Profile
Blog
Photos
Videos
Fimmtudagskvöld.. vikan búin að vera merkilega laus við áhugaverða viðburði.. Í dag fór ég í búðina að kaupa í matinn - það var hápunktur vikunnar mundi ég segja.. ;) EN síðustu helgi gerðist nú eitt og annað! Fór að versla og fékk blæðandi sár á VISA kortið.. Mjög svo gaman að komast í smá verslerí, hugsaði mikið til Berglindar þar sem hinar píurnar eyddu ekki einu sinni 20þúsund krónum en ég renndi kortinu eins og ég ætti lífið að leysa.. Berglind mig vantaði þig
Byrjuðum samt verslunardaginn á IHOP - tróðum í okkur pönnukökum með 4 tegundum af sýrópi ! Bara snilld..ætlum að fara aftur áður en ég fer heim..
á Sunnudag fórum við 3 sem höngum mest saman hér og klifum Koko Head.. sem er bara held eg með því brattara sem ég hef séð .. eru margar margar tröppur en mikið var gaman að komast á toppinn.. eina slæma við þessa göngu er að það er enginn skuggi.. og við alveg mega góðar með okkur - lögðum af stað kl 15 .. þegar sólin ætlar hvern mann að drepa.. En upp komumst við OG niður aftur
Á morgun förum við í Haunted Lagoon - sem er einhver svona sigling og draugasaga sögð á meðan.. hef ekki HUGMYND afhverju ég er að fara.. sennilega einhvers konar sjálfspíningar árátta.. en á morgun fæ ég líka einkaherbergið hérna!! og það er spennandi Þó ég eigi eftir að sakna þess að hafa einhvern með mér í herbergi þá held ég að þetta verði nice.. mjög nice
Held áfram að prófa mig áfram í crossfit og örlítill árangur farin að myndast. Núna get ég td gert Double Unders og upphífingar með kipp.. dauðu upphífingarnar eru aaaalveg að koma
En í eldmóði mínum að gera upphífinar í dag þá reif ég svoleiðis skinnið í lófanum næstum inn í bein (ekki alvegkannski en samt)... ógeðslega vont og ekki töff..
Datt inn í góða Paleo pælingu um daginn .. það er svo ÓGEÐSLEGA mikið töff að vera Paleo að ég næstum kúgast við tilhugsunina.. en ef maður er Paleo og étur bara náttúruna og allt það ...afhverju er maður tilbúin að klína á húðina 10 mismunandi kremum sem spýtast útúr verksmiðjum um allan heim, stútfull af kemískum man-made efnum etc... Húðin er nú einu sinni stærsta líffærið - Má hún ekki vera með í Paleo-pælingunni ? Hef samt ákveðið að ég muni prófa Paleo einn daginn .. en ekki hér úti .. alltof gaman að vera frjáls og mega kaupa sér nammi þegar maður er með heimþrá ...
Október var pínu erfiður svona heimþrá lega séð .. þó það sé ótrúlega gaman hérna þá saknar maður fullt heim. En núna er meira en helmingur búinn og ég á eftir að gera helling!!
Það er heldur ekki að hjálpa að einn íbúinn hérna er mjög oft í stirðu skapi og þá er eins gott að vera ekki fyrir.. hún er svona frekar leiðinlegur karakter og við hinar 3 reynum að hanga bara meira saman .. En lífið er alltof stutt og skemmtilegt til að láta eitthvað útlenskt einbirni skemma það
Ég er búin að skrá mig í Color Run - endilega googlið það ! Þá hleypur maður 5k og fólk dúndrar í mann litum á leiðinni, erum að fara nokkur saman og ég er eiginlega bara mega spennt ! Þetta hlaup er 3.nóv og svo 4ja nóv er planið að fara á Goat Island og eyða deginum þar.. hægt að ganga þangað þegar það er fjara.
Er að spá að skrá mig í eitt hlaup enn .. en hef verið alltof löt að hlaupa .. reyni að bæta úr því um helgina
2 próf í næstu viku og lærdómsmetnaðurinn er enn ófundinn .. svo ég held ég snúi mér að því að leita að honum .. þangað til næst
Mahalo
Guðný
- comments
Friðrika s*** hvað þú ert ofvirk, ég sæi mig aðallega á sunny beach með kokteila... ekki mikið að klífa kletta og hlaupa. En þetta hljómar allt mjög ævintýralegt og spennandi hjá þér. Vertu í góðum skóm til að labba út í geitareyjuna, rifin þarna eru beitt... ( mikilvægar upplýsingar úr google) og verður að vera góður sundmaður ef "the tides are to strong... ;) og látum ekki útlenska einbirnið ná okkur í leiðindum, haltu áfram að njóta þessa bilæðislega sjúka ævintýris, þetta er svo osom! Ef ég væri rík mundi ég pottþétt koma í heimsókn. Knús
Candyaholic Allamalla.. held einmitt að ég sé alveg að verða búin að smakka allar finnsku nammitegundirnar.. en við skulum ekki vera að stoppa her, nóg eftir ;)