Profile
Blog
Photos
Videos
Bloggedí blogg
án djóks þá kemst ég ekki heim held ég.. stend bara úti hérna í síðermabol og leggings - sólin fer bakvið ský í 3 mínútur og ég skelf eins og hrísla.. Vorum að ræða þetta við íbúarnir í 1403(íbúðanúmerið) og við sjáum fram á snöggan dauðdaga þegar við komum heim .. Hér er enn 27-29. stiga hiti en manni finnst bara svoldið svalt ef það er ekki heiðskírt. Ég er amk búin að panta stóra feita úlpu þegar ég kem heim.. fer ekki útúr flugvallabyggingunni án hennar!
Fór og keypti mér sushi áðan - first time hér! s*** hvað það var gott, var búin að gleyma hvað það er gott.. ágætis tilbreyting frá annars minni brilliant eldamennsku ! Ég elda fáranlega góð steikt egg með steiktu frosnu grænmeti og karrý .. og svo á ég líka mín móment með roastbeef .. ójá ! Góðir tímar framundan á mínu heimili :)
Við erum aaaað detta í 3ja daga helgi og ég gæti ekki verið meira kát með það - frí á mánudegi sem þýðir ekkert LAB.. sem þýðir engin skýrsla - sem þýðir að ég þarf ekki að googla allt sem ég þarf að skrifa og copy-a af wikipedia.... Engin rosaleg helgarplön samt þar sem allir eru að drukkna í verkefnavinnu . Ég ætla samt að tana svoldið. Eða reyna það,, alltaf ef ég stíg fæti útúr íbúðinni í bikiníi þá koma skýjin í hrönnum og stundum jafnvel rigning með .. mjög ósanngjarnt.
Obama vann kosningarnar og þó hann sé frá Hawaii(meira að segja þessari eyju) þá var núll stemmning fannst mér. Hawaii var með fáranlega lága kosningaprósentu.. held að fólkið hér sé extra latt.. vorum líka að lesa í fréttum að útskriftarhlutfallið hérna er 28%.. semsagt 28% þeirra sem byrja BS nám hér klára.. sem er fáranlega lágt hlutfall!
Mér gengur vel í skólanum (svona ef einhver spáir í því ) og mér finnst meira að segja svoldið gaman. Ég er reyndar i þannig námi að ég er bara með USA stúdentum, engum öðrum skiptinema. Allir eru að læra eitthvað Human resources eða financial eitthvað eða eitthvað sem ég kann ekki að nefna. En mér finnst þetta ágætt, búin að kynnast 2 frá Kaliforníu (mjög margir hérna eru þaðan) og svo nokkrum frá Hawaii.
Bráðum er svo Thanksgiving og þá er 4ja daga helgi (frí fimt og föst 22 og 23.) og ég er ferlega spennt! Meira frí = meira tan og meiri svefn.
Fáranlega fínt að vera í prívatherberginu - risa rúm og svakalegt pláss. EN klukkan 06:40 kemur sólin inn um gluggann af fullum krafti og það er ólíft þarna inni til svona 14:00 .. þannig að ég hlakka ólýsanlega til að koma heim og sofa út .. hef ekki sofið lengur en til 08:15 í núna næstum 3 mánuði.. oftast vakna ég uppúr 6 vúhú!
23.nóv flyt ég svo í stofuna og eyði síðustu dögunum þar.. þá fæ ég TV ! Ætla að prófa það mikið fyrir svefninn
Crossfit gengur vel, í dag gat ég gert Pistol í fyrsta sinn alveg ein og sjálf.. svo ótrúlega gaman að sjá árangur.. Búin að kynnast frábæru fólki þar og kvíði mikið fyrir að fara - en sem betur fer á ég snilldar æfingafélaga heima..
Ég er að lesa svo góðar bækur í kúrsinum "methods of coaching", kannski er ég búin að skrifa um það áður - maður verður svo fáranlega jákvæður og lærir að trúa á sjálfan sig.. held að allir fái það í jólagjöf að fá að lesa þær haha.. langar að taka þær með mér heim svo ég held eg fórni smá skóplássi fyrir þær
Búin að eiga kæró núna í 10mánuði.. time fliiieees.. ég er reyndar búin að vera fjarverandi í næstum 3 mánuði.. small detail problem
Annars held ég að ég sé að fá hálsbólgu og ætla að skella í mig verkjatöflum og við erum að fara að kúra okkur yfir mynd núna... því ein hérna var að hella tei yfir tölvuna sína og við erum að syrgja það ..
Knús og kossar
Guðný
- comments
Hildur Hæhæ, gaman að lesa bloggið þitt, þekki þig ekkert en er að spá í að fara í HPU og var þess vegna að stalka aðeins Íslendinga á Hawaii, þú ert reyndar sú eina sem ég hef fundið! Værirðu nokkuð til í að senda mér meil, mig langar svo að spyrja þig nokkurra spurninga um skólann :) Skemmtu þér annars bara rosa vel :)
Guðný Já ekkert mál Hildur - hvað er mailið þitt? Getur líka skutlað á mig línu: [email protected] Já ekki margir íslendingar hér ;)
Soloo oo thanksgiving tal þitt fékk mig til að hugsa um kalkúna, vona að þú fáir smá ;)