Profile
Blog
Photos
Videos
Jæja góðu vinir og hálsar.
Nú sitjum við hér í svefngalsa, því finnst okkur tilvalið tækifæri til að blogga. Við munum þó sennilega skrifa tóma vitleysu og sjá eftir öllu saman í fyrramálið.
Tökum þá áhættu, enda er allavega helmingurinn af okkur áhættufíkill.
Talandi um áhættufíkla. Í dag fór Agla í teygjustökk. Fórum allir Íslendingarnir saman og fjögur stykki gerðust svo djörf að henda sér fram af 50 metra háum krana með teygju vafna um fætur sér. Pálína var hin stressaðasta yfir fífldjarfleika Öglu. Agla var hins vegar ekkert stressuð því Pálína var búin að segja henni að hugsa bara ekki neitt eins og hún gerir venjulega, með það að leiðarljósi fór Agla fyrst af öllum upp í kranann og lét sig gossa öskurlaust framaf. Hún sveiflaðist svo upp og niður á hvolfi í góða stund og skemmti sér hið besta. Vildi svo fara strax upp aftur um leið og hún kom niður, en við ákváðum að fara frekar í rúllandi bubbleboy bolta. Við fyrstu sýn voru þessir boltar virkilega spennandi og fólkið í auglýsingamyndbandinu skemmti sér svo vel. Við sjáum enn eftir þessum rándýru peningum sem við sóuðum í þessa ömurlegu þrjár rúllíboltasekúndur sem enduðu ofan í vatni, þar sem við gubbuðum næstum hvor á aðra.
Í gær fórum við með stelpunum(íslensku stelpunum sem við kynntumst á PhiPhi) í Flight of the Gibbon. Vorum reyndar fyrst látnar skoða foss sem þykir afar fagur hér. Hann var nú ekki ljótur, en þó ekkert miðað við það sem við höfum séð heima á elsku Íslandi. Við skoðuðum þó fossinn samviskulega, fórum í smá fótabað og Pálína skemmti sér konunglega yfir skilti sem varaði ferðamenn við að hér væri foss. Eins og það færi framhjá einhverjum, við vorum búnar að ganga meðfram honum í hálftíma.
En aftur að frumskógarfluginu...
Það var eitt það skemmtilegasta sem við höfum gert. Þessi skemmtun gengur út á það að fljúga í gegnum frumskóg í zipline. Það er búið að koma fyrir pöllum hátt uppi í trjám um allan skóginn og maður rennir sér á milli. Svipað og að vera í risa risa risastórri aparólu. Þetta var valið best activity í Chiang Mai og það kemur okkur ekki á óvart enda ofboðslega skemmtilegt. Þegar við komum til baka spurðum við einn starfsmanninn hvort við mættum koma aftur og fá frítt. Hann benti okkur á yfirmanninn sem okkur að óvörum tók vel í þá bón okkar. Hann sagðist þó ekki geta gefið okkur alveg frítt en tók niður 2/3 af verðinu með því skilyrði að við myndum gefa þeim góða dóma á internetinu. Við förum því aftur þangað á morgun.
Við lásum um að það væri gaman að spila tennis hér. Ákváðum að skella okkur í tennis því okkur finnst bumban vera búin að færa sig heldur mikið upp á skaptið. Fundum okkur tuktuk, bentum barnungum bílstjóranum á korti á staðinn sem við vildum enda á. Heyrðum strax að hann kunni enga ensku, en hann hélt þó af stað. Tveimur klukkutímum seinna sátum við enn í tuktukinum, búnar að keyra sömu göturnar aftur og aftur og aftur, og svo einu sinni enn. Hann spurði til vegar allt það fólk sem varð á vegi okkar, en það dugði ekki til. Á endanum reyndum við að útskýra fyrir honum að hann mætti alveg keyra okkur aftur til baka, en það var ekki hægt því hann skildi ekkert í ensku. Þetta olli Pálínu mikilum pirringi og enn meiri pirringi þegar Agla þurfti endilega að verja grey drenginn. Samt, ef maður ætlar að vera leigubílstjóri, þá er lágmark að vera annaðhvort með GPS tæki eða rata um eigin borg, eða það finnst Pálínu. Á endanum snérum við við og fórum heim. Hann rukkaði okkur þó um helmingi hærri upphæð, þar sem þetta ferðalag tók fimm sinnum lengri tíma en það hefði átt að gera. Svo sagði hann "I'm sorry" og keyrði burt. Við fyrirgáfum honum.
