Profile
Blog
Photos
Videos
Þá erum við í rútu á leiðinni til Jóhannesborgar. Búnar að eyða tveim æðislegum vikum í kwa madwala. Það var svo erfitt að kveðja alla og okkur langaði ekkert að fara héðan. Klárlega sá staður sem var erfiðast að fara frá og stelpurnar sem við kynntumst þarna voru svo æðislegar, söknum þeirra strax!
Hvað erum við búnar að vera gera þarna? Fyrstu dagarnir voru alveg í ruglinu því við lentum á síðustu dögunum hjá hóp og við gerðum í raun ekkert af því sem við áttum að gera. Fórum í fjallgöngu, "klettaklifur" og heimsókn á munaðarleysingjarheimili eins og við nefndum í síðasta bloggi. Fórum til Nelspruit sem er stærsta borgin á þessu svæði.
Eftir að nýji hópurinn kom þá varð allt svo miklu skemmtilegra. Þau voru mjög hress og Carly, sú sem vinnur þarna og sér um hópana ættleiddi okkur bara. Hún er svo yndisleg og við eigum eftir að sakna hennar mikið! Um næstu helgi munum við gista heima hjá henni, hún og kærastinn hennar reka backpackers og búa þar. Algjör snilld og svo mun hún koma til Cape Town í lok ágúst og þá munum við hitta hana aftur :) vildum að við gætum hitt hinar stelpurnar líka :/ en það verður bara a reunioni einhvern tímann hehe.
Við byrjuðum líka að vinna eitthvað eftir að þau komu. Þrífa hesthúsin og elephant camp á morgnana fyrir morgunmat. Er til betri leið til að byrja daginn heldur en að moka fílaskít? Í hesthúsunum eru líka tveir sebrahestar svo það var frekar töff, fengum að gefa þeim að borða. Eftir morgunmat var það yfirleitt vegavinna og höggva niður tré, helvítis gaddavíra tré útum allt! Maður lítur út eins og ljón hafi ráðist á mann eftir þessi tré! Við löguðum líka girðingar og fylltuk upp í holur eftir veiðiþjófa til að reyna stoppa þá.
Það sem okkur fannst samt vera besta vinnan og skipta mestu máli var anti-poaching göngurnar. Þá löbbuðum við og söfnuðum snörum sem veiðiþjófar hafa komið fyrir. Við bættum metið um daginn þegar við söfnuðum 50 snörum - eða björguðum 50 dýrum :) í eitt skiptir fundum við lifandi impala fast og náðum að bjarga lífi þess. Annars vorum við alltaf of sein og sáum mörg sem höfðu lent í snöru og veiðiþjófarnir búnir að taka allt kjöt í burtu. Þar sem við erum að taka þátt í leopard prjoect þá lærðum við aðeins um þá og fórum og settum upp beitu fyrir þá. Það er verið að reyna lokka þá inn á svæðið og sýna þeim að það sé öruggt svæði. Það var í einu orði ógeðslegt. Elísa náði því öllu að sjálfsögðu á myndband svo þeir sem vilja geta skemmt sér yfir því. Því miður er þetta ekki alveg að ganga hjá þeim og yfirleitt ná ljónin eða hrægammarnir beitunni. Við horfðum upp á það gerast, ógeðslega margir hrægammar að gæða sér á fínu beitunni okkar sem við eyddum öllum deginum að gera.
Eftir hádegi var eitthvað skemmtilegt gert. Oftast game drive þar sem við sátum í opnum safari bíl að keyra um svæðið og skoða dýrin. Það er alveg fáránlegt hversu algengt það var að sjá öll þessi dýr. Einn daginn löbbuðum við út úr herberginu okkar og það voru 5 gíraffar þar, ekkert venjulegra. Einn daginn lágum við í sólbaði og það komu nokkur villisvín bara á röltinu. Seinna þá voru gíraffar líka í king fisher þar sem hópurinn svaf og einn daginn komu villisvínin alveg inn í "eldhús" þegar við vorum að borða hádegismat. Eitt kvöldið komu 5 fílar í king fisher og voru þar. Oh hvað maður á eftir að sakna þess að vera þarna! Við eigum þó ekki eftir að sakna apanna og bavíana sem eru ansi duglegir að rústa eldhúsinu okkar og éta matinn okkar! Einn daginn tókum við 3x til eftir þá og í dag voru þeir búnir að rústa öllu gjörsamlega og skíta í sófana og upp á borðin! Yndislegir alveg..
