Profile
Blog
Photos
Videos
Hæhæhæ, Pálína hér og Agla sem er reyndar sofandi.
Ætlum að blogga smá þótt við séum ekki komnar lengra en til Parísar, bara þannig það sé eitthvað hér á síðunni og við vitum ekkert hvenær við komumst næst í samband við internet.
Fórum á stað snemma í morgun, það snemma að Agla svaf ekkert í nótt, þess vegna er hún sofandi núna.
Erum búnar að eiga fínan dag, flugið var fínt, sváfum allan tímann, nema svo ákvað Frakkinn sem sat hjá okkur að horfa á eina mynd sem fjallaði bara um að drepa fólk og honum datt ekki í hug að taka hljóðið af svona því hann var í flugvél við hliðina á sofandi fólki sem vildi ekki vakna við morðhljóð og viðbjóð.
Erum búnar að eiga hinn fínasta dag í París. Fórum upp á hótel, Agla byrjaði á því að leggja sig og Pálína á því að redda interneti. Svo sprakk einn handsprittbrúsi í bakpokanum hennar Pálínu, þannig allt er mjög vel sótthreinsað hér.
Löbbuðum upp Champs Elysées, biðum í hálftíma til að komast inn í Abercrombie bara til að fá mynd af okkur með módelinu í dyrunum. Fórum svo í H&M og keyptum einhver ferðaföt. Pálína sýndi svo Öglu hvar hún bjó í haust og við skildum vetrarúlpurnar okkar eftir hjá húsverðinum þar, þurfum þær víst ekki í hitanum í Afríku. Svo borðuðum við kvöldmat á Sushistaðnum hennar Pálu.
Núna held ég að blundurinn hennar Öglu sé orðinn að nætursvefni.
Förum til Lome á morgun, hlökkum til að upplifa Afríku.
Bisous Agla&Pálína
- comments
Hjördís Ósk eg reyndi að reka öglu í svefn í nótt en það hefur víst ekki gegnið hjá mer!...en vá eg verð að sjá mynd af ykkur með modelinu:D...skemmtið ykkur geggjað! gaman að lesa boggið<3
Máni Sveinn Flott blogg ;)
Audur Atladóttir Hlakka til ad fylgjast med!
Adda frænka Pálu Vel gert hjá ykkur, hlakka til að lesa framhaldið.
Helga Ögmundardóttir Mjög góða ferð til ykkar, hugrökku stúlkur, bara að allir væru svona spenntir fyrir heiminum og lífinu! Kveðja frá Helgu mannfræðingi og sérfræðingi í Gnúpverjum...
Súlla frænka Gaman að lesa þetta og gangi ykkur vel elsku dúllurnar mínar.
Meike Gangi ykkur vel! Kærar kveðjur frá fjölskyldunni í Glóruhlíð!