Profile
Blog
Photos
Videos
Ástæðan fyrir því að við höfum ekki bloggað í marga daga er sú að það er svo margt skemmtilegt búið að gerast. Núna erum við komnar á eyjuna Koh Lanta og hittum hér vini okkar úr Kvennó, Dóra og Óttar. Dagarnir í Krabi voru frábærir þökk sé tveimur ungum drengjum sem við kynntumst. Við vorum svo skemmtilegar að þeir frestuðu brottförinni sinni aftur og aftur og það sama gerðum við. Drengirnir tveir heita Fredrik frá Svíþjóð og Benoit frá Belgíu. Saman eyddum við fimm dögum, fórum í ævintýraferð og til Railey sem við segjum betur frá á eftir. Borðuðum allar okkar máltíðir á Blue Juice, tefldum skák, spiluðum Pool og töluðum með rússneskum hreim allan tímann. Það er mjög erfitt að losna við þann hreim þegar maður á annað borð byrjar að tala með honum.
Við kynntumst þeim þegar við ákváðum að fara öll saman til Railey á ströndina. Það tók stutta bátsferð að komast þangað en það var algerlega þess virði, Railey er þekkt fyrir fegurð og þokka. Bátsferðin var ævintýri, Agla fékk að stýra bátnum og strákarnir léku á alls oddi með áhættuatriðum fremst á bátnum, við héldum að þeir myndu detta út í sjóinn, Pálína gerði ekkert skemmtilegt en tók myndir af þessu öllu.
Byrjuðum á því að klifra upp á útsýnispall. Það var mikil áhættuför, þurftum að klifra upp kletta, halda okkur í rætur, tré og reipi. Útsýnið þarna uppi var eins og klippt útúr póstkorti. Svo fórum við á ströndina, syntum í fagurgrænum sjónum, allt var fullkomið þangað til Pálína steig á óheppið ígulker sem skildi búta af sér eftir í fæti hennar. Því fylgdi mikill sársauki og hún synti í land eins og slasaður höfrungur. Þar með var gleðinni lokið, henni var sagt að eina læknisráðið væri að pissa á fótinn á hverjum degi. Við héldum heim í hellidembu og mestu þrumum og eldingum sem við höfum heyrt og séð.
Daginn eftir pöntuðum við okkur túristadagsferð í river rafting, foss og fílsbak. Byrjuðum í river rafting. Það var mjög ólíkt því sem við höfum farið í í Hvítá. Áin var miklu minni, en miklu straumþungari. Við vorum svo heppin að fá brjálæðing til að stjórna bátnum og við þutum niður ánna á ljóshraða á meðan báturinn snérist í hringi og klessti á allt sem hægt var að klessa á. Agla brosti sínu breiðasta og hélt sér ekki í neitt á meðan Pálína hélt hún myndi deyja í hverri öldu. Eftir að hafa stigið klakklaust og í heilu lagi upp úr bátnum var ferðinni haldið að fossi þar sem við vorum látinn synda í hálftíma. Strákarnir sýndu hetjuskap sinn og stukku af klettunum í kring og meiddu sig báðir, greyin. Enduðum á því að hitta fíla og apa. Fórum á fílsbak, sem okkur fannst mjög gaman. Strákarnir voru svo heppnir að fá skemmtilegasta fílinn á meðan okkar var afskaplega rólegur. Fíll strákanna, hann Púkíí pósaði fyrir myndir og svaraði ef maður sagði nafnið hans.
Svo var fílasýning sem var ágæt. Stakk okkur svolítið í hjartað þar sem var augljóst að fílunum fannst ekkert gaman í körfubolta, pílukasti og að standa á höndum. Pálína og Fredrik voru dregin upp á svið og fengu frítts fílanudd, þó að Fredrik hafi fengið óhefðbundnara, falinn banani inni í buxunum hans fyrir fílana að finna. Við ætlum að hitta fíla aftur fyrir norðan því þar eru þeir í náttúrulegra umhverfi.
Næstu daga rigndi mikið þannig við gerðum lítið annað en að tefla skák, borða á Blue Juice, fara í pool og nudd. Þurftum svo að kveðja Benoit og Fredrik, þeir fóru aftur til Malasíu og við drifum okkur hingað til Koh Lanta og hittum Dóra og Óttar. Þessi eyja er miklu dýrari en þeir staðir sem við höfum heimsótt. Ætlum að vera hér í nokkra daga, fara svo til Phi Phi og halda svo norður á bóginn.
