Profile
Blog
Photos
Videos
3. janúar. 2012
Í dag fórum við með einni flugvél úr einum heim í annan. Byrjum á byrjuninni. Það tók Öglu langan tíma að vakna, loksins þegar hún vaknaði þá var Pálína búin að vakna tvisvar. Það fyrsta sem Agla gerði var að lita augnabrúnirnar sínar í mestu rólegheitum og gleymdi að hugsa hvað tímanum leið. Við tókum tvo leigubíla út á flugvöll því við erum svo mörg, fyrir þá sem vita ekki þá eru ferðafélagar okkar Njörður afabróðir Pálínu, Bera konan hans, Hildur dóttir þeirra og Siggi maðurinn hennar. Vorum komin mjög tímanlega út á flugvöll og Pálína uppgvötaði sér til mikillar gleði að það var hægt að fara frítt á netið í korter. Þá sá enginn framan í Pálínu næsta hálftímann, því jú, korter frítt á hvert tæki, þannig kvótinn var auðvitað bæði notaður fyrir tölvuna og iPhoninn. Hún spjallaði við nokkra vel valda einstaklinga. Um leið og við komum í flugvélina sem var voða fín Airbus frá Air France, þá steinsofnaði Agla, svo hálftíma eftir flugtak rumskaði hún og spurði Pálínu "hvenær förum við eiginlega í loftið" Agla er einstök. Agla svaf nú alla leiðina en Pálína horfði á bíómynd og sofnaði svo. Mun betra að sofa í þessum vélum en Icelandair því það er ekki þetta koddadrasl sem ýtir hausnum manns fram. Þegar við stigum út úr flugvélinni í Lomé, þá löbbuðum við bókstaflega á vegg, klukkan var 7 um kvöld en það var ofboðslega heitt og mikill raki. Stúlka tók á móti okkur með "Njarðvík" skilti og var okkur tekið sem höfðingjum. Sett í sér rútu og enduðum í VIP herbergi, þar voru passarnir okkar stimplaðir sem tók smá tíma og á meðan sátum við bara og höfðum það gott í vel kældu herbergi. Hinir farþegarnir þurftu að standa í biðröð í hitanum. Þetta er vegna þess að Njörður er mjög mikils metinn hér. Okkur var svo skutlað á barnaheimilið. Á leiðinni þangað gátum við alls ekki hætt að brosa, reyndum að gleypa allt með augunum en það var of margt að sjá. Við erum með herbergi sem er mjög rúmgott, einkaklósett með sturtu og það var meira að segja ein klósettpappírsrúlla þar. Fengum líka máltíð senda inn til okkar þegar við komum, fylgdi henni gómsætur ávöxtur sem við höfum aldrei séð og vitum ekki hvað heitir, en hann var svolítið appelsínulegur samt ekki appelsína. Það er svo heitt, við erum að kafna. Sitjum og bloggum og hlustum á fagra tóna frá Agnesi og félögum hennar í Sykri. Ætlum að fara að sofa þannig við verðum ekki þreyttar á morgun.
- comments



Sigþrúður Pálinumamma Gott að lesa þetta elsku stelpurnar mínar. Og yndisleg myndin af ykkur með litlu börnin í fanginu. Ótúrlegt, duglegu stelpur :)
Hjördís Ósk mikið er þetta æðislegt:D börnin eru svo glöð með ykkur á myndinni!!<3
Inga Björg og Hildur Ylfa Yndislegt að lesa um ferðalagið og myndin af ykkur og börnunum dásamleg, gleður okkur hér í kuldanum. Hlökkum til að fá fleiri fréttir.
Axel Eitthvað er af myndum á FB síður Pálínu.