Profile
Blog
Photos
Videos
Jæja, þá erum við búnar að vera hérna í næstum viku og rúmlega vika þangað til við förum heim til íslands.
Í síðustu viku eyddum við rúmlega 50 tímum í rútu. Stoppuðum eina nótt í jóhannesborg, gistum á backpackers sem var bara heima hjá gömlum hjónum. Næstu nótt gistum við á backpackers í Durban. Þaðan fórum við til Coffee bay en misstum eiginlega af öllu þar því rútunni seinkaði um 3 tíma, vorum frekar fúlar yfir því en gerðum það besta úr ferðinni þangað. Það fara víst allir sem ferðast hingað þangað, enda fallegur staður og margt hægt að gera þar. Þaðan þurftum við svo að taka aðra rútu til Jeffrey's bay því hin gekk ekki á góðum tíma. Vorum samt komnar þangað líka alltof seint því enn og aftur var um 3 tíma seinkun á rútunni. Áttum samt góðan dag þar síðasta laugardag, chill á ströndinni þar sem Elísa meðal annars hrundi í sjóinn í öllum fötunum hahah! Við gistum á backpacker sem vinkona okkar Carly á þar og það var svo kósy! Leiðinlegt að hún hafi ekki getað verið þarna með okkur..
Hérna í cape town áttum við fyrsta daginn frí og byrjuðum svo verkefnið daginn eftir. Það er nú varla mikið sem við gerum, fórum með krakkan bara á mcdonalds því veðrið er búið að era svo ömurlegt, enda vetur hérna. Daginn eftir fórum við með aðeins yngri krakka í sundlaug til að athuga hvort þau kunna að synda en þau kunna ekkert þessir krakkar svo það þarf að kenna þeim alveg frá grunni. Daginn eftir það fórum við með eldri krakka á ströndina og þau fengu að fara aðeins í sjóinn, ekki að surfa samt eins og verkefnið á að vera um því við kunnum það ekki og ekki þau heldur! En við eigum samt að vera kenna þeim það... Erum að sjá núna að þetta verkefni er meira bara að vera með þeim og gera eitthvað svo þau fari ekki og lendi í ruglinu. Næsta vika verður samt meira að gera eitthvað og undirbúa þau fyrir sumarið og þá byrja þau að sörfa og svona.
Það er samt mikið fjör hérna, fullt af sjálfboðaliðum og alltaf eitthvað að gerast. Í gær fórum við í vínsmökkun á fimm vínekrur, það tók allan daginn og var mjög skemmtilegt, góð vínin héðan!
Áttum í dag að fara í shark cage diving en þar sem veðrið var svo ömurlegt var ekki farið, förum næst þegar veðrir leyfir, algjört must do hérna! Í staðinn fórum við í stærsta mall í cape town..
Hlökkum til síðustu vikunnar hérna!
- comments



Anna Lóa Njótið síðustu vikunnar ykkar :) Hlakka svo endalaust að fá ykkur heim :D