Profile
Blog
Photos
Videos
Svaðaleg helgi að baki! Hófst í gær með bleikum kjól og háum hælum.. jíha.. Bollywood partý hér kem ég! - þetta var styrktarkvöld fyrir píu á leið í Miss Hawaii og hún er semsagt indversk.. Þar var boðið upp á rándýran (en góðan) indverskan mat, Bollywood dansatriði (sem mátti taka þátt í og nei ég gerði það ekki) og svo svakalega tískusýningu á indverskum klæðnaði.. Heljarinnar fjör þó ég hafi eytt stórum hluta kvöldsins í að sannfæra mann og annan að ég vildi ekki dansa.. að dansa edrú er eins fáranlega hugmynd og að keyra fullur að mínu mati.. gjörsamlega vanhugsað. Smakkaði þó bjór frá eyjunni - Longboard- og líkaði vel
Ræs and shine í morgun (enda ekki hægt að sofa út hérna) og lagt að stað til Koul..something something.. villtumst aaaðeins í strætó, misstum af tengistrætónum og þurftum að bíða í 40 min.. sem gerði það að verkum að við neyddumst til að fá okkur English toffee milkshake,... halló namm!
Svo tók við tæplega klukkutíma strætóferð útí buskann .. en hverrar mínútu virði! Þarna var strönd sem að local búar nota , engir túristar, bara sól og heiður himinn með endalausum sjó og hamingju.. Vegna strætómisskilnings var strandarferðin stutt því við áttum pantað í movie-tour..Hann er gerður út frá bóndabæ (ranch) þarna við ströndina ! Það var svo mikil snilld og ég kolféll fyrir eyjunni á þessum klukkutíma sem þessi ferð tók. Við fórum í bíltúr (í strætó með engum gluggum) um 2 dali milli hrikalegra fallegra fjalla og sáum tökustaði þar sem ótrúlega margar myndir hafa verið teknar upp.. ég sá fótsporin sem Godzilla gerði, sá hvar Hawaii 5-0 guttarnir voru að hlaupa um, Jurassic park, einhver bruce willis mynd, George of the Jungle og maaaaaaaargar fleiri.. og þetta var svo fallegt! Horfðum yfir Pacific ocean en vorum samt eiginlega í fjallshlíð.. bara magnað! Svo fengum við allskonar upplýsingar frá bílstjóranum, td að konur og menn hér í eldgamla daga borðuðu ekki í sama húsi, því frumbyggjarnir töldu að menn og konur hefðu mismunandi þarfir í mataræði, svo þau bara notuðu 2 mismunandi hús...
Einnig að risaeðluhljóðin í Jurassic park eru að miklu leyti hljóðin í beljunum á þessum umtala bóndabæ.. og það er bara aðeins of gott.. talandi um að taka þessa mynd aldrei aftur alvarlega..
Drifum okkur af stað í strætó aftur heim og skelltum okkur á Teddy´s Bigger Burgers.. ÞAÐ var geðveikt.. 200gr borgari sem algjörlega bráðnaði upp í manni og ég slefaði ofan í hann .. fyrir allan peninginn.. toppaði burgerinn síðan í síðustu viku alveg 100% ..
Á morgun erum við svo boðnar í BBQ í næstu götu hjá þýskri píu .. gæti helgin verið betri ? Ég er ekki viss.. ég skulda reyndar tíu kílómetra hlaup og eina strandarferð og 14 stærðfræði dæmi OG að lesa um ensím...uggghhhh
Ég er formlega byrjuð í jólagjafainnkaupum og það er ofsalega gaman!! næstu helgi er stefnan sett á mollið og þá reyni ég að klára allt mikilvæga fólkið .. ;)
En best að byrja einhversstaðar og ensímin fá mitt atkvæði þetta eldheita laugardagskvöld
Yours truly :)
- comments
Kristín Rut Jólagjafainnkaupa geta varla verið flókin - hawaii skyrta á allt liðið!
Axel Heimir Sko, ég sagði þér að það væri alveg eðlilegt að ég léti þig borða í bílskúrnum ;-)