Los Angeles, California
Við höfum kviðið fyrir því að skrifa þetta blogg í langan tíma og frestað því á hverjum degi í marga daga, sem gerir verkið einungis erfiðara. Erum staddar í Santa Monica núna en ætlum að reyna að fara yfir allt sem hefur gerst síðan síðasta blogg sló í gegn. Byrjum í Chiang Mai...
Við enduðum á því að vera í Chiang Mai út Tælandstímann, okkur langaði ekkert til Bangkok svo dvölin í Chiang Mai lengdist. Vinur okkar...