Profile
Blog
Photos
Videos
4. janúar 2012
Í dag eignuðumst við 86 nýja vini. Hittum börnin hér eftir síestublund sem var reyndar aðeins of langur eins og þreyttum ferðalöngum sæmir. Um leið og við komum út þá þustu krakkarnir að okkur og létu okkur róla. Ekki þægilegustu rólur í heimi, en samt rólur og börnin eru mjög ánægð með þær. Svo bípaði bíll fyrir utan hliðið og öll börnin hlupu af stað því Njörður og Bera voru komin.
Það er ótrúlega erfitt að útskýra þetta í orðum, en við táruðumst báðar. Öll börnin knúsuðu Njörð og Beru. Þau kalla Njörð afa. Svo dönsuðu þau og sungu lengi fyrir okkur. Þeim fannst rosa gaman að leiða okkur, knúsa og bara vera í kringum okkur. Ótrúlega frábær, lífsglöð og sæt börn.
Í morgun fórum við svo í göngutúr með Kokou að kaupa vatn og símakort. Inneignin búin því við hringdum báðar heim. En ef einhver vill hringja í okkur þá er það allt í lagi því þið borgið það sjálf. Númerið til að hringja til Tógó er 228 og númerið okkar er 90 66 85 77.
- comments



Axel Á Njarðvík frábært að lesa og fylgjast með forréttindum.
Súlla Gott og gaman að heyra frá ykkur.