Profile
Blog
Photos
Videos
Halló halló
Bara langt komin des og aldrei kemur blogg.. spurning að reyna að rifja upp síðustu daga.. brjálað að gera og dagarnir komnir í eitthvað mistur..
Síðasta vika var (að mig minnir) ekkert svakalega fréttnæm. Læra og njóta síðustu skóladaganna.
Svo kom helgin! Ég og Sidsel fórum eftir skóla hjá mér upp í Tide Pools (hef verið þar áður).. tókum strætó í næstum 90 min - sem var glatað - röltum upp á lítið fjall og klöngruðumst niður að laugunum.. þetta eru nokkrar laugar (náttúrulegar) sem liggja saman alveg við sjóinn og öldurnar ganga þarna yfir og þetta er svaka hasar.. NEMA hvað .. að við trítlum útí og erum að skoða fiskana sem eru þarna og þá kemur bara stærsta alda í lífinu og feykir okkur eftir lauginni alveg svona 4-5 metra... sem hefði verið bara fyndið EF það væru ekki svakalegir steinar í botninum .. og við urðum ógeðslega hræddar líka.. Skrámur og marblettir eru til minningar um þetta... :) svo tókum við strætó heim .. sem var næstum líka 90 min + að hann bilaði á leiðinni og við þurftum að bíða eftir að annar kæmi .. Við höfðum ekki gert ráð fyrir þessum strætóferðum í okkar plani.. vorum nestislausar og ískaldar (enda enn í blautu bikiníi og sólin löööngu sest) .. og sáum að eina lausnin á þessum vandamálum væri IHOP.. svo við hentumst þar inn og fengum stóran bolla af heitu kaffi og pönnsur a la america! Gerist ekki betra :) Snilldar dagur þar sem mikið var hlegið og smá snökt líka..
Laugardagur! Ræs and shine eldsnemma til að ná í bíl sem við áttum pantaðann á bílaleigu.. eftir mikið maus (GT gleymdi kreditkorti og blablabla) fengum við bíl .. við vorum 3 á leiðinni á North shore.. ég átti að keyra.. og við fengum 7 manna MINIVAN.. ég fór næstum að gráta.. En einhvern veginn náði ég að starta geimfarinu og af stað héldum við! Vöppuðum á milli stranda (á north shore eru svona 30 strandir) og lékum okkur í sjónum .. bara geggjað! Svo enduðum við daginn á american football leik - alveg tryllt! En mér fannst samt skemmtilegast að horfa á klappstýrurnar.. ég játa það .. leikurinn var aðeins of langur og það gerðist eiginlega ekkert ... 2x náðu þeir hlaupi.. annars var þetta kássa af overweight strákum í þröngum buxum...
Síðan þá hef ég verið að læra.. læra læra læra.. Það er bull mikið að gera og ég hlakka endalaust til að klára þessa önn ... á samt eftir að sakna kennarana og svo hef ég líka kynnst 3 mjög fínum krökkum í verklegu
Gerðum reyndar piparkökuhús og 2 tegundir af smákökum á sunnudaginn.. spiluðum jólalög í botni og nutum jólafílingsins í 2 tíma .. algjört must!
Hér er ekki jólalegt.. hér er bara ógeðslega heitt. En jólaljósin eru ágæt á kvöldin fyrir myrkfælnu mig sem sefur núna í stofunni ...
Annars er lífið bara allt við það sama.. skóli - æfa -éta piparkökuhúsið-borða hnetusmjör-steikja egg-æfa-lesa-sofa-saknaAxels..
Verður gott að komast heim .. sofa lengur en til 7 og vakna ekki sveittur.. verður rosa gott
Ætla samt að njóta strandarinnar í tætlur síðustu daganna og koma heim eins og kaffi(ekki með mjólk) ..
ég smakkaði líka garlic fries á laugardaginn - aldrei aftur.. ef það voru vampírur á eyjunni eru þær pottþétt farnar núna..
3 dagar af skóla - nokkrir dagar af prófum og verkefnaskilum og þá er þetta komið .. jíha!
Þetta er stutt og laggott í bili
kv Gunnsó
- comments
Berglind ég var bara farin að halda að þú værir hætt að blogga! :) mikið er gott að þú ert alveg að koma heim knús og kram :)