Kpalime, Togo
Georgette sagði okkur að vakna klukkan 7 í gærmorgun. Við ákváðum að vera duglegar og rifum okkur samviskusamlega á fætur við fyrsta hanagal. Hanarnir hér byrja allir að gala eldsnemma og reyndar gala þeir allan sólarhringinn. Tógóskir hanar gala á hvorn annan, stundum heyrum við ekkert nema hanagöl.
Við sem sagt mættum í eldhúsið klukkan 7, þá var Georgette ekki komin. Það var önnur mamma byrjuð að elda, við spurðum hana h...


