Profile
Blog
Photos
Videos
Tími á blogg held eg..
Ég er sko netlaus heima í íbúð og allt í ruglinu svo það er ekki eins aðgengilegt að blogga og setja inn myndir.. EN ég fór og keypti minniskort í símann svo núna get ég sett inn myndir á netið!! Ekki bara instagram...
Annars er lífið bara svona hægt og rólega að detta í rútínu - fyrsti skóladagur í dag.. og ég er held eg ein með 19 ára krökkum í tíma í lífefnafræði - sem er allt í lagi bara.. Kennarinn er frá kína og talar svoldið bjagaða ensku.. sem er frábært .. eða ekki. Svo fór ég í eðlisefnafræði og eiginlega fékk áfall - hélt ég mundi ekkert geta og skældi án gríns alla leiðina heim .. tárin bara komu eeeendalaust.. Mamma og Axel sendu mér sms til skiptis og reyndu að hugga mig.. EN ég ákvað svo að hætta að skæla bara og fara að skrá mig í Crossfit... CAN YOU BELIEVE IT... brýt allar mínar reglur.. en svona er þetta.. takmarkað í boði hérna og við fáum fínan díl.. og ég þarf að komast að fá útrás svo ég hætti að skæla kannski ;)
Fór í enn eitt Hike-ið.. það var ótrúlegt! Gengið á eitthvað svona eiginlega-fjall - samt malbikað alla leið upp sko .. EN ef þú fórst smá útaf veginum og klöngraðist niður einhverja kletta endalaust þá kom maður niðrað sjó og þar var svona laug eiginlega.. sjórinn samt gekk yfir mann alveg... Þar voru allskonar litlir fiskar og ég bara skellti mér út í og var svo sjúklega hrædd allan tímann en þetta var samt svaaakalega fallegt og gaman.. og þegar við Axel komum hingað 2032 þá förum við þangað!
(þeir sem þekkja einhverja sem ætla að koma hingað þá er þessi síða málið: www.unrealhawaii.com )
Þetta Hike hafði samt sína galla líka.. númer1: það varu bara þjóðverjar með mér (einn dani reyndar en hún talaði þýsku og er því ekki talin með), sem þýddi að ég skildi ekkert í þessa 5 tíma eða svo sem þetta tók.. númer2: vatnsdýfan þýddi að sólarvörnin fór af mér .. og ég var aaauuðvitað ekki með á mér mína.. og ég er núna skaðbrunnin á nefi, enni og handleggjum.. númer3: að ganga mikið og klöngrast í 32 stigum og heiðskíru er bara ótrúlega erfitt og ég fór upp í rúm fyrir 21 um kvöldið.. ;)
Hitti í dag mexíkóa í strætó(sjúklega pirrandi hvað allir eru alltaf að tala við alla hérna) sem vissi ekki hvar ísland var (eða hvað það væri ...) Hann heimtaði að ég færi meira útákvöldin, sagði að ég yrði að vera efst í mínum bekk í lífefnafræðinni til að komast áfram í lífinu og vildi máta úrið mitt.. ég er að segja ykkur það .. ég tek á öllu mínu til að sparka ekki í svona fólk.. en hann vildi ábyggilega vel..
Mér gengur bara vel að elda og lifa - annars var ég að uppgötva dósamat! Hreinasta snilld - kannski 2 dollara og það er bara heil máltíð - grænmeti og allt með .. Súpan sem ég var með í gær var samt mjög vond, en það má bara reyna afturJ
Keypti líka beikon(var með craving í það í búðinni) en hér er allt í svo stórum umbúðum að ég borða beikon í öll mál næstu 3 daga.. sem er ágætt bara.
Annars er ágætt að frétta bara af mér. Þetta er ekki bara eintóm sólarsæla og gleði - það tekur mjög mikið á að vera „einn" hérna. Allir hafa einhvern.. ég er sú eina sem kom alveg ein. Þjóðverjarnir og danirnir eru fljótir að rotta sig saman og maður stendur oft eins og álfur útúr hól. Ég þarf að finna allan styrk sem ég bý yfir og tárin hafa verið mörg. Sem betur fer á á yndislegt bakland heima sem er tilbúið að gera allt fyrir mig hvenar sem er sólahringsins J Einnig eru stelpurnar sem ég leigi með algjört æði og við höfum svipaða sýn á lífið allar..
Ég á erfiðast með að „koma mér fyrir" .. er alltaf í svona holliday fíling hérna.. segi oft bara „ æj nei ég þarf ekki svona , ég á ekki heima hér" .. en þetta er svona sem maður þarf að komast útúr. Staðurinn er samt geggjaður - maður lærir líka mikið á lífið að gera svona og ég mæli klárlega með þessu J kannski verra að vera með svona pínulítið hjarta eins og ég.. en ef ég get þetta þá geta þetta allir!
Ég ætla að reyna að læra mikið og æfa mikið og einbeita mér að því að njóta tímans sem ég hef fyrir sjálfa mig. Þó ég falli í öllu þá tekur enginn þessa reynslu af mér.. eða ég held ekki;)
Íbúðin - er æðisleg.. hef heyrt margr hrikalegar sögur af fólki í ógeðslegum kakkalakka íbúðum .. en við höfum það mjög gott. Ein er í master bedroom, svo erum við 2 saman í einu herbergi (2 rúm samt) og svo er ein í stofunni í svefnsófa.. svo róterum við rúmum á 28 daga fresti (eins og meðferð haha). Ég er semsagt í herbergi með einni núna og það er bara rosa gaman J - svo er bara dregið hvert ég fer næst.. J
Er á 14undu hæð með svakalegt útsýni yfir golfvöll og þar kemur sólin svo fallega upp um klukkan 06 ;) - við getum sofið með opna glugga og það munar miklu í þessum svaðalega hita hérna.
Við vonum að netið komi inn á morgun - þá reyni ég að vera duglegri að skella inn fréttum hérna!
Mahalo fyrir að lesa þetta allt
Ykkar
Guðný hullapía
- comments
Friðrika þú ert nú meira krúttið, ég felldi nokkur tár sjálf við lesturinn, vorkenni þér að vera þarna ein í heiminum en gott að herbergisfélagarnir eru fínir :) en vissulega er þetta massa lífsreynsla og hrikalega gaman að hafa þetta í gagnabankanum :) gangi þér rosalega vel og ég hlakka til að fylgjast með þér á blogginu , knús og koss
Jóhanna ooo þetta hljómar svo vel Guðný mín :) væri alveg til í að vera þarna hjá þér í sólinni og hitanum (það er komið haust hér og grenjandi rigning.. jeij!).
Sólveig Mér finnst þessi mexikana saga mjög góð, meira svona ;)
Berglind hahaha þú laðar að þér skrítið fólk Guðný! en þú ert algjör hetja hinum megin á hnettinum í crossfit! það getur enginn sagt við þig a þú sért hrædd við að prófa eitthvað nýtt :) svo kemuru kannski bara heim talandi reiprennandi þýsku við hötum það ekki ;)
Kristín Rut Eðlisefnafræði er náttúrulega fag sem ætti að banna!