Profile
Blog
Photos
Videos
Í gærkveldi var okkur boðið í matarboð. Héldum fyrst að þetta væri einhver veisla, vissum ekkert við hverju við áttum að búast. Bílstjóri Spes skutlaði okkur og þegar við mættum vorum við bara tvær mættar. Vissum ekki alveg hvað við áttum að gera, allar tegundir af áfengi þarna og við fengum okkur kampavín til að vera kurteisar. Svo komu Njörður, Bera, Hildur og Siggi og líka tvær konur, önnur er prinsessa frá Benín og hin þingkona frá Tógó, ekki beint slæmur félagsskapur.
Gestgjafin var konsúlat Íslands í Tógó, hann heitir Claude, konan hans og sonur þeirra. Maturinn var ekki af verri endanum. Gæsalifur í forrétt, humar í aðalrétt númer eitt, því fylgdu tilheyrandi ofnæmisviðbrögð Pálínu sem sleppti þessum rétti. Seinna kom aðalréttur númer tvö sem var nautafille. Í eftirrétt var besti ananas og besta mangó sem við h öfum smakkað, það væri hægt að skrifa sér kafla bara um ávextina hér. Svo var kaffi eftir þetta. Óhætt að segja að við höfum aldrei verið jafn saddar í þessari ferð. Líka yndislegt að fá loksins kalt vatn eftir tæpa viku af volgu vatni. Þegar við komum út, þá var bílstjóri Spes enn þarna og hann beið allan tímann eftir okkur, í rúma þrjá tíma! Þetta var hið fínasta boð og okkur þótti mjög gaman að mála okkur og vera sætar einu sinni. Vorum búnar að missa trúna á fegurð okkar eftir marga svita, myglu og ljótu daga. Ekki bætir það trúna á eigin fegurð að vera umkringdur fallegustu börnum í heimi allan daginn.
Greinilegt að hér er stéttaskipting, sumir borða fjögurra rétta máltíðir á meðan aðrir borða fiskshaus og grjón ef þeir eru það heppnir. En þeir ríku búa innan um þá fátæku, en þó í ósambærilegum húsum, kofar úr spýtum á móti þriggja hæða höllum. Fólk sem er ríkt þykir líka sjálfsagt að hafa þjóna, það var þjónn sem þjónaði okkur allt matarboðið og það þykir sjálfsagt að bílstjórinn bíði eftir okkur í rúma þrjá tíma úti í bíl.
Í gær fórum við á Hótel Napoleon Lagune, leigubíllin þangað kostaði 1500 Tógópeninga en leigubíllinn heim kostaði 4000 Tógópeninga. Netið þar var bara nokkuð gott, datt reyndar út af og til í 10-20 mínútur, Pálínu til mikils pirrings og reiði. Þarna var líka hin fínasta sundlaug sem við skelltum okkur í, Öglu til ómældar gleði. Hún var eins og ung skinka á snyrtivörulager, eða feitur krakki í nammibúð, hún réði sér ekki fyrir kæti. Þrátt fyrir 37 stiga hita, var ekki mjög heitt í lauginni.
Það er ótrúlega skrítið að horfa á dagsetningu dagsins, 8 janúar. Við erum ekki búnar að vera í burtu í viku, margir örugglega ekkert búnir að taka eftir því að við erum farnar til Afríku. Fyrir okkur er þetta búið að vera rosalega langt ferðalag. Þegar við hugsum til dagsins í París, þá er ár og öld síðan.
Það hefur líka svo margt breyst í huga okkar, aðrir hlutir efst í huganum hér heldur en þegar við vorum enn á Íslandi. Við erum hættar að vera hræddar í umferðinni hér, sem er klikkuð, mótorhjólinn strjúkast við bílinn á 100km/klst, hættar að vera hissa þegar við sjáum mann sofa ofan á mótorhjólinu sínu í vegkantinum, okkur finnst ekkert eðlilegra en 25 börnum sé troðið inn í 15 manna bíl eða sjá geitahjörð fara yfir veginn í höfuðborginni og bílstjórarnir hægja ekki einu sinni á sér.
Núna erum við komnar aftur á Hotel Napoleon Lagune, í þetta sinn með svona 20 krakka með okkur og þrjár mömmur. Núna er að hefjast sundtími og börnin eru öll að setja á sig sundkúta. Samt eru þau 10-12 ára, á Íslandi væru þau löngu búin að læra að synda. En hér eru það forréttindi að fá að læra að synda. Agla ætlar að skella sér út í með þeim, hún lætur ekki svona tækifæri framhjá sér fara. Pálína ætlar bara að taka myndir og væntanlega nýta tækifærið til að vera tengd internetinu.
Annað sem okkur finnst skrítið, í dag á víst að vera 37 stiga hiti. Samt er alskýjað og ekki sést til solar. Samt er okkur sjóðandi heitt og við svitnum sem aldrei fyrr. Afsakið hvað við tölum mikið um svita. Hann er okkur bara mjög ofarlega í huga.
- comments



Sigþrúður Merkilegt þetta með tímann í Afríku. Nú er vika síðan við ókum á Þingvöll, Pálína.
Freyr Njarðvík Frábært blogg stúlkur, þetta er sko eitthvað sem ég hlakka til orðið a'ð lesa! Þið eruð svo fínir pennar ! Ég fór til Kúbu fyrir næstum 20 árum og lenti þá líka í svona tíma-skyns breytingu. Það er eins og maður detti inn í ryþmann sem er á staðnum , svo er líka svo mikið að meðtaka og vinna úr. Með hitann , þá er mér sagt að það sé svo mikill raki þarna því er hitinn alltaf svona´........MBk; Freyr
Sigþrúður Tóku þið ekki mynd af alvöru prinsessunni? Hér er mikið til af prinsessum en engin þeirra er alvöru!
Adda Við amma vorum einmitt að tala um að það er bara vika síðan þú fórst, Pála mín, okkur finnst miklu lengra síðan.
Gerða, mamma Öglu Hæ, stelpur. Mjög skemmtilegt blogg hjá ykkur og fróðlegt. Gaman væri að sjá myndir af húsunum sem almenningur býr í þarna í Togo en þið lýstuð þeim svo vel að ég get séð þau fyrir mér. Hér gengur allt sinn vanagang og bara tæp vika síðan vð kvöddum ykkur á Keflavíkurflugvelli. Allt á kafi í snjó, reyndar svell og pollar eins og er en spáð kólnandi aftur í vikunni. Ég vildi gjarnan fá eitthvað af hitanum hjá ykkur til Íslands og að geta sent ykkur kalt loft frá Íslandi en það er víst ekki hægt. Kveðja frá pabba og Einari.
Gulla Það er svo ótrúlega gaman að lesa bloggin ykkar! Gott að heyra að allt gengur vel og að það sé mikill sviti til staðar!
anna svava Æði. Elska að lesa. Svo ef þið viljið sjá fleirri myndir af umhverfinu þarna úti þá var Ásta mjög dugleg að taka myndir þegar við vorum þarna í sumar. Googlið bara annaogastaiafriku held það sé bloggspot eða central en það kemur strax upp....