Annars erum við búnar að eyða afgangnum af vikunni hér í að skoða borgina, leigðum okkur hjól einn daginn og hjóluðum í nokkra klukkutíma fram og til baka að sökum þess að við þorðum ekki að hjóla á aðalgötunni í mestu umferðinni, hjóluðum því bara í hringi inni í gamla bænum. Það var samt mjög gaman og Pálína keypti sér tvisvar ís.
Við héldum að við myndum spara með því að koma hingað norður, því allt er jú mun ódýrara hér. En það var bara blekking. Hér fjúka peningarnir frá okkur eins og gluggapóstur á hvassviðrisdegi. Það er svo margt að gera, frumskógarflugið kostaði hálfan handlegg og markaðarnir ræna okkur öll kvöld. Sendum tvo kassa af dóti heim til að þurfa ekki að taka fimm sæti í flugvélinni og það kostaði hinn handlegginn.
Um daginn vorum við að ganga heim af laugardagsmarkaðinum þegar rúta þaut hjá og tjobbaði næstum hausinn af Öglu með spegilbúnaði sínum. Þá fékk Pálína staðfestingu á því sem hún hefur lengi haldið, Agla er kærulausasta manneskja sem hún þekkir. Við nánari umhugsun komst Agla að sömu niðurstöðu, hún er líka kærulausasta manneskja sem hún þekkir. Agla er mjög stolt af þeim titli, enda er hún það kærulaus að hún veit ekki hvaða áhætta fylgir þessum titli. Hver er kærulausasta manneskja sem þið þekkið kæru lesendur? Er það kannski Guðrún Agla? Hafið samt ekki áhyggjur af Öglu, Pálína passar hana vel.
Fyrir þá sem hafa áhuga þá höfum við tekið þá ákvörðun, eftir að hafa lesið grein á pressunni að hætta að drekka gos. Það er reyndar ekki erfitt fyrir okkur þar sem við drekkum sjaldan gos. Höfum líka hætt að borða nammi um það bil 20 sinnum í þessari ferð. Það er aftur á móti bann sem stendur aldrei lengur en einn dag þar sem við borðum ósjaldan nammi. Ætlum núna út í tesco og kaupa snickers.
Skulum reyna að nota dagana vel þannig við höfum eitthvað til að blogga um og getum bloggað fljótt aftur.
Annars sjáum við ykkur, sem hafið áhuga á að hitta okkur, eftir mánuð og einn dag! Stefnum á hópferð í Vesturbæjarísbúð 27. Apríl ásamt vel völdum vinum og vandamönnum.
- comments
axel pabbi Gaman að heyra hvað það er skemmtilegt hjá ykkur. Margar sögur til að segja næstu kynslóð þegar hún kemur í teygjustökki til jarðar. Já dagarnir líða og næturnar sömuleiðis.
Hjördís Ósk haha þvílíkt ævintýri,,,,og já Agla er svo mikið kærulausasta manneskja sem eg þekki, er oft með hjartað i buxunum að vita af henni þarna úti en ég róast mjög mikið við það að vita að Pálína er með henni hlakka til að fara í ísbúðina 27.Apríl
Gibba Skemmtileg frásögn en ég er svo fegin að þið segið frá þessu öllu eftir á......og ég veit lítði um áform ykkar fyrirfram. En segi bara eins og Bretar "taka care" bestu stelpur og fer að safna fyrir ísnum!!
Súlla Er búið að panta borð?
Pabbi Egill Ég segi eins og mamma hennar Pálinu að það er eins gott að fá að vita af ævintýrunum eftir á. Ég er ekki viss um að ég þyrði þessu þrátt fyrir áhættufíknina en get ímyndað mér adrenalínflæðið. Hlökkum til að sjá ykkur.
Gerða mamma Ja hérna þvílík ævintýri. Vonandi hefur þú fengið næga útrás fyrir áhættufíknina í bili Agla mín. Pálína, það er gott að vita til þess að þú sért á bremsunni og passir að Agla fari sér ekki að voða. Í mínum huga er teygjustökk hræðilegt, úff, gott að þetta er búið. Mánuður til heimkomu. Hlakka rosalega til.