Profile
Blog
Photos
Videos
Ræða síðastliðna helgi ?
Veit það svei mér þá ekki
Hófst með Haunted Lagoon - siglingu, sá auglýsingu um þetta i strætó á föstudeginum - YOU´LL NEVER SLEEP AGAIN... fríkaði nett út .. en þar sem ég var búin að skrá mig, borga OG skrifa undir 4ja blaðsíðna samning við skólann að ég gæti ekki kært efég yrði fyrir varanlegum skaða..
Ég titraði bókstaflega alla leiðina (af hræðslu)- fórum í svona gamaldags-skólabíl (gulur) og ferðin tók klukkutíma.. svo tók við 2ja tíma bið í röð.. í röðinni sá ég fullt af börnum!! Gladdi það mitt litla hjarta JÁ! Það þýddi bara að ferðin var augljóslega ekki svo hrikaleg.. Sem reyndist svo satt.. ég svaf bara ekkert verr en vanalega eftir þetta :) - en þetta var mjög gaman.. mjög svona Halloween legt og amerískt...
en áður en ég fór í siglinguna miklu fór ég á Farmer's market og keypti Súkkulaðibrauð og smákökur;) - svona smá föstudags! Svona markaðir eru alveg uppáhalds.. planið er að kaupa blátt popp næst!
Laugardagur: læralæralæra.. ekkert nema endalaus próf framundan og verkefnaskil svo ég sat og lærði og stalst svo út að hlaupa seinnipartinn - og bætti mig um rúma mínútu vúhú!
Eftir mat fórum við í Yogurtland - sem er eins og YOYO-isbúðin.. bara miklu betri!!! ;) og þegar við vorum þar (vorum 2 saman úr íbúðinni) fékk ég sms frá þýsku stelpunni sem ég leigi með.. sem maður gleymir aldrei:
Tsunami warning, first wave expected 10:28pm. Ég vonaði af öllu hjarta að þetta væri djók - sem var svoldið langsótt.. en við hlupum heim (með ísinn samt).. Þar var allt í kaosi - byrjuðum að pakka nauðsynjum í töskur og kveiktum á TV.. ég hringdi og vakti Axel og sendi mömmu sms.. Við vissum EKKERT.. aldrei aldrei verið jafnhrædd á ævinni... sá bara fyrir mér myndirnar frá Tælandi 2004 og svo í Japan (í fyrra?). Axel stökk á fætur og stóð vaktina á netinu meðan við hentumst útum hurðina og lögðum af stað upp á "higher ground" . Við vorum á "evacuation zone" og ekki í boði að vera heima.. Nágranna konan okkar kom reyndar yfir áður en við fórum og sagðist hafa reykt svo mikið hass (fór ekki á milli mála) og sagði að allt yrði í lagi því hún hefði lent í svona áður.. hún ætti nóg af vodka og við ættum bara að koma yfir til hennar og djamma svoldið...
Við hlupum upp næstu götu og vorum svo heppnar að strætó pikkað okkur upp og kom okkur upp í hæðirnar hérna.. Fékk stöðugar fréttir frá Axeli af netinu gegnum sms og það kom fljótlega í ljós að þetta yrði sennilega ekki neitt alvarlegt.. en við ákváðum að koma okkur bara upp í "evacuation center" því hverfinu okkar (Waikiki) var lokað. Það center var lokað þar til öruggt væri að það yrði flóðbylgja.. svo við sátum úti í rigningu - með gítarinn samt - og sungum og spjölluðum til að halda sönsum. Lögreglumennirnar sem voru þarna á vakt voru voða indælir og horfðu bara á lögguþætti í bílunum sínum.
Þegar Waikiki var opnað aftur fengum við far hjá indælis fólki heim aftur - það var laust eftir miðnætti.. Fólk tók þessu mjög misalvarlega en þar sem við vissum bara núll hvar eða hvað þetta var erum við sáttar með að hafa drifið okkur bara af stað!
Manni leið mjög einkennilega allan sunnudaginn .. hugurinn reikaði bara um allt og ég lærði nú voðalega lítið.. svaf bara og kúrði mér.. svo um kvöldið komu nokkrir krakkar í mat og við gerðum pizzur handa þeim og átum nammi :)
En maður lætur nú ekki svona slá sig neitt útaf laginu - skellti mér í Crossfit í dag og æfði mig í að gera þyngra deadlift.. er að fikra mig upp í max-ið mitt.. vona ég.. Svo er bara að læra endalaust þvi ég á 3 stór próf framundan..
Nóg af mér í bili!
Guðný TTTTT
- comments
Erla Björk Uff eg vard svo hraedd sko tegar eg vaknadi og heyrdi af tessu, kikti beint a facebook hja ther og ta var axel buinn ad skrifa ad allt vaeri i lagi:) gott ad tetta vard ekki alvarlegra og tu ert i lagi gudny min:)
Alma Eik Fjúff sem betur fer var þetta ekki verra! Farðu varlega :)
Sigrún Aldeilis fjör hjá þér Guðný . . Gott að allt fór vel knnús á þig