Profile
Blog
Photos
Videos
Sawasdee
Eyddum þremur dögum á Koh Lanta með Dóra og Óttari. Síðasta daginn þar fundum við út okkur til mikils hláturs að maðurinn sem við vorum búnar að panta allar okkar máltíðir hjá var bara venjulegur og óbreyttur hótelgestur, ákváðum einhverra hluta vegna að hann væri eigandinn, en hann tók við öllum pöntununum og kom þeim til skila.
Við fjórmenningarnir héldum síðan til Koh Phi Phi þar sem við eyddum öðrum þremur dögum. Koh Phi Phi er ótrúlega falleg eyja en hún er að drukkna í túristum. Það var mjög gaman þar, hittum þar átta skemmtilega Íslendinga, þannig við vorum þarna 12 Íslendingar saman komnir eða 0,0035% íslensku þjóðarinnar, búumst því við að Ísland sé frekar tómt þessa stundina. Leigðum okkur bát saman og fórum til Maya Bay sem er frægur því að the Beach með Leonardo DiCaprio var tekin upp þar. Getum ekki annað en mælt með Maya Bay, einn fallegasti staður sem við höfum komið til. Sjórinn var jafn tær og hreint fiskabúr og skipstjórinn stoppaði bátinn og leyfði okkur að hoppa út í.
Fórum svo á Monkey Beach að hitta apa. Sáum enga apa við fyrstu sýn og töluðum hátt og reiðilega um hvar þessir apar væru eiginlega. Þá heyrðum við fyrir neðan okkur "aparnir eru í þessa átt" og þrettándi Íslendingurinn bættist í hópinn. Hún fór samt ekkert með okkur. Fundum fullt af öpum, nokkra barnaapa sem allir vildu taka með sér heim. Sætustu apar sem við höfum séð.
Frá Phi Phi tókum við svo ferju yfir til Phuket og flugum þaðan til Chiang Mai. Okkar fyrsta verk þar var að fara upp á spítala með Öglu, fjórða spítalaferðin hennar í þessari ferð, óheppnin heldur áfram að elta okkur. Agla var sett í hjólastól og blóðþrýstingurinn mældur meðan við reyndum báðar að útskýra að hún væri líklega bara með sýkingu í fætinum og alger óþarfi að vera með svona vesen. Fórum svo sáttar heim með þrjá poka af lyfjum. Förum aftur upp á spítala eftir viku, ef þetta verður ekki orðið gott, þá bíður Öglu tveggja tíma aðgerð á fæti þar sem framfóturinn verður að öllum líkindum fjarlægður.
Erum núna komnar á ágætis gistihús, A Little Bird Guesthouse heitir það og er vel staðsett í miðbæ Chiang Mai. Vinkonur okkar frá Bandaríkjunum, sem við kynntumst í Krabi mæltu eindregið með þessu gistihúsi. Við höfum lært það í þessari ferð að það borgar sig oftast að hlusta á það sem reynsluboltar mæla með, sem þýðir að allir Tælandsferðalangar eiga að hlusta á okkur hér eftir.
Í gærkveldi fórum við á laugardagsmarkað sem var stórhættulegur, ekki í þeim skilningi að við værum í lífshættu, heldur voru peningarnir okkar í bráðri hættu. Keyptum okkur ýmsar nauðsynjavörur svo sem hengirúm, billjardborð, myndaramma, ljósaseríur, kerti, armbönd og fleira... Gleymdum að hugsa út í það í hita kaupleiksins að bakpokarnir okkar eru stútfullir. Þurfum að fara í leiðangur eftir fleiri töskum við tækifæri. Gerðum þó kostakaup.
