Profile
Blog
Photos
Videos
Yndislegir 4 frídagar að baki samt og bara 2 kennsluvikur eftir af skólanum.. Mikið er ég fegin í hjartanu...
Fórum í leikhús á Miðvikudagskvöld og það var svo ótrúlega gaman.. átti ekki von á því .. en þetta var fyndið og alvarlegt í senn og ég kom bara betri manneskja út svei mér þá!
Fimmtudagsmorgun - Þakkargjörðarhátíðin.. ég vaknaði ógurlega þakklát og dreif mig upp í skóla með mínum yndislegu roomies og við fengum turkey með öllu meðlæti lífsins og eftirrétti (2 ferðir) í massavís.. Ultum svo heim og lágum í leti allann daginn .. ótrúlega gott :) Kláraði til dæmis bók 2 í Hunger Games og trylltist af spenningi.. bók númer 3 er á hold fyrir flugferðina heim og ég er að bilast úr spennu.
Rifum okkur eldsnemma á fætur á föstudegi til að fá bílaleigubíl og komast á flakk um eyjuna en þeir voru allir búnir :( var ekki hægt að panta fyrirfram og við bara sárar og svekktar.. Fékk mér bara einn KaramelluFrappó og lífið varð aftur gott. Tókum strætó í stóra mollið og kíktum á Black Friday.. nenntum nú engri geðveiki svo ég kláraði bara nokkrar gjafir og svo drifum við okkur heim, hentumst í bikiníið - aftur í strætó og fórum á strönd hérna aðeins austar : Sandy Beach. Lágum þar í 2 tíma eða svo .. alltof nice. Öldurnar á þessari strönd eru ekki venjulegar því öldurnar eru óvenjuháar og brotna grimmt alveg við ströndina. Mikill straumur og bara vesen svo við fórum bara ekkert útí .. En fólk kútveltist þarna um eins og ekkert væri sjálfsagðara.. Maðurinn hliðin á okkur sagði að margir hefðu brotið hrygg og háls í þessum látum.. einmitt.. fínt að liggja bara hér :)
Laugardagur .. tími til að hreinsa upp syndirnar eftir 2ja daga hangs.. byrjaði á crossfit æfingu kl 9 og dó næstum .. og öxlin fór eitthvað í rugl.. og svo var túrbó lært allan daginn .. og reynt að hunsa það að úti var 29 gráður og heiðskírt..
Sunnudagur rann upp í öllu sínu veldi og við stefndum á fjallgöngu ! Loksins loksins.. en við héldum að Mt. Olympus væri stutt og lítil ganga.. hahahaha sagði fjallið þegar við skriðum síðustu metrana upp með tómar vatnsflöskur og eitt granola bar í hendinni. Sennilega erfiðasta gangan so far en líka ótrúlega falleg og skemmtileg leið. Búin að liggja upp í sófa síðan að reyna að halda mér vakandi. Því nú sef ég í stofunni og get eiginlega ekki bara farið að sofa kl 19 .. þó ég gæti það auðveldlega núna.
Algjör snilld að á Hawaii er skylda að vera í belti .. en þú mátt sitja á pallinum á pallbíl og enginn segir neitt.. við fengum einmitt far hálfa leiðina heim frá fjallinu á svona palli.. ógeðslega gaman ef maður reyndi að hunsa það að maður væri snardauður ef það yrði árekstur..
3 vikur og 3 dagar í að ég fari út á flugvöll á leið heim (24 dagar fyrir áhugasama) .. það er stundum stutt og stundum langt. Fer eftir geðheilsu.
Við ætlum að gera piparkökuhús um næstu helgi (hef ekki gert svoleiðis í svona ...25 ár).. og fara til North shore og sjá fótboltaleik og horfa á love actually og baka smákökur.. fínt að eg sé svo að fara í 3 próf í vikunni eftir það ..
Lokaprófin eru svo eftir 2 vikur og SVO fæ ég nokkra frídaga til að vinna upp tanið :)
Á eftir að gera rugl margt á 24 dögum og hlakka til og kvíði fyrir að koma heim ..
Kram og knús á ykkur sem lesið þetta
Guðný
- comments
Berglind jiminn hvað styttist í þig :* en þú passar nú að halda lífi þarna úti! engar hálsbrjótandi öldur og engar pallabílferðir hér eftir! hvernig gengur annars að læra að sufra?
Erla Mig langar líka að gera piparkökuhús :)
Berglind vá hvað ég elska þetta sufr, ;)þetta átti náttúrulega að vera surfa bara til að hafa það á hreinu ;)
Erla Björk Hahah, þetta var skemmtilegt blogg :) Hahahah sagði fjallið - þarna frussaði ég smá eplasafa yfir tölvuna ;) Gaman að fylgjast með og gaman að skoða myndirnar þínar líka :) Vona að þú hafir það gott í sólinni og hitanum :) knús til þín :*