Profile
Blog
Photos
Videos
Vá, vorum að lesa yfir bloggin og það er svo margt sem við höfum ekki náð að skrifa. Þið verðið bara að koma í kaffi til okkar og heyra ferðasögur ef þið viljið vita meira - og auðvitað til að skoða myndir því þær munu augljóslega ekki koma hingað inn með þessum aðstæðum. Því miður, allavega ekki fyrr en við komum heim.
Hérna er samt eitthvað sem hefur vantað. Smá brot allavega.
Til dæmis kínverski albínóinn sem við sáum á flugvellinum í hong kong. Vá, það kom okkur á óvart.
*Katcha dansinn sem við fórum á annað kvöldið okkar í Ubud. Eldgamall dans sem þau dansa, dramatískt leikrit eiginlega um konu sem missir manninn sinn. Mjög fyndið, helling af mönnum sitjandi í hring við eld syngjandi "katcha cha cha cha" í tvo tíma og dansandi (það sem okkur fannst allavega vera) skrímsli og apar, prinsessur og bogamenn. Náðum þessu öllu auðvitað á myndband ef einhver vill horfa á það hahah
*spa ferðin í Ubud. Við erum mjög hrifnar af spa og nuddi í þessari ferð okkar hahaha. Mmmm og blómabaðið sem maður fer í eftir nuddið, yndislegt!
*klikkaði haninn sem galar allan sólahringinn í garðinum okkar og er að gera alla brjálaða, meira að segja krakkana í húsi 3 (við vorum í húsi 4). Einn af hönunum sem eru notaðir í hanaslaga höldum við.
*allir á bali eru mjög hrifnir af reggie og síðasta kvöldið okkar fórum við á reggie bar með krökkunum. Allir eru líka mjög hrifnir af local áfenginu Arak en útlendingarnir eru ekki alveg sammála því! Smakkast eins og gamalt brennivín! Hehehe. Það kvöld enduðu samræðurnar einhvern veginn um íslensku jólasveinana, grýlu og leppalúða og jólaköttinn. Ian, enski vinur okkar náði hreinlega ekki að skilja þetta og talaði allt kvöldið um hversu klikkaðir íslendingar eru og hversu hræðileg við værum hahah, honum fannst við vera skemma jólin og hamingjuna með hræðilegum hryllingssögum hahah! Gott video af honum lesa upp nöfnin á jólasveinunum og um þá.
En já, það sem við trúum ekki að við gleymdum í síðasta bloggi voru aðstæðurnar í skólanum sem við vorum að kenna í. Í kennslustofunni okkar, sem var ógeðslega skítug btw, öll út í kóngulóarvefjum og skít, já það er risa gat á veggnum okkar inn í næstu kennslustofu, engin vifta eða nein loftkæling inn í henni, klósettin ógeðsleg og rennandi blaut. Skólalóðin er ekki það sem myndi kallast öruggt umhverfi fyrir börn. Til þess að komast þangað þurfti maður að labba yfir holu á spítu með nöglunum bara hangandi út og krakkarnir hlupu þarna um á tásunum eins og ekkert væri. Það eru svo hundar þarna eins og alls staðar. Einn þeirra er með eitthvað risa stórt sár á löppinni og við getum engan veginn skilið af hverju það er ekki bara svæft hann því það getur ekki verið heilbrigt að láta hann vera í kringum börnin :/ liggjandi í kennslustofunni og eitthvað.
Sátum einn skóladaginn að spá í þessu og hvernig krakkarnir heima þurfa alltaf að eiga sérstaka skó og bestu gerðina. Það er ótrúlegt hvað við höfum breyst og sérstaklega viðhorfin okkar.
