Profile
Blog
Photos
Videos
Aloha!
Jææææja.. komið net! Núna sitjum við límdar við skjáina hérna heima.. skypum heim, skrifum blogg, setjum inn myndir og látum okkur líða velJ
Fyrsta skólavikan er búin .. og það er bara fínt.. þá eru 14 skólavikur eftir held ég... ;)
Er nánast bara með amerískum krökkum (börnum) í tíma.. allir mega american you know.. like yeah..
Eftir tímann i dag var ein í sjokki að hún yrði tvítug eftir nokkra mánuði... like oh my god you know..
Ég verð svoooooooooooo amerísk þegar eg kem heim .. bíðiði bara! J
Stærðfræðikennarinn minn virkar líka rosa fín - matar okkur með upplýsingum um útskýrir vel .. enn sem komið er hef ég ekki skælt yfir stærðfræði.. enda bara einn tími búinn J
Ég er með heimavinnu í eðlisefnafræði sem ég skil samt ekki .. og vil ekki skilja.. en helgin fer í að pússla því saman.. Lífefnafræðikennarinn (frá Kína muniði) ætlar sko ekki að gefa neitt eftir og allt mitt líf fer í að lesa eða leysa dæmi eða svara spurningum frá henni, ég er að segja ykkur það .. En ég var svo að fatta (loksins) að það fer eftir því hvaða tala er fremst í númerinu á kúrsinum hver erfiður hann er.. og lífefnafræði byrjar sko á 4 !!!
Hér er stjarnfræðilega mikið af fólki í hjólastól eða með staf eða hækju eða getur varla gengið.. mjög spes.. hef án gríns aldrei séð svona mikið af hjólastólafólki á jafnlitlu svæði ..
Núna er búið að vera svona hálfskýjað með rigningu í nokkra daga.. minnir mig svoldið á heima ;) og það er svoldið kósý bara.. spáin fyrir helgina er samt góð og planið er að reyna að jafna út tanið - maginn er hvítur en axlirnar eins og brenndur kjúlli.. ;)
Svo á sunnudaginn er Hike nr4 - gefum ekkert eftir og reynum að taka eitt hike á viku .. J
Byrjaði í crossfit í gær!! Við erum 2 saman (ég og einn herbergisfélaginn) og fyrst þarf að taka 6 tíma í elements- sem er einskonar einkakennsla og tæknikennsla.. Erum með Courtney sem kennara og hún er sprenglærð í öllu sem snýr að hreyfing og næringu svo ég held eg gefi crossfit smá séns.. meðan ég er hér amk ;) - er alvarlega þjáð af strengjum í öxlum og rassi.. Enda látin deadlifta 52kg bara svona sem létt upphitun . ..akkurat bara! Svo megum við líka mæta í alla opna tíma meðan þessi elements eru og ég hlakka mikið til að láta vaðaJ
Núna er ég alltaf með ipod í strætó og helst að lesa bók líka.. skal komast hjá vandræðalegum samræðum við random fólk það sem eftir lifir.. !
Annars eru tárin hætt að koma í bili - það er ferlega gaman að vera hérna og mamma sér til þess að ég hafi ekki áhyggjur af neinuJ og Axel og Berglind sjá til þess að ég fái slúður og knús að heiman;)
En þetta er svona það helsta af mér í bili J - ég er alltaf með skype opið ef ég er heima svo feel free to skype me ;)
Mahalo
Guðný
- comments
Berglind æjæj pínu klúður með þessa lífefnafræði:/ en ég hef klárlega engar áhyggjur af því að þú munir ekki massa þetta!! en ég er fegin að tárin séu búin í bili! það er líka ágætt að spara þau í eitthvað aðeins sorglegra :*
Berglind ehhe, góð tvöföld neitun þarna, ég s.s. veit þú munt massa þetta! bara til að hafa það á hreinu