Profile
Blog
Photos
Videos
Byrjum þessa færslu á að óska uppáhalds Berglindi til lukku með daginn :)
tókum 2x skype í dag til að fagna því!
Núna eru að hefjast miðvetrarpróf - sem er fínt, ekki langar mig að hanga á ströndinni eða vera í fjallgöngum -HELL NO.. inni að læra er málið :)
Án gríns er samt fínt að splitta einkunninni niður á önnina, fer í próf á þriðjudag í lífefnafræði sem er 24%, úr fyrstu 6 köflunum.. og það er jafnstór prósenta og lokaprófið í desember.. svo jólaprófsstressið er mun slakara en áður.. núna er maður jafn stressaður yfir alla önnina;)
Fór samt smá á ströndina í dag, með 2 dönum.. sem töluðu bara dönsku - svo ég beilaðu fljotlega.. OG MISSTI ÞVÍ AF BRUCE WILLIS.. sem lét víst sjá sig þar í dag.. ég hefði verið rosa game að sjá hann, en mér líður strax öruggari að hafa hann á eyjunni.. ;) hahaha .. ! kenni súru dönunum alveg um að hafa misst af þessu.. en ég leita hann kannski uppi í vikunni !
En ég beilaði af ströndinni til að prófa að hlaupa 10km hér í fyrsta sinn .. það eru 2 hringir um golfvöllinn (10,7km).. gekk glimrandi vel.. mér fannst ég ótrúleg hetja .. þangað til ég mætti asískri konu að hlaupa á svipuðum hraða og ég.. nema bara með barnavagn á undan sér..asíubúar alltaf að láta mann líta illa út sko..
Annars er svaka mikið af asíubúum hérna.. og þau eru klárlega uppáhaldstúristarnir mínir.. þau til dæmis ferðast næstum alltaf í svona 10-17manna hópum.. ganga í hnapp og færa sig bara ekki um sentimeter ef maður þarf að komast framhjá.. bara alls ekki takk fyrir ! Þau eru með svo stórar linsur á myndavélunum að það er alls ekki eðlilegt og þau taka mynd af ÖLLU sem þau borða.. líka bara svona pulsum og drasli.. mjög gaman :)
Fór á Bændamarkað um helgina, þann stærsta á eyjunni - ofsa gaman. Keypti mér gulrætur í 3 litum(appelsínugular, fjólublaar og rauðar), mangó og melónu :) beint af býli maður! Fékk líka að smakka Happy cake - og mikið var hún vond. Mangóið var svona lítið og sætt, og fáranlega gott! tróð því í mig á 3 mínútum-þessvegna á ég ekki mynd af því...
Ég "útskrifaðist" úr undirbúningi fyrir crossfit og er orðin fullgildur meðlimur. Síðasti tíminn fór í að æfa klifur upp kaðal - sem ég hef ekki gert síðan ég var 8 ára.. og ég uppskar þetta fína brunsár á sköflunginn.. sem er fín viðbót við brunasárið á framhandleggnum eftir Pizza-kvöldið.
eftir kaðalklifrið tókum við benchmark: 1000m róður, 50 thrusters og 30 upphífingar.. og hendurnar hafa enn ekki fyrirgefið mér
Fórum á "djammið" á laugardaginn - fyrsta og síðasta spái ég.. ekki minn tebolli.. En þegar ég fór að kaupa mér bjórinn var ég spurð um skilríki (þurfti reyndar að spurja hvort bjórinn væri áfengur því það stóð engin prósenta.. það var mjög töff múv) og rétti passportið.. OH Iceland.. what is the population there? GT: around 320thousand.. "THAT´S IT??" og svo hlóu bara svona allir (reyndar bara 3 aðrir) í búðinni ..
á skemmtistaðnum voru 2 strákar sem neituðu að hætta fyrr en þeir gátu borið nafnið mitt fram rétt.. ef ég hefði ekki stungið af væri ég sennilega enn þar.. því það getur það enginn hér.. mamma ég hefði átt að heita Anna.. eða Lísa..
En ég held ég setji punkt hér því ég þarf að halda áfram að þykjast læra
Kveðja
Guðný
- comments
Berglind haha ég mundi bara segjast heita linda það virkar vel ;)nú eða Göndý en svona án djóks þá er fólk bara að breyta nafninu sínu villevæk þegar það býr svona í útlöndum en er Bruce ennþá þarna!? þú verður að finna hann!!