakna ykkar ferlega þarna heima en passa mig að njóta lífsins í botn.. síðustu vikurnar eiga eftir að fljúga frá manni og jólin keyra mann í jörðina áður en maður veit af..!
Peace out
Guðný
- comments
Sólveig Mikið var gott að eiga þessi 4 blogg inni, nægur tími hér til að drepa! Gleymdir að sakna mín sem er ekki heima, sakna þín líka ;) Hér er ekkert starbucks svo enginn cinnamon latte fyrir mig, þú drekkur einn fyrir mig líka :) Svo getum við fengið okkur piparkökulatte þegar þú kemur á klakann!!