Profile
Blog
Photos
Videos
Við komumst á endanum til Hong Kong en þvi miður var klukkan orðin svo mikið að við gátum ekkert gert um kvöldið þar. Okkur sem langaði svo í góðan mat á veitingastað..
Vorum komnar á hótelið um 23, eftir að Sóley fékk sjokk að þeir keyra vitlausu meginn þar hahah en þetta var 4* hótel svo við vorum helvíti ánægðar með það eftir næstum þrjár vikur í Kína! Það var svo fallegt að keyra um borgina að kvöldlagi og hefði bara verið geðveikt að sjá hana frá Viktoria peak eins og við ætluðum en við fórum þangað um morguninn í staðinn og það var alveg jafn geðveikt og must see alveg eins og hitt.
Við höfðum sem sagt mjög stuttan tíma þarna svo við reyndum að njóta þess eins mikið og við gátum. Taxa ferðin upp á hótel var auðvitað eins og við mátti búast hjá okkur tveim á hraðferð! Lentum á líklegast elsta leigubílastjóra borgarinnar og eina sem kann ekki ensku heldur. Hann vildi auðvitað fara með okkur eitthvert allt annað en á hótelið og skildi ekkert af hverju við vildum ekki fara þangað! Sóley var svo mikið að pissa á sig að hún var byrjuð að öskra á bílstjórann á íslensku.. Enduðum á hótelinu eina mín áður en airport rútan færi með hjálp gps í símanum hennar Sóleyjar.
Ferðin var auðvitað ekki alveg búin því þarna vorum við staddar á stærsta flugvelli sem við höfum séð, að deyja úr hungri, Elísu vantaði enn segul og hliðið okkar var nr 508 svo enginn veitingastaður vildi bjóða okkur að panta hjá sér. Endaði með að Sóley fór á mcdonalds og Elísa hljóp að ná í segul og svo hlupum við étandi franskar um allan flugvöllinn að leita af hliði 508 því klukkan var orðin svo mikið og 5 mín í last boarding time. Komumst að því að hliðið var í allt öðru húsi, auðvitað, svo þegar við komum þangað og Elísa var búin að henda frönskunum sínum þá sjáum við að það var seinkun á fluginu og enn klukkutimi í brottför! Hahaha og við búnar að hlaupa um allt eins og brjálæðingar, étandi mcdonalds á hlaupum!
Auðvitað lentum við í einhverju svona í þessa fáu klst sem við vorum þarna. Hong Kong express kallaðist þessi ferð okkar! Við erum samt báðar sammála um að þetta er borg sem okkur langar báðum að koma aftur til.
- comments



Anna Lóa Ég skal koma með til Hong Kong :)
Donovan It's good to see a side by side comparison of the two teiegolonchs. I wonder whether the difference is attributable to differences in combustion temperature. Seems the temperature in the prechamber within the head would be a lot higher than in the headspace above an aluminum DI piston.