Lome, Togo
Lífið gengur sinn vanagang. Vanagang sem er nýr fyrir okkur. Vekjaraklukkan vekur okkur með ljúfum Babartónum (hver man ekki eftir Babarþáttunum sem voru í morgunsjónvarpinu á sunnudögum fyrir 14 árum síðan) klukkan 6 á morgnanna. Snúsum reyndar í hálftíma en mætum svo eldhressar til að fylgja börnunum í skólann. Á heimleiðinni kaupum við okkur kleinubollur sem eru seldar við götuna. Þær eru ljúffengar, eins og nýbakaðar kring...


