Profile
Blog
Photos
Videos
Jæja jæja..
í dag eru sléttar 12 vikur eftir.. sem þýða ellefu helgar til að gera eitthvað stórfenglegt!
Viðburðarrík vika skal ég segja ykkur - mánudagur var bara ekki málið .. tók erfitt (að eigin mati) stærðfræðipróf (sem var samt létt held ég), fór í ótrúlega leiðinlegan verklegan lífrænan efnafræðitíma og skildi EKKERT hvað ég var að gera.. dröslaðist heim í strætó svona frekar leið í skapi .. buguð yfir skýrslunni sem ég þarf að skila um efni sem ég veit ekki .. EN þar beið mín PAKKI ! með íslensku nammi og litlum miða frá mömmu .. það hrundu alveg tárin og stelpurnar hér sögðu að ég væri krúttleg.. Þetta var algjörlega best! 'Eg reif mig upp úr eigin harmi og hljóp 5k á ljóshraða og lærði sem aldrei fyrr þetta kvöld .. með bros útað eyrum .. :)
Annars hef ég ekki undan neinu að kvarta.. skólinn bara rúllar svona áfram og ég hef það svaka gott :) - algjör snilld að vera hér.. bara algjör! Ég get endalaust glápt útúm gluggann á leið í skólann - ég er á campus upp í fjöllujm/inní skógi og útsýnið er bara truflað!
En undursamlega vikan hélt bara áfram.. fékk tilkynningu um ANNANN pakka - svo ég sótti hann á pósthúsið .. og hann var huuuge.. Þar mátti finna ógeðslega mikið nammi - kisu-eyrnarlokka og myndasyrpu af mér,Berglindi og Sólveigu.. ásamt handskrifuðu bréfi - Berglind er bara svo alveg meðidda :).. tárin tárin tárin .. en gleðitárin .. ég á alltof góða að þarna heima ! :) núna bíðum við allar spenntar eftir laugardeginum - sem verður mega últra læridagur því Miðannarprófin eru að hefjast- og þá verður étið íslenskt nammi :) allan daginn ;)
Ég er svona aðeins farin að tjá mig í skólanum .. og kennarinn varpaði fram spurningu í dag .. og ég hristi hausinn svona létt - "YES MISS NEW YORK (bolurinn sem ég var í), I SEE YOU ARE SAYING NO" .. GREEEEAAT.. takk fyrir þetta dear teacher... en ég hafði amk rétt fyrir mér og gat rökstutt það.. sko mig!
eini áfanginn sem ég er að dúxa í er samt Methods of Coaching - er enn með fullt hús stiga í því fagi.. því það er eina fagið með viti ;) hver þarf háskólagráðu .. isspiss
Kennarinn minn (sá sem réðst á mig í fyrrgreindum tíma) eignaðist barn í síðustu viku (þurfti einmitt að hlaupa útúr tíma til að sinna konunni sinni með hríðir).. hafði svo skyndipróf á mánudag.. þar sem aukastigin voru að nefna a)hvað barnið hans hét b) hvaða dag það fæddist c) hvað það var þungt og stórt ... ég var auðvitað EKKERT að hlusta þegar þetta var rætt í tímanum (var samt þar!!) .. svo engin bónusstig handa Gunnsu... :( enda mjöög sérstakt finnst mér.. een kannski bara húmor.. eða kannski bara mjög amerískt.. allir alveg oooooooooo aaaaaaaaaa.. he is sooooo cute.. Drama drama drama ;)
Fórum í bíó um síðustu helgi .. ein fékk sér pizzu í bíó .. það er svoldið grillað:) sáum mjög svo ameríska mynd - Trouble with the curve- með CLint Eastwood.. Mynd um hafnabolta - sem er mest pirrandi og óskiljanlegasta íþrótt í heimi.. og svo var rómantísk ívaf með Justin Timberlake.. myndin semsagt algjörlega óáhorfandi.. svo leiðinleg það var hræðilegt.. í upphafsatriðinu er Clint semsagt að reyna að míga.. en gengur eitthvað illa(verið að undirstrika að hann var gamall) og gaurinn fyrir aftan mig í bíó bara : "haha that's totally like me every morning" 'Ogeðslega flott að heyra.. made my day !
Á leiðinni heim var gaur í strætó sem vildi vita hvað við værum að læra og svo áttum við geðveikt að verja þá ákvörðun og segja frá framtíðarplönum okkar.. hversu óþolandi getur fólk verið .. en svo hlógum við bara að honum þegar hann LOOOOKSINS fór:)
Svoooo labbaði gaur framhjá mér .. og bara oh hi! how are you - where are you from ? GT: Hi, im from Iceland.. Weird dude: Oh really.... how´s that volcano doing over there? REALLY ... REALLY... á að pikka mig upp með eldfjalla-pikkuplínu .. ??? sem betur fer kom strætó fljótlega og ég flúði vettvang.
Ég er orðin húkt á crossfit hérna.. svo krúttleg stöð' .. yndislegir þjálfarar og engir öfgar ennþá.. ekkert þurft að gera 100 armbeygjur eða neitt.. enda er aðalþjálfarinn ekki hlynntur því .. hún er ægilega spennt að ég kunni á ketilbjöllur og vill að ég noti þær óspart til að sýna hinum að þetta sé gaman og ekkert mál .. einmitt.. ég skal bara standa hér og snatcha til sýnis.. no prob:).. ætla svo á Paloe fyrirlestur í október .. og svo er Paleo áskorun í nóvember.. set stefnuna svona vægt á það .. kannski gaman að prófa. en ég er ógurlega löt að elda.. maturinn þessa daganna er aðallega að setja frosið grænmeti á pönnu og steikja 2 egg með því ...:)
kemur í ljós.. fyrst þarf að klára nammið :)
Annars sendi ég öllum heima bara sólarkveðju
sakna ykkar auðvitað ferlega en 12 vikur líða hratt.. viss um það
Kv. Guðný
- comments
Sólveig 12 vikur er ekki neitt!
Berglind ég veit sko ekki alveg hvað er í gangi ég var búin að kommenta á þetta blogg! eða það hélt ég að minnsta kosti :) en þú þarft klárlega að koma þér í ameríkugírinn ég vil vita hvað barnið heitir!! haha djók ;)