Profile
Blog
Photos
Videos
Georgette sagði okkur að vakna klukkan 7 í gærmorgun. Við ákváðum að vera duglegar og rifum okkur samviskusamlega á fætur við fyrsta hanagal. Hanarnir hér byrja allir að gala eldsnemma og reyndar gala þeir allan sólarhringinn. Tógóskir hanar gala á hvorn annan, stundum heyrum við ekkert nema hanagöl.
Við sem sagt mættum í eldhúsið klukkan 7, þá var Georgette ekki komin. Það var önnur mamma byrjuð að elda, við spurðum hana hvort við mættum hjálpa henni en þá hló hún og náði í tvo stóla og sagði okkur að setjast. Við sátum þarna næstu 20 mínúturnar eins og illa gerðir hlutir. Vorum bara fyrir henni og fengum ekkert að hjálpa. Fengum svo loksins morgunverð eftir að hafa setið á stól í klukkutíma. Ætlum ekki á fætur aftur klukkan 7 bara til að sitja á stól.
Ákváðum að fara í könnunarleiðangur inn í Kpalime fyrir hádegi, aðalega til að finna súkkulaði. Það er ekki að því hlaupið að kaupa súkkulaði hér um slóðir. Við gengum í hátt í klukkutíma um Kpalime, fórum í allar búðir sem okkur datt í hug að gætu selt eitthvað sætt. Það eina sem var til sölu var tómatpurré, sardínur, sápur, bindi, hjólaslöngur og fleiri tilviljanakenndir hluti. Fundum þó á endanum súkkulaði eftir að indæll maður vísaði okkur á það. Í þeirri búð voru til heilar þrjár gerðir af súkkulaði og samtals sex súkkulaðiplötur. En það dugði.
Peningarnir hér duga vel, tökum dæmi. Í gönguferðinni keyptum við eftirfarandi hluti:
2 súkkulaðiplötur
2 klósettpappírsrúllur
2 tyggjópakka
3 kexpakka
10 bíómyndir
sjónvarpsþáttaseríu
vatnsflösku
ananas
2 gosdósir
hálftími á interneti
Þetta kostaði innan við 2000 krónur. Súkkulaðið var langdýrast, 300 isk hvor plata.
Við erum orðnar dálítið leiðar á matnum hér. Hann er ekki eins góður og hann var fyrstu dagana. Flestar máltíðirnar eru þannig að við borðum þær bara því annars verðum við svangar. Inn á milli koma samt virkilega góðar máltíðir. Í Lomé fengum við alltaf ávexti með matnum, söknum þess. Ætlum að reyna að kaupa okkur ávexti á eftir.
Hlökkum til þess að geta fengið okkur pítsu, sushi, McFlurry, Starbucks og fleira góðgæti þegar við komum til Parísar. Vildum auðvitað helst fá þrista og Vesturbæjarís, en það verður víst að bíða þangað til 27.apríl. Auglýsum hér með eftir einhverjum á leið til Parísar fyrir 3. febrúar sem gæti kippt með sér eins og tíu þristapokum fyrir okkur. Við borgum að sjálfsögðu. Þristar er það sem við söknum mest fyrir utan fjölskyldu, vina, kinda(Pálína) og Simba(Agla).
Í gærkvöldi þegar svefninn var alveg að sigra okkur fengum við óvænta heimsókn. Eldri stelpnahópurinn kom til okkar og vildi hanga með okkur. Við ákváðum bara að setja tónlist á enda voru þær í partýgírnum. Þær þekkja Justin Bieber eins og aðrar 13 ára stelpur. Þetta var mjög skemmtilegt, þær dönsuðu eins og brjálæðingar, en eins og aðrir Tógóbúar þá vissu þær ekki alveg hvenær tími var kominn til að fara. Eftir að hafa sagt þeim 5 sinnum að við ætluðum að fara að sofa, slökkt á tónlistinni og burstað tennur þá loksins áttuðu þær sig.
Okkur hefur þótt það áberandi að fólkið hér tekur ekki eftir hvenær það á að hætta að vera með manni, elta mann og þannig. Við höldum að það hafi gleymst að útskýra hugtakið "uppáþrengjandi" fyrir fólkinu hér, eða kannski er hugtakið ekki til hér. Þær líka átta sig ekki á því að þær eiga ekki að ganga í dótið okkar. Þær kíkja inn í skápana okkar, opna töskurnar, kíkja undir rúm, taka hlutina okkar, opna öll krem og taka allt upp úr snyrtibuddunni. Manni finnst að maður þurfi að fylgjast rosa vel með hvað þær gera. Svo kannski finna þær óhreinatauið og taka upp nærbuxur. Við viljum það ekkert.
Sama með fólk úti á götu, það byrjar að tala við mann og þá er ekki séns að losna við það. Þetta fólk er bara að reyna að hjálpa okkur en við spjörum okkur svo ágætlega sjálfar.
Aukaverkanir Malarone, malaríulyfsins okkar eru skemmtilegar. Það stendur í lyfseðlinum;
Algengar aukaverkanir. Geta haft áhrif á allt að 1 af hverjum 10:
Svimi
Svefnvandamál
Skrýtnir draumar
Þunglyndi
Lystarleysi
Sem betur fer höfum við ekki orðið þunglyndar eða lystarlausar en draumarnir okkar hafa tekið stakkaskiptum. Þetta er eina aukaverkunin sem við höfum fundið fyrir. Um leið og við fljúgum inn í draumalandið hefst þvílík steypa. Þetta er svo mikið rugl að við veltumst um af hlátri á morgnanna þegar við deilum ævintýrum næturinnar með hvorri annarri. Ætlum að byrja að skrifa draumadagbók.
Það lítur út fyrir að við förum aftur til Lomé á næsta sunnudag. Það verður gaman að hitta dúllurnar þar aftur þótt það verði erfitt að kveðja dúllurnar hér.
- comments



Hjördís Ósk alltaf jafn gaman að lesa!! og mer finnst svo fyndið hvað fólkið er uppáþrengjandi..gott á ykkur...nei glens! ef eg væri að fara til parísaar þa myndi eg koma með heilan gám af þristum bara fyrir ykkur!! lots of love;*
Axel Ekki tekk ég malaríulyf en dreymi merkilega. Til dæmis í nótt, þá sat ég til borðs með Davíð Oddssyni, Geir Haarde og frú. Mundi ekki í draunum eftir því hvað hún hét. En ég sagði svona við hana: Það er annars merkilegt hvað Sjálfsstæðisflokkurinn er mikill kommúnistaflokkur. Davíð stóð á fætur var fjúkandi reiður. En ég róaði hann niður með þvi að segja að þetta væri bara draumur. Þá settist hann niður og við héldum áfram að borða. Það skrítnast þó var hvað ég var saddur þegar ég vaknaði. Ástarkveðjur úr Norðrinu.
Elísa Lind Gaman að fá að vita hvað þið eruð að bralla skvísur ! Hlakka til að hitta ykkur í asíu :D
Otto Like Ætlið þið að borga flugið ef mar mætir með súkkulaði til Parisar?
agla ja audvitad splaesum vid i flugid, tad er ekkert sem vid gerum ekki fyrir tristana! lika finasta fint ad fa heimsokn til parisar
Otto Like á það
Abbas c9g samdi feetta ekki... heldur las feetta comnemt e1 netinu. Tek feaf0 fram af0 e9g er f3samme1la comnemtinu. deetta f3sverk er mjf6g ledklega list.