Helgin okkar var mjög góð. Splæstum í deluxe herbergi í gamla manna bænum og það var geðveikt! Nutum þess alveg að slaka á þarna síðustu helgina á balí. Fórum í túristaferð þar sem við byrjuðum að snorkla, fórum svo á turtle island þar sem við fengum að sjá risa skjaldbökur og halda á litlum. Fórum svo að skoða hof hérna - ulu watu - og þar voru fullt af öpum útum allt. Á tímabili voru 3 apar á Elísu, einn að reyna naga sig í gegnum töskuna, einn að reyna opna hana og sá þriðji að týna lús úr hárinu hennar hahah! Mjög flott hofið líka, á klettunum á eiginlega syðsta punkti eyjunnar. Eftir það fórum við í spa og það var nú meira djókið. Í þessari ferð er alltaf gert ráð fyrir að við Elísa deilum öllu - rúmi, sæng og allt bara - en þarna var alveg settur punkturinn yfir i-ið. Þær gerðu ráð fyrir að við myndum fara í bað saman! Nei takk, við héldum nú ekki hahaha! Eftir það sátum við á veitingastað á ströndinni og horfðum á sólsetrið. Mjög rómantískur dagur hjá okkur hjónunum heheh!
Eftir heilan dag á sundlaugarbakkanum hófst ferðalagið mikla til afríku með stuttu stoppi í doho, qatar sem er í arabísku furstadæmunum. Þar vorum við sko komnar í sjóðandi heita eyðimörk! Ferðalagið tók alls 36 tíma, 3 flugferðir, ein rútuferð og tvær heimsálfur. Við vorum svo þreyttar þegar við komum loksins til Kwa Madwala í Suður Afríku þar sem við verðum næstu vikurnar. Herbergið okkar er samt geðveikt þótt við deilum því með háværari músafjölskyldu sem skítur út um allt hahaha!
Það sem við höfum helst lært í þessari ferð er að það skiptir engu máli hvar þú ert, hvað þú hefur og aðstæðurnar sem þú ert í ef þú ert ekki umkringdur fólki sem þér þykir vænt um eða allavega finnst skemmtilegt. Við höfum kynnst svo frábæru fólki í ferðinni að það virkilega stendur eftir en ekki hvernig lyktin var í herberginu eða hvernig sturtan var osfrv!
Þessi staður er geðveikur, draumi eða bíómynda líkastur! Við erum reyndar ekki byrjaðar að vinna en vikan hefur verið mjög skemmtilegt. Höfum farið í tvær "fjallgöngur" og skoðað staðinn og útsýnið hérna, bara geðveikt!
Þar sem við erum í þjóðgarði þá eru dýrin bara villt og labbandi útum allt. Allt er læst og maður þarf að passa herbergið sitt og matinn því aparnir læðast inn og ræna öllu. Þeir rústuðu ristavélinni daginn áður en við komum og stálu brauði og snakki frá öllum hahaha. Ekki beint það sem maður er vanur.. Svo eru gíraffar og allskonar dýr bara á röltinu um allt. Svo geggjað!!
Ástæðan fyrir því að við höfum ekki byrjað að vinna er að einn bíllinn er bilaður og svo er sært ljón sem þau eru að leita af svo flestir eru í því og við látin gera eitthvað annað. Fyrsti dagurinn var til dæmis skotæfing... Okkar sérgrein eða þannig hahaha!
Í dag fórum við á munaðarleysingja heimili og það eru bara engin orð yfir það.. Hjörtun okkar brotnuðu algjörlega og við fórum með kökk í hálsinum og tárin í augunum. Þegar við komum tóku þau í okkur og vildi ekki sleppa okkur fyrr en við fórum og það var svo erfitt. Aðstæður og tilfinningar sem er ekki hægt að lýsa í bloggi...