Í dag gerðum við annað stórhættulegt og er eitt af hápunktum ferðarinnar. Við eyddum deginum í að knúsa tígrisdýr af öllum stærðum. Pálína er að sínu mati skynsöm manneskja og var þar af leiðandi smeik í fyrstu, en það var Agla alls ekki og var reið út í tígrisdýraumsjáandann þegar hann bannaði tígrisdýrinu að narta í Öglu. Við skemmtum okkur konunglega að hitta litlu, næstminnstu og stóru tígrisdýrin. Agla vill helst sækja um vinnu þarna, en Pálína mun ekki leyfa henni það af ótta við að hún verði étin vegna óseðjandi áhuga hennar að kyssa dýrin á munninn. Verðum að taka það fram að við sáum ekki annað en dýrunum liði mjög vel, þau voru vel hirt, fengu að leika sér í vatni, voru södd og starfsfólkið var gott við þau. Agla var samt alltaf að banna þeim að pota í þau með prikunum sínum. Agla er stundum of mikill dýravinur.
Í kvöld fórum við svo á sunnudagsmarkaðinn, misstum okkur ekki eins mikið og í gær, en keyptum þó dágóðan slatta af nauðsynjum og ónauðsynjum. Smökkuðum næstum því djúpsteiktar og saltaðar engissprettur, en það var of erfitt að setja þær inn fyrir varirnar þannig við hættum við.
Við kunnum mjög vel við okkur hér í Chiang Mai. Í fyrstu höfðum við ekki hugsað okkur að ferðast hingað norður, en þar sem allir mæltu eindregið með því ákváðum við að slá til. Við sjáum alls ekki eftir því, hér er allt ódýrara og endalaust hægt að gera.
41 dagur í að við lendum í Keflavík. Vitum að sumir eru byrjaðir að telja niður...
ขอขอบคุณคุณลา
- comments
Gibbamamma Takk fyrir að koma mér til að skellihlæja aftur og aftur!
Hjördís Ósk hahaha þið vitið eki hvað ég hló mikið eftir fyrstu efnisgreinina með manninn á hótelinu...og ég sé svo fyrir mér öglu vera að kyssa öll dýrin á nefið og jafnvel biba á þau....hafið það gott í 41 dag í viðbót útí útlöndunum:D
Gerða mamma Flottar myndir, eins og fyrirsætur hjá tígrísdýrunum, eru þau örugglega hættulaus? Kolfinna er búin að fá kortið frá þér Agla og var mjög glöð. En hvað er nú að gerast með fótinnn á þér? Við vorum í kaffi hjá Maju áðan og ég var að segja fólkinu að nú amaði ekkert að þér. Og Pálína, ertu búin að jafna þig eftir ígulkerið? Ég held það séu ekki nema 40 dagar þangaað til við sjáumst. Ástarkveðja.
Hrefna en gaman hjá ykkur og ekkert sma fyndið með þennan hótelgest sem þið vorud að láta þjóna ykkur! ábyggilega ein heimskulegasta ákvörðun sem ég hef tekið ad framlengja ekki ferðina án gríns skil ekki hvað ég var að pæla! samt alltaf gott ad koma heim líka. en hér er bara slidda og snjór og kuldi svo njótiði hitans úti. Gaman að lesa bloggin ykkar, og eg er byrjuð að telja niður, getum planað eitthvað gott sleepover með bff's. en hvaða hrakfoll eru þetta á öglu er þetta búið að vera eitthvað alvarlegt?
agla Aej ja hjordis tad er eitthvad vid nebbann a tvi sem saett er, tad er bara svo naudsynlegt ad kyssa hann eda biba a hann Hrefna tad vaeri natturulega draumur i dos ad hafa tig herna, en eg er meira en til i bff sleepover tegar vid komum heim! Og tad er ekkert alvarlegt ad mer, fekk sykingu i fotinn tvi eg var alltaf ad labba a tanum, tad er samt an djoks faranlegt hversu oheppin eg hef verid vardandi heilsuna mina
Ronke Ok, I've finished lauhnigg now ..the garlic .you a bad girl security guard? No but you could be a good girl security guard and your awesomeness would blind the bad guys while the police arrive lol .:)Now that list:- Learn to crochet then you can make the boys a blanket eachGrow spices then make all the different types of curry you can think ofSee how long it takes you to walk all along Iceland taking photos and making a book along the wayDare I say it, write that book!! XXXXXXXXXXXXXXXXXXXX