Ban Yai (1), Thailand
Margt hefur á daga okkar drifið frá síðasta bloggi. Frá ríkidæminu í Katar sem við lentum óvart í og yfir á litla eyju við Tæland þar sem ekki er rafmagn nema fjóra tíma á dag. Ferðalagið frá París og hingað tók þrjá daga og alla okkar orku, líklega meiri orku frá Pálínu samt þar sem hún sá um allar áhyggjur og ábyrgð meðan Agla brosti og elti milli þess sem hún sofnaði á ótrúlegustu stöðum. Til marks um það ...