Okkur er svo kalt, það er fáránlegt hahah! Íslendingum kalt í Afríku er svo kaldhæðnislegt hehehe! En mjög heitt á daginn, enn það er enn vetur hérna. Við höfum lækkað okkur um 10 gráður á hverjum áfangastað, úr 38 gráðum í kína í 28 gráður á balí í um 18 gráður hérna. Verður heitara samt með hverjum deginum því vorið er að koma hérna :)
Jæja, langt blogg!! Innilegar afmæliskveðjur til Gunnhildar Bjarkar 11 ára skvísunnar :* kveðjur til allra frá Kína :)
- comments



Anna Lóa Veij komst loksins í það að lesa bloggið ykkar :) Vá hvað ég hlakka til að sjá öll þessi myndbönd og fá útskýringar á myndum og sjá þær myndir sem eru ekki internethæfar :) knús á ykkur ;*
Yadira deetta eru alltaf sktemeilmgar pe6lingar, hvaf0a leikmenn koma??? deved mif0ur er samt yfirleitt megnif0 af feessum fre9ttum slfaf0ur.Varf0andi fee1 leikmenn sem nefndir eru fee1 ledst me9r best e1 Simao og Zebina. deetta eru leikmenn ed toppklassa, feeir eru af0 spila mef0 sterkustu lif0um cdtaledu og Portfalgals, fe.e. eru feegar af0 spila e1 he6sta leveli og vita feved hvaf0 fearf til af0 ne1 e1rangri. Mjf6g ledklegt af0 hugafarif0 se9 re9tt, eins og Benitez leggur MIKLA e1herslu e1.EN hvaf0 Pennent varf0ar fee1 hefur se1 drengur kollinn EKKI ed lagi, feaf0 er ekki re9tt af0 hann hafi bara verif0 til vandre6f0a utan vallar, heldur me6tti hann fullur e1 e6fingu hje1 Birm ed vetur og var rekinn heim. Hljf3mar eins og ne6sti Best nema bara mf6rgum klf6ssum le9legri leikmaf0ur. deved get e9g ekki se9f0 afhverju Pennant sem er ekki gf3f0ur atvinnumaf0ur, e6tti af0 koma feegar Beinitez talar um af0 se1 leikmaf0ur sem hann leitar af0 verf0i af0 vera gf3f0ur atvinnumaf0ur og mef0 kollinn ed lagi. Gefur meistara Benitez orf0if0: defa veist kannski af0 einhver se9 gf3f0ur leikmaf0ur en maf0ur verf0ur ledka af0 fre6f0ast um persf3nuleika feeirra og hversu gf3f0ir atvinnumenn feeir eru. c9g vissi af0 Pepe ve6ri mjf6g je1kve6f0ur af0 ef0lisfari og af0 Momo myndi leggja hart af0 se9r. He9r hittir Paco Ayesteran he6gri hf6nd Rafa Benedtez ed mark: Hann er greinilega maf0ur mef0 metnaf0 og telur af0 lif0if0 feurfi enn meiri be6tingu og af0 lif0if0 Bc6TI VId0 SIG ENN BETRI leikmf6nnum . (far vif0tali e1 liverpool.is)c9g er ekki samme1la feved af0 kaupa leikmenn e1 bekkinn til af0 auka breiddina. Sfa speki hefur nfa ekki reynst okkar lif0i vel sedf0ustu e1rin. Hver man ekki eftir samansafninu af mef0almf6nnum undir lok Hfalla tedmabilsins. deaf0 me1 ekki gerast aftur, og til af0 svo verf0i fee1 e1 LFC af0 kaupa ge6f0a leikmenn, helst leikmenn sem eru betri en feeir sem fyrir eru hje1 lif0inu(ed feeirri stf6f0u sem vif0 e1).Ef menn lesa vif0tf6l vif0 gf6mlu meistarana fee1 var se1 hugsunarhe1ttur til staf0a he9r e1f0ur fyrr (af0 kaupa jafna gf3f0a ef0a betri leikmenn en fyrir voru hje1 LFC). deetta jf3k e1 samkeppnina um se6ti ed lif0inu, sem skilaf0i se9r ed framff6rum hje1 leikmf6nnum og frekar mf6rgum titlum.Annars treysti e9g Benitez og hans mf6nnum alveg 100% fyrir feessu, mif0af0 vif0 kaupa sumarsins fee1 eru fatsendarar okkar af0 skila gf3f0ri vinnu.Kvef0jaKrizzi 0