Profile
Blog
Photos
Videos
Afsakið bloggleysi hjá okkur en síðustu tvær vikur eru búnar að vera svo fljótar að líða því það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur!
Við vorum mjög þreyttar þegar við komum því flugið var mjög langt og við mundum á flugvellinum að við höfðum skipt peningnum sem við ætluðum að nota fyrir vegabréfsáritun og höfðum því ekki nægan pening til að komast inn í landið! Hahah en auðvitað reddaðist það og okkur var hleypt inn.
Við lendum auðvitað áfram í ruglinu og höfum ákveðið að allir leigubílastjórar sjá hversu vitlausar við erum því við lendum bara í hræðilegum taxaferðum hahaha. Á flugvöllinn sótti maður okkur sem talaði nánast ekkert við okkur heldur leiddi okkur bara út í bíl. Við paranoidu héldum auðvitað að hann væri að fara með okkur eitthvað. Elísa var að fara hringja í mömmu sína og segja henni að við kæmum líklegast ekki aftur. En það að koma hingað í fyrsta sinn að næturlagi er ekki alveg málið. Það er svo mikið af ógeðslegum styttum og svo krípi að keyra öfugu meginn á pínu litlum vegum.
Þegar við komum þá sáum við að herbergið (eða húsið) var allt sem okkur langaði í í Kína. Loftkæling þar efst á listanum. Við vorum samt í svo miklu áfalli eftir ferðina að við gátum engan veginn séð allt það jákvæða. Eina sem við sáum var að við þyrftum að deila saman rúmi í tvær vikur, ekki loft yfir sturtunni og allar reglurnar. Við sem sagt máttum ekki vera lengur úti en 10:30, bannað að drekka áfengi, engir gestir í húsið og svona héldu þær áfram! Við bara gátum ekki hætt að hugsa um að í Kína höfðum við frelsi en ekkert að gera en hérna fullt að gera en nákvæmlega ekkert frelsi! Okkur leið stundum eins og við værum börn í sumarbúðum en ekki fullorðnir einstaklingar að borga fyrir að vinna og vera hérna.
Eftir góðan nætursvefn vorum við hæstánægðar með þetta allt saman. Rúmið svo stórt að við tókum ekkert eftir því að þurfa deila því. Loftkælingin er geðveik og reyndar bara mjög næs að fara í sturtu undir berum himni. Við vorum í þorpi sem var í 20 mín göngufæri frá Ubud. Algjört tropical regnskóga umhverfi hérna, hrísgrjónaakrar út um allt og við erum frekar hátt uppi. Mjög fallegt umhverfið.
Hópurinn okkar var nú mun stærri en í Kína. Þar vorum við 5 í kynningavikunni og svo bara 3 að kenna. Hérna vorum við 17 sem byrjuðum og 11 sem voru byrjuð á undan. Okkur fannst það svona einu of mikið og erfitt að komast inn í hópinn til að kynnast öllum. Ekki hjálpar það að við erum öll í mismunandi húsum og alls ekki á sama stað. Við vorum 5 í okkar húsi. Við, stelpa frá austurríki, stelpa frá danmörku og svo stelpa frá hollandi. Það er svo allt of mikið af hollendingum hérna og var eiginlega leiðinlegt hvernig hópurinn skiptist í tvennt eftir nokkra daga, hollendingarnir og svo við hin. Við náðum samt að tengjast okkar hóp og mjög hresst par frá austurríki sem við vorum mikið með og gaur frá englandi. Svo auðvitað stelpurnar með okkur í húsi. Fyrir utan eina. Allt sem hún gerði fór í taugarnar á okkur og leiðinlegt að segja það en við áttum bara alls enga samleið með henni. Hún kann líka ekki að búa með öðrum sem gerði allt svo miklu erfiðara. En við lifðum hana af og já, mjög leiðinlegt að segja það en vá.
Kynningarvikan var mjög fín. Við löbbuðum um Ubud og fórum í monkry forrest. Gaman að labba um með villtum öpum, alveg þangað til einn beit austurrísku stelpuna sem við bjuggum með. Þá var gamanið búið og henni var keyrt beint upp á spítala til að fá sprautu fyrir hundaæði. Við löbbuðum líka um hrísgrjónaakrana hérna og lærðum aðeins um hrísgrjónagerð. Við bjuggum til okkar eigin batik klúta. Það var reyndar mjög skemmtilegt, tímafrekt og reynir á þolinmæðina - sem er ekki alveg til staðar hjá okkur tveimur! Og hverjum datt í hug að hleypa okkur tveim brussum í svona verkefni? Hahaha! En núna eigum við allavega fallega klúta sem við bjuggum til sjálfar og það er geðveikur minjagripur.
