Profile
Blog
Photos
Videos
Er alltaf föstudagur eða? Er að ryðja í mig nammi (auðvitað) og læra... Svona svo ég monti mig smá þá fékk ég 9,3 á stærðfræði prófi ..SEM hefur bara ALDREI gerst í mínu lífi.. ég er svona 6,5 manneskja í stærðfræði... konan var ferlega ánægð með mig (og mamma auðvitað líka), en þessi stærðfræði kennari lætur mann alveg fá samviskubit ef manni gengur illa.. hún þráir að við skiljum
Á morgun er stóri dagurinn.. eða þúst.. þannig, erum að fara á IHOP ( international house of pancakes) og þaðan að versla í outlet mallinu hérna... ég er svo spennt að ég verð veik! Visakortið er ekki alveg jafnspennt.. og ég verð ekki spennt um mánaðarmótin - en so be it !
Halloween er á næsta leyti (31.okt) og ég hef tekið þá risastóru ákvörðun að kaupa mér ekki búning.. EN er búin að bóka mig í einhverja ferð næsta föstudag.. þar sem við siglum á einhverjum kanó eða álíka á einhverju vatni og þar verður lesin hryllingssaga.. svo ég geri ekki ráð fyrir að sofa neitt í nóvember.. eða bara ever again. Er svo myrkfælin fyrir, skil ekki að ég láti hafa mig út í þetta..
Það var byrjað að halloween skreyta hérna samt strax i byrjun okt og partýin eru byrjuð .. svo um leið og 31.okt er liðin þá eru jólaskreytingarnar víst tættar úr kössunum.. hlakka pínu til :)
1.des ætlum við að kúra allar upp í sófa og horfa á love actually ! Og borða nammi...
Ég fór aftur í bíó (ógeðslega gaman í amerísku bíó) og sá myndina ARGO.. alveg óhætt að mæla með henni .. þegar hún kemur á klakann HAHAHAHA.. :)
Mér gengur aðeins betur að tana.. en ég er enn með hrikalegt far á bakinu eftir fyrstu vikuna hérna.. þegar ég brann bara innað beini .. já það far vill ekki fara.. alveg sama hvað ég hangi í sólbaði !
Annars er lítið að frétta sossum.. bara læra og crossfit og læra meira og hangsa.. metnaðurinn hefur ekki verið sá mesti í október svona miðað við sept.. en ég meina..
Sá konu í strætó og bauð henni sætið mitt (svo almennileg sko) og hún sagði :"yes, I do have the disability pass" - ÞAÐ ERU ALLIR MEÐ ÞANN PASSA HÉRNA.. svo vertu ekkert að veifa þessum passa framan í mig og sestu bara kona! Hér er nefnilega eiginlega skylda að standa upp fyrir gömlu fólki og fötluðum.. en það eru bara án gríns allir sem taka strætó eitthvað vanheilir, ég er ekki að vera dónaleg, en það er bara þannig.. ALLIR eru með svona disability passa..
Svo kom kona inn í dag í smekkfullan strætóinn með pínulitið barn í poka framan á sér, 4 innkaupapoka og kerru.. strætóinn rykkti af stað og enginn bauð konunni sæti!! hún hefði sko faceplantað með barnið undir sér á 3 sek.. Guðný Bus-hero bauð henni sæti og maðurinn hliðin á mér sagði að það hefði verið mjög fallegt af mér.. svo ég fór beint og keypti mér nammi til að verðlauna mig!
Hér eru allir í flipflops.. það er bara standard búnaður hérna.. EN fólk gleymir alveg að það er eiginlega MÖST að klippa táneglurnar svona 3x á ári ef maður ætlar að vera í flipflops allan daginn! Hversu hrikalegt að sjá bara táneglur á stærð við samurai sverð - gular og myglaðar. KOMMON...
Annars fannst stelpunum sem ég leigi með æðislega krúttað að ég hefði keypt mina fyrstu flipflops 25 ára...
Síðustu helgi fór ég í BBQ og við ákvaðum að koma bara með meðlæti - gerðum 2 tegundir af pastasalati og eitt venjulegt salat.. klukkutíma áður en við lögðum af stað að hitta hinar píurnar hringdi skvísan sem hélt BBQ ið og spurði hvort við þyrftum kjöt.. what? Why? Æji við erum eiginlega allar grænmetisætur... BBQ með grænmetisætum ? EN það var ofsalega gaman! Þar kynntist ég æðislegri bandarískri stelpu sem algjörlega dýrkaði mig því ég var frá Íslandi.. og að ég ætti kærasta.. því hún er sko 20 ára og er bara alveg viss um að hún muni aldrei finna kærasta ! Henni finnst ég svo heppin og bað mig að lýsa sambandinu og Axeli alveg í strimla.. "Are you gonna get married?" "are you gonna have children?" já hún var sko ekkert að spara stóru orðin.. ég svitnaði bara alveg að reyna að svara þessu öllu..
Sumt fólk sko ... en við töluðum fullt um Ísland (og Axel - já hún facebookaði þig) og það var mjög gaman.. Öllum finnst svoooooo gaman að hitta mig því við erum svo fá til sem erum íslensk .. maður er svooo einstakur ...
En kannski ég fari aftur að læra og skipuleggja verslunarferðina
eftir 8 vikur og 5 daga verð ég á heimleið .. best að nýta tímann vel
Kisskiss
Guðný
- comments
Erla Ánægð með þig Guðný, vissi að það leyndist í þær stærðfræðisnillingur :)
Sveigó í sveitó Afhverju þurfti ég að lesa þessa tánaglasögu yfir kvöldmatnum! :/