Profile
Blog
Photos
Videos
Ennþá hér..
Það er bara í raun ekkert merkilegt að gerast svo ég veit ekki alveg hvað ég á að blogga um .. Ég er bara í skólanum og svo á æfingu og svo heima að læra.. en í dag ER BEACH DAY.. og það er auðvitað skýjað..
En skýjin eru eithvað að gefa eftir.. svo ég ætla að gera minn part af þrifum og reka svo mannskapinn að tana.. er óeðlilega hvít miðað við sumar píurnar í skólanum.. Reyndar hefur maður heyrt að fólk sé í mjög miserfiðu námi.. ein var til dæmis í tíma þar sem allir sátu í hring og köstuðu höfrungs-bangsa á milli sín og þegar maður fékk bangsann átti maður að kynna sig og segja eitthvað .. hvað maður hefði áhuga á eða whatever.. já eg er amk ekki í neinu helvítis bangsakasti í mínum tímum ...
Skrýtið fólk heldur áfram að pína mig og tala við mig, lenti á einum sem blaðraði um maraþoni sem hann hljóp á tæpum 7klst.. og sagði að það væri sko ótrúlega góður tími (ætli ég líti út fyrir að vera mega heimsk þegar ég er í strætó?)... en ég sagði bara já vá hvað þú ert klár blablabla
Splæsti mér í jarðarber (sjá mynd í haus) - og er núna öfunduð mjög af herbergisfélögunum, enda munaðarvara...eins og allur matur eiginlega hérna..
Er með vel rifna lófa og marbletti eftir crossfit.. líkaminn vonar innst inni að ég þrói með mér áhuga á yoga eða skák...
Annars kemur mér á óvart hvað ég fíla crossfit .. hérna erum við reyndar mjög fá í hóp og mikil tækni kennd í hverjum tíma.. ekki lögð áhersla á að vera fyrstur og vinna og vera með sýndarmennsku eins og svo ótrúlega margir heima.. og fólk er mjög vingjarnlegt og hjálpsamt.. ef maður er með einhverjum einu sinni í tíma þá er manni bara heilsað eins og gömlum vin næst þegar maður mætir! Hrikalega nice:) stemmarinn minnir svoldið á bjöllutímana heima - sem er ofsalega gott:)
Við erum að reyna að setja saman lista um allt sem við viljum gera áður en við förum heim ... svo maður nái nú að covera sem flest af þessu túristadæmi .. geri ekkert endilega ráð fyrir að koma hingað oft um ævina svo maður verður að nýta tímann vel :)
Á morgun er svo heimsfrumsýningin á 3ju seríu af Hawaii 5-0 , sem eru lögguþættir held ég., og það er svaka dæmi niðra strönd .. ALLIR sem eru eitthvað verða sko að mæta og ... já ég verð vist þar.. leikararnir mæta og allt .. ég er ekkert mjög spennt en verður gaman að gera eitthvað annað en að læra :D
Fyrsta stóra stæ prófið er svo á mánudag - 20% próf takk fyrir.. en ég má sko vera með eitt handskrifað blað með mér OG fékk leyfi til að skrifa á íslensku .. og djöfull ætla ég að massa þetta blað með íslensku svindli;) eða svona allt að því .:D
En þrifin og ströndin kalla!
Guðný
- comments