Profile
Blog
Photos
Videos
Jæja, ákváðum að blogga smá þar sem það er verið að þrífa jacuzzinn sem við ætluðum að eyða síðdeginu í. Við erum semsagt staddar í höfuðborg Katar, Doha þessa stundina. Fluginu okkar í gærkveldi seinkaði um 5 tíma, fyrst var Pálína mjög pirruð, en svo ákvað hún að hætta að vera pirruð. Við misstum af tengifluginu okkar til Bangkok útaf seinkuninni en Qatar Airways sér vel um okkur, setti okkur á lúxushótel með öllu inniföldu og svo eigum við flug í nótt til Bangkok með stuttu stoppi í Singarpore. Hér er gott að vera, mátulega heitt og allir voða almennilegir við okkur. Fórum í göngutúr áðan, skoðuðum okkur aðeins um og keyptum sundföt til þess að geta farið í sundlaugina á hótelinu.
Hádegishlaðborðið hér var eins og fimm fermingarveislur, þrjár jarðarfarir blandað við brúðkaupsveislu. Við vorum því miður ekkert svangar en kúgfylltum samt diskana okkar (sérstaklega Agla). Hlökkum mikið til kvöldmatarins.
Síðustu dagarnir í París voru yndælir. Náðum loksins að njóta þess að vera frískar saman í París, kíktum aðeins á Lourve, fórum í kvöldgöngu að Eiffel turninum, Pálína náði að hitta Sophie vinkonu sína úr Alliance Française síðan í haust, fórum í Sacré-Cœur, ráfuðum um Montmartre og ýmislegt fleira skemmtilegt. Rákumst á mann sem hélt fyrst að við værum tvíburar og spurði Ölgu svo hvort hún væri systir Bjarkar. Þess má til gamans geta að Agla er orðin dökkhærð, Pálína tók sig til og litaði á henni hárið eitt kvöldið, því ekki er nú auðvelt að vera ljóshærð stúlka í útlöndum.
Pálína átti afmæli í gær og er því komin á þrítugsaldurinn. Til marks um skyndilegan þroska hennar vildi hún fara í messu í Notre Dame í tilefni dagsins og svo lesa íslensk ættjarðarljóð. Mætti eiginlega halda að hún væri komin á sjötugsaldurinn. Það var mjög gaman að fara í messu í svona stórri kirkju. Pálína reyndi að skilja það sem fram fór og útskýra fyrir Öglu sem nennti ekkert að hlusta á hana því hún vildi syngja með öllum sálmunum. Við sátum á fremsta bekk í annars stútfullri dómkirkju.
Þegar við komum heim úr kirkjunni tók á móti okkur kökuilmur. Katrín var búin að baka franska afmælissúkkulaðibombu. Sú kaka hafði verið langþráður draumur eftir dvölina í Tógó þar sem einn dagurinn fór algerlega í að tala um súkkulaðikökur. Restin af deginum fór að mestu í að pakka niður og hringja í alla heima áður en við færum út á flugvöll.
Dagurinn endaði svo á endalausri bið á flugvellinum. Það hefði getað verið verra, fengum okkur McDonalds, Pálína kynnti Öglu fyrir How I Met Your Mother (núna búumst við við því að Agla verði forfallinn aðdáandi). Við getum hæglega mælt með Qatar Airways þrátt fyrir seinkunina. Maturinn var ljúffengur, hlý flísteppi, svefnfriður. Pálína var svo heppin að hafa autt sæti við hliðina á sér þannig hún hafði tvöfalt svefnpláss og Öglu fyrir kodda.
Það var svo óvænt ánægja þegar blaðamaður frá Mogganum hringdi í okkur í vikunni og vildi taka við okkur viðtal um Tógótímann okkar. Það er því viðtal við okkur í sunnudagsmogganum 12. febrúar. Gaman af því.
Þetta verður bara stutt blogg í dag, ætlum að gá hvort það sé búið að þrífa jacuzzinn. Næsta blogg kemur vonandi frá lítilli tælenskri eyju. Biðjum að heilsa heim.
ɐuí1ád&ɐ1bɐ
- comments
Hjördís Ósk mm mig langar i mcdonalds!oooog eg ætla alltaf að eiga moggan með ykkur!! gangi ykkur allt i haginn elskurnar! og til hamingju aftur Pálína með afmælið í gær!!!
Sourour This message was creaetd automatically by mail delivery software.A message that you sent could not be delivered to one or more of itsrecipients. This is a permanent error. The following address(es) failed: [email protected] SMTP error from remote mailer after RCPT TO:: host mx1b.hostedsecurity.biz [213.254.204.170]: 550 No such user here (server 166)
Sarah Delivery to the following reeipicnt failed permanently: [email protected] details of permanent failure: Google tried to deliver your message, but it was rejected by the reeipicnt domain.