Profile
Blog
Photos
Videos
14.sept - föstudagur - fyrir svona korteri var mánudagur!
Tíminn er farin að gefa heldur betur í og það er mjög snúið að aðlagast því ..
Ég geri fátt annað en að læra á daginn .. lýg því ekki neitt.
Dagarnir eru nokkurnveginn svona:
06:20 - ræs.. eða svona semíræs.. sólin er að koma upp á sama tíma og ef ég væri með linsurnar í mér væri það örugglega geðveikt;) - treð linsunum í augun og kem mér á fætur.. Ég fer alltaf í leggings í skólann því þar er bara skítakuldi.. og í gollu yfir!
07:15 - strætóskýlisbið.. ég kem snemma inn í vagninn og fæ alltaf sæti - sem betur fer.. því á næstu 10 min þá troðfyllist vagninn af fólki og ég þykist ekki sjá fólk sem þarf sæti .. ég grúfi mig bara yfir bók eða eitthvað (var einmitt að klára Hunger Games, fyrstu bók!)
rétt fyrir 08 kem ég í Downtown (þar er HPU líka, bara ekki mínir tímar). Þá stekk ég oft í tölvustofuna í smá stund .. skoða facebook og email og prenta ef mig vantar eitthvað fyrir tíma dagsins.
Milli 08 og 8:30 tek ég svo Shuttle Bus, lítill skutlubíll sem tekur 20manns. Það er 15min ferð á Hawaii Loa Campus.. sem er minn campus :)
Skólinn byrjar svo rúmlega 09.
Eftir skóla reyni ég að læra og gera eitthvað vitrænt (borða nesti).. svo er Crossfit æfing.
Svo heim .. heim er oft svona miður dagur.. þá er bara lært þangað til ég sofna framá borðið.. eða ég þarf að fara í búðina.. :)
Um helgina er stefnan sett á gott strandar-TAN.. erum allar að klepra á lærdómi og þráum að sleikja sólina og borða kannski ís..
Á sunnudag verð ég 25 ára :) - þá ætlum við á Cheesecake Faktory .. ég hlakka endalaust til að fá mat ! :)
Ég er engin hetja í eldhúsinu (eins og mörg ykkar vitið).. og hlutir sem ég mun sennilega aldrei borða aftur eftir að ég kem heim: Soðin egg, kotasæla, hamborgarahryggs-skinka, hafragrautur, hrein jógúrt og hnetusmjör... En þetta er einmitt uppistaðan í fæðunni minni.. jú og ávextir.. ég borða slatta af þeim :) svo útað borða verður geeeeðveikt!
Í dag var strætóinn extra troðinn á leiðinni heim .. ég hélt ég mundi deyja .. heitt og sveitt og svöng og þreytt og bara name it.. svo horfði ég á stelpu framar í vagninum líða útaf.. mér brá svo að hjartað missti svona 3 slög úr.. en strákarnir 2 hliðin á henni reistu hana bara við og létu hana standa áfram.. þar til einhver aumingjans kona bauð henni sætið sitt.. fólk var ekkert mikið að kippa sér upp við svona atvik .. en ég er bara enn í sjokki!hefði boðið henni nestið mitt ef ég hefði ekki verið löngu búin að troða því í smettið á mér .... átvaglið sem ég er
Annars er ég búin að ná því núna að ég á heima hér.. ég er bara íbúi á Hawaii .. og það er ótrúlega gaman!:) Þó það sé mikið að gera.. og skrýtið að búa bara með 3 random stelpum.. Þá er þetta snilld.. að bjarga sér sjálfur.. að fatta að enginn kemur að bjarga.. maður er bara hérna.. hinum megin á hnettinum :)
Dæmi: talvan mín hrundi um daginn .. ég var að hugsa um að bresta í stanslausan grát og ekka og fara bara heim .. fékk að skype-a axel í tölvu hjá einni hérna og missti samt alveg 2-3 tár.. en svo bara bauðst ein stelpan til að laga þetta okeypis.. hún fær windows 7 frítt hjá þýska háskólanum sínum.. og tók bara eina kvöldstund í að laga þetta... ég skulda henni líf mitt að launum finnst mér!
Grátur hefði sennilega ekki leyst þetta og ég er bara fegin að ég sleppti því ...
Núna er próf í hverri viku svo manni er alveg haldið á tánum. .en lokaprófin eru líka bara 20-30 % af lokaeinkunn.. sem er í raun snilld.. því þá er maður ekkert í stressi allan des :)
Annars bið ég bara ægilega vel að heilsa öllum heima
Mahalo
Guðný
- comments
Krissa Gaman að fylgjast með þér :) Hafðu það gott áfram!
Sólveig Skemmtu þér vel í dag afmælisbarn :)