Profile
Blog
Photos
Videos
Við sitjum í rútu á leiðinni til Fengyan þar sem sjálfboðaliðastarfið er. Þar búa rúmlega 400 manns svo það er ekta kínverskt fátækt sveitaþorp. Rútu bílstjórinn er að blasta æðislegum kínverskum tónleikum og er greinilega ekta kínverskur bílstjóri sem fer þangað sem honum dettur í hug. Bílprófin hérna eru greinilega gefin út í cheeriospökkum, ef það nær þá að vera svo gott! Ekki ná þá rúturnar einhverjum gæða standard heldur. Æðislegt að sitja hérna í handónýtri loftkælingu og 35 gráður úti og glampandi sól. En þrátt fyrir þessa æðislegu skemmtun og landslag sem er ekki hægt að lýsa með orðum, þá ætlum við að blogga fyrir ykkur heima.
Við erum búnar að vera í Guilin núna síðan á föstudaginn og hefur það verið æðislega gaman og fallegt. Við vorum nú reyndar fegnar Þegar við heyrðum að kokkurinn í verkefninu eldar frekar vestrænan mat því við erum búnar að fá meira en nóg af pínulitlum, ógeðslega skítugum kínverskum matsölustöðum og bambus núðlum. Í gær "stálumst" við til að fá okkur kfc áður en við áttum að hitta hina í kvöldmat. Sem betur fer líka því maturinn var vægast sagt ógirnilegur og maginn okkar búinn að fá nóg í bili. Sáum svo hvernig matreiðslan er þegar kona sat fyrir framan matsölustaðinn að þrífa grænmetið í bala með kranavatni á götunni þar sem börnin eru látin kúka og pissa eftir þörfum. Smá menningarsjokk í gangi hjá okkur. En ætli við eigum ekki aðeins eftir að venjast því og klósettunum líka. En það eru holur í gólfinu og hurðir eru nú ekki sjálfsagt mál, og hvað þá klósettpappir, hann er nú bara einhver lúxusvara. Við erum ekki alveg að tengja saman magapínu og þessar holur með engum klósettpappir, en thank god fyrir immodium. Hreinlætið er nú til staðar einhvernstaðar því í dag förum við á pizzastað eftir óætilegan brunch og þar fengum við ekki hnífapör (enda vita kínverjar ekkert hvað það er og ekki borðar maður pizzu með prjónum) heldur fengum við plasthanska!
Hérna í Guilin er fáránlega fallegt. Landslagið er geðveikt og sagt hefur verið að þetta sé fallegasta borg Kína. Lijiang River liggur hérna í gegn og landslagið í kringum hana er talið vera það fallegasta í Kína. Við ætlum að reyna fara næstu helgi í bátsferð þar niður ef við höfum tíma. Við lásum að svæðið er svona og fjöllin því þetta var hafsbotn en ekki myndað af jöklum, en við erum nú engir landafræðingar heldur dáumst bara að landslaginu. Við trúum ekki alveg að við séum hérna að sjá allt sem við höfum verið að skoða á myndum á google í vor! Engu líkt.
Við erum búnar að labba bara um svæðið og skoða núna um helgina og það er alveg ótrúlega fallegt í borginni á kvöldin. Mikið af vatni hérna og er kveikt á allskonar ljósum í trjánum meðfram vötnunum og ánnum. Á miðjunni á einu standa tveir turnar, the twin towers eða sun and moon tower og eru þeir ansi flottir upplýstir. Það er festival í gangi, red dragon fastival og hafa verið ýmsar uppákomur, tónlistaratriði og dansar á sviði til dæmis. Á einu hótelinu er stærsti manngerði foss heims og horfðum við á hann renna, en það er bara einu sinni á dag sem hann er settur í gang og það er svaka show í kringum það.
Við eyddum laugardeginum á stað sem heitir Elephant Hill því hún liggur eins og fílshaus og myndar gat eins og rana. Það er hægt að labba allstaðar upp á hæðina og í kring. Upp á er svakalega fallegt útsýni yfir borgina og fallegt að horfa á fjallgarðinn furðulega í kringum hana. Mynd bloggsins er einmitt tekin þar uppi.
Við gistum á hosteli hérna sem er mjög fínt með rosalega kósý lobbyi. Við hentum töskunum okkar undir rúmið hennar Elísu og þurftum að lyfta því upp til að koma þeim þangað. Það er nú ekki frásögu færandi nema það að þegar við komum heim eftir að hafa setið úti í hitanum með kaldan, þá var rússlenskur maður sofandi í rúminu hennar! Við reyndum að ná töskunum undan rúmunum án þess að vekja manninn en náðum bara einni. Við vildum ekki vekja alla í herberginu svo við ætluðum að leyfa honum bara að vera þarna, en við hefðum nú alveg getað vakið hann því við hlógum svo mikið að allir hafa líklegast vaknað við okkur. Elísa neyddist til þess að sofa í rúminu sem rússinn átti, en það var efri koja beint undir loftkælingunni og glugganum. Hann sagði svo við Elísu um morguninn að við ættum að hafa lægra næstu nótt og hún fattaði of seint að svara honum að næstu nótt ætti hann að sofa í sínun eigin rúmi! Núna er Elísa alveg að kafna úr kvefi og hálsbólgu. Apótek eru líka ekki á hverju strái hérna því þau nota frekar jurtir sem lyf.
Þeir sem sögðu við okkur líka að hafa ekki áhyggjur af farangri því allt væri til hérna eru ekki beint í uppáhaldi og erum við mjög fegnar að hafa tekið flest með okkur. Af hverju? Jú því ekki bara tekur oft mjög langan tíma að finna það sem vantar, ef það þá finnst, heldur líka talar enginn ensku og vita ekki einu sinni hvað við erum að biðja um! Reyndum að útskýra moskítófælu fyrir fólki með okkar bestu pictionary hæfileikum en ekki virkaði það. Ekki gekk það betur að finna after bite þegar flugurnar voru búnar að gæða sér nokkuð vel á Sóley.
Það hefur verið vandamál að pósta bloggum, myndum og tengjast síðum eins og facebook útaf the great firewall of china en ef þið eruð að lesa þetta þá hefur okkur tekist það :)
Kveðjur úr hlunkandi rútu í Kína!
- comments



Anna Lóa Hahahaha, vá ég hló upphátt af svo mörgu! :P Þetta er æðislegt og mér finnst yndislegt að vera að fá viber myndirnar :) Hlakka til að heyra meira :D
Sigga hahaha plasthanskar með pizzunni! já, klósettpappír í handtöskuna er möst :)