Meira skemmtilegt sem við gerðum? Förum á fílsbak og lékum við þá. Fórum á hestbak, fórum í einn dag til Kruger sem er líka svona dýraverndunar svæði nema bara mikið mikið stærra og með mun fleiri dýrum. Helsta ástæðan fyrir því að við fórum var til að sjá einhverja af kattartegundunum en sáum því miður enga. Við keyrðum hinsvegar inn í risa buffalo hjörð með nokkrum nashyrningum svo það var mjög töff. Kwa madwala er nefnilega ekki með buffalo og við höfðum á þeim tíma ekki enn séð nashyrningana þeirra. Við fórum líka í night drive og þá náðum við loksins að sjá ljón. Við vorum byrjaðar að halda að þau væru bara myth eða túristalygi þarna! Við áttum að fara í microlight safari líka í morgun en flugmaðurinn komst ekki svo við gátum það ekki, eða svo segja þau. Við vorum alveg hættar að trúa því sem yfirmennirnir þarna sögðu og tímasetningar eru líka ekki virtar hérna, langt því frá! Þegar við kvörtuðum við þau þá gáfu þau okkur klst nudd til að þagga niður í brjáluðu íslendingunum hahah.
Um helgina var blessaða brúðkaupið loksins. Það er allt búið að vera í ruglinu útaf þessu brúðkaupi frá því að við komum. Okkur var auðvitað hent út úr herbergjunum okkar og sett í tjald við hesthúsin. Við bókstaflega sváfum tvær nætur í fílaskít og nokkra metrum frá fílunum. Fílar eru ekki skemmtilegir herbergisfélagar, þeir reka við alla nóttina og hávaðinn í þeim hahah! En gaman að geta sagst hafa sofið með fílunum! Við vorkennum þeim samt svo. Þetta eru tveir fílar sem þau hafa bjargað en svo eru nokkrir villtir hérna líka. Á föstudagskvöldinu komu villtu fílarnir að svæðinu og annar heyrði í þeim, hún snappaði og hlaup niður símastaur. Mjög hughreystandi þegar maður þarf að sofa í tjaldi hliðin á þeim! En við gerðum helgina skemmtilega og héldum okkar eigin olympíuleika og skemmtum okkur vel með yndislega fólkinu í hópnum okkar :)
En þetta er búið að vera svo ógeðslega gaman og maður á eftir að sakna þess mikið að vera þarna, sjá dýrin í sínu eigin umhverfi, borða kvöldmat við varðeldinn á hverju kvöld, vera alltaf ógeðslega skítugur og skrámugur, Danielle guidsins okkar og allra í hópnum okkar, sérstaklega Carly, Marissu og Kaylu.
Við erum búnar að plana næstu viku aðeins. Förum strandlínuna til cape town, stoppum a 4 stöðum á leiðinni og verðum komnar þangað á sunnudaginn svo byrjar verkefnið á mánudaginn. Það sem þessi ferð er búin að líða hratt! Aðeins 3 vikur þangað til við lendum í Keflavík!
Jæja, bestu kveðjur frá afríku!
- comments



Hanna Fríður Stefánsdóttir Það er svo gaman að lesa bloggið ykkar. Þetta er algjört ævintýri.
Anna Lóa Vá hvað ég skellti oft upp úr við að lesa þetta :) ..algjört æði! Haldið áfram að njóta lífsins í drasl - ótrúlegt að það séu bara 3 vikur eftir. Hlakka rosalega að fá ykkur heim ;*