Profile
Blog
Photos
Videos
Mánudagar eru fáranlega ekki mínir dagar.. í fyrsta lagi þá er ræs 06:20 og það er svo erfitt! Sérstaklega í morgun því að við horfðum á Dirty Dancing í gær (aldrei séð hana áður) og ég fór seint að sofa.. en mikið er það fyndin mynd! Og hugljúf !
En aftur að mánudögum.. svo fer ég í strætó í langan tíma og svo labba ég Fort Street - framhjá öllu heimilislausa fólkinu sem hangir þar og maður reynir að labba bara hratt og mynda ekki augnkontakt því þau eru mörg hver mjög andlega veik - og tek skutluna á minn campus.. í dag lúllaði ég bara þessa korters-skutluferð.. Svo tekur við 90 min tímí í lífrænni efnafræði .. með manninum sem handskrifar allt á töfluna... og það er svooooo erfitt að skrifa stanslaust í 90 min þegar maður svaf bara í rúma 5 tíma. Svo er 5 min pása (ekki nóg til að hlaupa húsið á enda til að pissa sem gerir líf mitt mjög erfitt) og svo beint í stærðfræði tíma.. 55 min .. aftur stanslaust skrif og leysa dæmi... ég reyndar sat bara og slefaði í dag og skrifaði ekki neitt
Svo er VERKLEGT... og það er eiginlega frekar leiðinlegt.. bara blanda efni og hita og blanda og hita leysa upp í sýru blablabla.. bjó til þrítengt phenol fyrir áhugasama.
Svo skreið ég upp í skutluna aftur.. kúrði mér í korter og labbaði svo í 20 min til að komast í Crossfit.. tók ágætlega á því .. tók strætó heim.. NEMA HVAÐ .. í strætónum (sem var stútfullur) var maður að predika Guð og Jesú .. sem er alveg sjálfsagt EF ÉG VÆRI Í KIRKJU... sem ég var ekki .. ég var í strætó númer 19 og vildi ekki heyra hvað ást Guðs er beittara en tvíeggjað sverð og ég veit ekki hvað og hvað.. og hann predikaði bara mjög hátt! Fólk í næsta strætó heyrði pottþétt í honum..
Núna sit ég í fína privat herberginu í risarúminu mínu og er alveg að sofna.. En próf á morgun sem ég þarf eiginlega að fá gott í ..
Annars var helgin ógurlega skemmtileg en líka erfið því við vorum að kveðja eina sem við höfum mikið hangið með og hennar vini og það er mjög leiðinlegt að kveðja svona for good.. sé líklega þetta fólk aldrei aftur..
En í kveðjupartýinu hennar mættum við með Piggies in a blanket! Algjör snilld! Vefur litlum kokteilpulsum í smjördeig og bakar í korter í ofni.. sló svo rækilega í gegn! Gerðum líka pastasalat og ég át þar til ég átti erfitt með gang.. classic! Fórum út í nokkra drykki .. vorum búnar að vera á staðnum í 2 mín þegar við fengum frían bjór í hendurnar.. Setti Sidsel í að spjalla kurteisislega við drengina sem splæstu á okkur en fengum okkur svo bara eigið borð og létum sem þeir væru ekki til .. hahaha
sló metið mitt í 10km daginn eftir (þynnka .. ? ekki á þessum bæ!)
Stutt vika núna! Thanksgiving á fimmtudag (frí) og bandaríkjamenn gefa bara líka frá á föstudeginum ! Hipphipp húrra! Ef ég klára báðar skýrslurnar minar fyrir helgi þá ætla ég að gera fáranlega mikið á 4 dögum! Erum að fara nokkur á North Shore að snorkla vonandi með skjaldbökum , drekka úr kókoshnetu og verða brún! Held það sé líka Surf keppni og það væri nú ekki leiðinlegt að sjá það :)
Miðvikudagskvöldið er planið að fara í leikhús!! skólaleikhúsið .. er verið að sýna The Good Doctor, held reyndar að það sé leiðinlegt en mér er alveg sama! Upplifun!
Föstudagur - BLACK FRIDAY.. grimmustu útsölur ársins... sumar búðir opna á miðnætti en aðrar kl 06. Við ætlum að mæta snemma vonandi.. versla svoldið (berjast við fólkið um fötin geri ég ráð fyrir) og svo bruna beint á North Shore (á bílaleigubíl)..
Á föstudag flyt ég líka í stofuna! Síðasti áfangastaðurinn í ´þessari íbúð .. sem þýðir að innan við 4 vikur verða eftir.. sem er scary en samt svo spennandi
Ég er svo þreytt að ég er farin að skrifa bara eitthvað .. rosa gott...
Sakn á ykkur öll bara
Guðný
- comments
Alma Eik úff þú ferð bara alveg að koma heim :) Mér leiðist það nú ekki! :)
Patrekur Sveisí Jesssss! er svo ánægð með þig að hafa loksins horft á Dirty dancing!!!
Berglind hahaha ég stefni á að búa til trend fyrir svona strætópredikunum hérna á íslandi eftir jól