Profile
Blog
Photos
Videos
Í gær fórum við með krökkunum í sund klukkan 9. Þau fá að nota litlu sundlaugina á Napoleon Lagune hótelinu sem við fórum á í fyrra dag til að fara á netið. Bíllinn sem er kannski 12-14 manna var vel nýttur, örugglega 20-30 börn og mömmur fylltu bílinn og sátu ofan á hvert öðru. Við vorum hins vegar látnar sitja frammí, með sitthvort sætið. Agla skutlaði sér ofan í sundlaugina með börnunm á meðan Pálína bloggaði, setti inn myndir á facebook og tók myndir af sundtímanum. Agla skemmti sér konunglega í sundi, það voru alltaf allavega þrjú börn hangandi á henni.
Eftir hádegi tóku flestir sér síestublund nema við. Við fórum í labbitúr. Reyndar var flest lokað, enda sunnudagur. Pálína gat þó keypt sér þennan fínasta bakpoka á 450 krónur. Það voru óþarflega margir sem stoppuðu okkur til að tala við okkur í þessum göngutúr, yfirleitt eru samskiptin ekki meiri en bara bonjour, ça va og þess háttar kurteisi en í dag ætluðum við aldrei að losna við einn sem okkur minnir að hafi heitið Robert. Hann fór út úr bílnum sínum til þess að labba með okkur. Náðum að losna við hann tíu mínútum seinna. Hann á sér þann draum að fara til London, við hvöttum hann til að láta það rætast. Við ákváðum að koma aðeins við á staðnum rétt hjá Spes sem býður upp á internet, reyndar versta internet sögunnar en það er aukaatriði. Á leiðinni þangað eignuðumst við nýjan vin, Ali. Hann var ekki eins pirrandi, hann var virkilega fínn 18 ára drengur. Við sögðum honum að við ætluðum á netið en hann sagði að það væri lokað, svo rakst hann á karlinn sem vinnur þarna og sagði honum að við vildum fara á netið, sá hinn sami hjólaði því í flýti heim til sín og hálftíma seinna kom hann sveittur til baka og opnaði þetta internetherbergi, bara fyrir okkur. Hann þurfti að kveikja á öllum tölvunum og þetta var alveg mikil aukavinna fyrir hann svona á sunnudegi, en allt er gert fyrir hvíta manninn hér. Við gátum ekki afþakkað þetta þegar það var búið að gera þetta allt fyrir okkur (báðum auðvitað ekki um þetta) þannig við kíktum aðeins á póstinn og facebook.
Kvöldinu var svo eytt í að knúsa öll börnin, erum ekki enn komnar nógu langt til að geta útskýrt leiki fyrir þeim, þannig það eina sem við gerum með þeim er að knúsa og reyna að spjalla eitthvað.
Förum líklega til Kpalime á fimmtudaginn og verðum þar í tvær vikur, komum svo aftur hingað í nokkra daga áður en við höldum ferðinni okkar áfram á næsu áfangastaði. Þótt við séum bara búnar að vera hér í 6 daga, þá erum við strax farnar að kvíða fyrir því að þurfa að kveðja þessi yndislegu börn. Anna Svava, Clement biður að heilsa þér líka, hann mundi sko eftir þér.
Njörður, Bera, Siggi og Hildur komu svo um eftirmiðdaginn, notuðum tækifærið og báðum Beru að útskýra aftur fyrir eldhúsmömmunum að við vildum gjarnan fá minni skammta af mat. Það gekk upp og við fengum einn disk saman í kvöldmat, yndislega passlegt. Erum líka búnar að komast að því hvað græni kringlótti ávöxturinn heitir, hann heitir appelsína. Þið kannist kannski við það, hann er allt öðruvísi hér, grænn og ekki með appelsínubragði.
Okkur finnst rosalega gaman að lesa kveðjurnar hér á síðunni og sjá hverjir eru að lesa þetta.
- comments
Gulla Jeij! En skemmtilegt! Og frábært að þið fáið svona framandi ávexti eins og appelsínur ;) Þetta hljómar allt of gott til að vera satt! Haldið áfram að skemmta ykkur og fara varlega :) P.s. hér er bara snjór og skíðafæri að eilífu .. hver þarf sól?
Axel Skemmtilegt að fylgjast með ykkur úr norðrinu. En hvernig væri að fjölga Tógó dögunum og fækka Asíu dögunum?
Lilja Kristín Appelsína....en samt ekki appelsína! :P
Anna Svava Gott að heyra af Clemont. Verður að setja mynd af honum inn fyrir mig þegar þú færð tækifæri til. Mig langar svo að sjá hvort hann sé búin að stækka eitthvað. Ég sendi pakka til systkynanna sem koma með formanni íslenskrar ættleiðingar. Ásta sendi líka fullt af myndum til að hengja upp á heimilinu. ....gaman að lesa. Og já, við föttuðum heldur ekki fyrst hvað þetta græna var en börkurinn er bara svona. Knús á ykkur.
Pálína Við værum alveg til örlítinn snjó núna, köfnum úr hita 17 sinnum á dag. Held það sé of seint að fjölga Tógódögum og fækka Asíudögum, en í augnablikinu væri ég samt alveg til í þau skipti. Mér finnst samt grænar appelsínur betri en okkar appelsínur, eitthvað við þær. Set inn mynd af Clemont vonandi á morgun, skal taka mynd af honum á eftir, tók um daginn en hun var svo bara hreyfð og asnaleg. knús knús knús
Arna ekkert smá gaman að fá að fylgjast með ykkur :) er ekki frá því að ég öfundi ykkur pínu þar sem veðrið hjá okkur er vægast sagt ömurlegt. en endilega haldið áfram að vera duglegar að blogga og setja inn myndir :)
Freyr Njardvik Frábært að fá Tógó svona í reglulegum skömmtum :)
Erlingur Loftsson. Makalaust að fylgjast með tækifærum unga fólksins í dag til að kynnast heiminum. - Kær kveðja frá okkur á Sandlæk 1.- E.L.