Samband okkar gengur enn, við rífumst þó á hverjum degi enda erum við aldrei sammála um neitt. Agla vill klappa öllum dýrum sem verða á vegi okkar, Pálína bannar henni það alltaf og skipar henni svo að þvo sér um hendur eftir að Agla klappar þeim samt. Mótorhjól, við rifumst um það hvort við ættum að nefna þau hér. Agla vann. Agla vill alltaf leigja mótorhjól. Pálínu finnst líka gaman á mótorhjóli, en hún veit að þau eru hættuleg. Við förum reglulega í fýlu út í hvor aðra en það endist aldrei lengur en í mesta lagi 40 sekúndur. Þá spyr sú sem ekki er í fýlu "ertu í fýlu út í mig?" og fýlupokinn svarar "já" og útskýrir hvað hin sé óþolandi og þá förum við að hlægja og fýlan er búin. Öglu finnst Pálína kvarta of mikið og þess vegna tekur Agla alltaf afstöðu gegn Pálínu sem skapar fullt af löngum umræðum/rifrildum. Sem er fínt því að annars værum við löngu hættar að tala saman útaf umræðuefnaskorti.
Eins og þeir sem þekkja okkur vita, þá er erfitt að finna ólíkari manneskjur. Það er alltaf að koma okkur meira og meira að óvart hvað við pössum ágætlega saman, við erum bara eins og gömul hjón, við erum meira að segja með sameiginlegan fjárhag. Pálína sér um allt sem tengist ábyrgð, skipulagningu og áhyggjum í þessari ferð. Agla eltir bara með bros á vör og er alltaf kát og finnur sér svo fleiri dýr til að klappa. Ef við myndum ekki nota "gömul hjón" líkinguna þá væri líklega hægt að segja að Pálína sé eins og mamma hennar Öglu sem er lítið barn sem veit ekkert um hættur heimsins og trúir engu slæmu upp á nokkrun mann. Ætli það sé ekki hægt að segja að við bætum hvor aðra upp.
Nú fer að styttast í annan endann á þessu ferðalagi. Við njótum hvers dags, Agla er alvarlega að íhuga það að gera þetta að lífstíl sínum næstu tíu árin. Pálína hlakkar til að komast heim í faðm fjölskyldunnar og hitta kindurnar sínar og aðra vini. Þetta ferðalag hefur kennt okkur meira en okkur hafði órað fyrir. Tógó opnaði augu okkar eins og vídjóið okkar góða greindi frá (http://www.youtube.com/watch?v=v8F4gwYRKrg&feature=youtu.be ) og hér í Tælandi, sérstaklega í Ko Chang höfum við haft mikinn tíma til að hugsa, rækta sjálfa okkur og hugsa hvað við viljum fá út úr lífinu. Höfum rætt þetta fram og til baka á milli þess sem við rífumst og rifjum upp heimskuparasögur af Öglu.
Við ætlum út að hjóla. Bless.
- comments
Mamma Gibba Þið verðið bara skemmtilegri :)
Hjördís ósk haha æji ég sé ykkur svo fyrir mér...öglu allveg sama um allt,,,hún fær flær við að klappa öllum þessum dýrum!! en rosa gaman að lesa bloggið ykkar og ég er svo spennt að sjá andlitin ykkar!
Gerða mamma Já það er fjör hjá ykkur en Agla mín, ég held þú ættir að hlusta meira á Pálínu. Það verður einhver að bera ábyrgð þegar mamma þín er ekki til staðar. Fariði varlega en njótið samt. Við teljum dagana eru þeir ekki innan við fimmtíu.
Pabbi Egill Þú verður að passa upp á áhættufíkilinn, Pálína. Hún hefur þetta frá pabba sínum.
Jaya Blessaf0ur var ed f6f0ru brfaf0kaupinu sem fefa varst mef0, hreinlega fre1be6r matur ed alla staf0i,,, mig langaf0i til af0 vita hvort fefa ge6tir sagt me9r hvienrg fefa gerf0ir sf3suna mef0 hvalnum e9g get ekki gleymt feessu bragf0i og verf0 af0 fe1 feetta aftur sem allra allra fyrst .e9g veit af0 matreif0slumaf0ur segir aldrei fre1 leyndarme1lum sednum en vonandi gerir fefa undantekningu nfana kv. deorgils