Tungumálatímarnir voru aðeins skárri en í kína, vorum að læra eitthvað sem gæti verið nytsamlegt á meðan við værum þarna og í kennslunni. Elísa var að sjálfsögðu ekki ánægð með matreiðslutímann en gat ekki stungið af á barinn eins og í kína ;)
Við lærðum líka að búa til flower offerings, þetta eins og Elísa orðaði á fallegan hátt "heilaga rusl". Við bara skiljum þetta ekki alveg, maurafæði og rusl útum allt - en maður virðir auðvitað þeirra menningu og trú. Við fórum með fallegu blómakörfurnar okkar í eitt heilagasta hofið hérna - tirta empul minnir mig. Þar báðum við eins og locallinn og fórum í heilagt bað. Það var algjör upplifun að gera það, fara í heilagt vatn og sturta sig upp úr um 10 sturtum og siðurinn er að óska sér eftir hverja sturtu. Þetta er aðallega til þess að þvo burtu illa anda og sjúkdóma.
Um helgina fórum við til strandarbæjarins Kuta að finna illu andana okkar aftur. Þetta er vinsælasti ferðamannadtaðurinn á eyjunni, sérstaklega fyrir ungt fólk sem kemur til að skemmta sér. Fórum með austurríska parinu og herbergisfélaganum okkar og enska (má víst ekki skrifa manninum) gaurnum. Sóley var alveg fárveik, með hita, beinverki og eitthvað ógeð. Hótelið var líka á kínverskum standard hahah. En við létum það nú ekki á okkur hafa því sundlaugin var geðveik hehehe.
Það var nú lítið sem ekkert gert þá helgina nema liggja flatmaga á ströndinni. Loksins fórum við á ströndina! Eftir að hafa verið í næstum mánuð var þetta í fyrsta sinn sem við sáum strönd. Sólsetrið þar er líka mjög fallegt og auðvitað nutum við þess. Við hefðum átt að passa okkur aðeins samt því hvítu íslendingarnir sólbrunni aðeins of mikið! Svo mikið að eftir helgi gat Elísa ekki einu sinni verið í fötum eða sest á klósettið! Hahahah. Við fórum líka frekar fínt út að borða og kíktum á hið fræga kuta djamm.
Kennsluvikan var svo fljót að líða en tók mjög mikið á! Við söknuðum kínversku krakkana okkar mjög mikið þessa viku en auðvitað náðum við svo að tengjast þessum börnum líka. Þau voru 10 og 11 ára, við vorum líka með aðeins stærri bekk - eða 32 börn. Með okkur var Julie, danski herbergisfélaginn okkar. Þetta gekk alveg mjög vel en þar sem tímarnir voru eftir hádegi gerði maður lítið annað alla vikuna. Undirbúningur um morguninn og kennsla eftir hadegi. Söknuðum þá aftur kína þar sem við gerðum svo margt á daginn eftir kennsluna. Söknum líka kínverskrar lögn eftir hádegið heheh.
Sóley þurfti að geras vondi kennarinn í gær því þau voru svo óþekk og með mikil læti - sem er kannski bara allt í lagi því hún fékk bara til baka það sem hún var á yngri árum hehe ;). Þau virtust samt hafa haft mjög gaman því í dag og við ákváðum að taka gítar í tímann og bara spila ensk lög og fara í leiki svona síðasta daginn. Svo gaman að vera með þeim!
Þegar við kvöddum þau fóru stelpurnar að gráta og þau gáfu okkur fullt fullt af gjöfum! Það er bara ekkert sem lýsir svoleiðis tilfinningu. Að fá þetta þakklæti fyrir að hafa verið hérna og tekið þátt í þessu er bara ómetanlegt. Í gær kom líka kona til okkar og þakkaði okkur kærlega fyrir að kenna dóttur sinni ensku. Það er bara algjörlega ástæðan fyrir að maður vill gefa tíma sinn og vinnu í svona verkefni.
Núna sitjum við á svölunum á yndislega herberginu okkar í Sanur. Þetta er staður sem fjölskyldur og gamla fólkið fer á meðan allt unga fólkið fer til kuta. Það er jafn langt að fara til denpasar en bara austur eða vestur. Við ætlum að eyða helginni hérna áður en við förum til suður afríku!
Á morgun er planaður geðveikur dagur þar sem við förum að snorkla, til turtle island með gler bát, spa, skoða eitthvað hof (ekkert nema heilög hof á balí) og kvöldmat yfir sólsetrinu á ströndinni. Ekki amalegur dagur það! Sunnudagurinn er svo bara planaður hérna í sundlaugagarðinum með tásurnar upp í loftið og á ströndinni :)
Bestu kveðjur frá Bali!
- comments



Gunnhildur Elíasdóttir Þið eruð bara alltaf flottastar.
Helena Arnardóttir Þetta hljómar bara ævintýranlega skemmtilegt og gefandi vinna að vinna sjálfboðavinnu og kenna krökkunum :)
Anna Lóa Þetta hljómar allt svo geðveikt! Vá hvað ég öfunda ykkur :D
Lorvens Psst Terje Psst En liten redigering hadde ve6rt pe5 sin plass Pe5 iadsnlsk gjf8r en forskjell pe5 jente og gutte kje6reste Det du skrev er en skrevet som hunkjf8nn..Hvis du vil ha det riktig se5 er setningen slik: c9g er svo stoltur af af0 vera ke6rastinn feinn da blir det skrevet i hannkjf8nns-form Forf8vrig et veldig sf8tt innlegg Ha en flott dag videre!