Profile
Blog
Photos
Videos
Þá er kína ævintýrinu okkar lokið og er Balí næst á dagskrá með stoppi í eina nótt í hong kong fyrst. Ef við komumst einhvern tímann þangað! Föstudagurinn 13 svo sannarlega! Við sitjum hérna á flugvellinum og það er seinkun á fluginu. Fyrst var því cancelað og við þurftum að kaupa nýtt hjá nýju flugfélagi og svo núna seinkun á því! Við erum nú þegar leiðar að hafa ekki komist fyrr af stað því það hefði verið gott að geta eytt allavega smá tíma í hong kong, en við erum með einn stað sem alveg nokkrir mældu með og sögðu að það væri best að skoða á kvöldin.
Besta ákvörðun sem við höfum tekið í ferðinni var að fara aftur til Fengyan. Allir voru svo ánægðir að fá okkur aftur og það var mjög gott að koma, sem kom okkur á óvart! Aðstæðurnar auðvitað bara þær sömu og við höldum að það sé ekki hægt að lýsa því almennilega en sem dæmi þá varð bakpokinn hennar Sóleyjar eftir í ruslinu því hann myglaði í rakanum sem var í herberginu okkar! En þau gerðu sitt besta að hafa eitthvað fyrir okkur að gera á daginn. Á mánudaginn heimsóttum við lítið þorp og skoðuðum lotus blóma akur og veitingastað sem er inn í helli. Á þriðjudeginum fórum við út að borða í bæ sem er sirka 40 mín akstur frá Fengyan og sátum svo við ánna þar og nutum dagsins. Á miðvikudeginum fengum við að kynnast lífi fólks í Fengyan. Prófuðum að búa til eldivið og fara út á akur að týna skemmda ávexti. Á fimmtudeginum heimsóttum við það sem myndi líklegast kallast heima frístundarheimili, þar voru um 20 krakkar að læra ensku. Þau fengu að spyrja okkur ýmislegt um okkar líf og land því markmið greenway china er að opna hugann hjá börnum og sýna þeim að heimurinn er stór og ólíkur því sem þau þekkja. Ensku kunnáttan sem þau fá er í raun bara bónus. Við fórum líka í heimsókn til eldri manns sem sagði okkur frá sögu þorpsins og hússins sem við gistum í.
Ferðin á veitingastaðinn var þvílíki brandarinn! Okkur var svo heitt að eina skilyrðið sem við settum var AC. Við hefðum nú betur sett fleiri því annað eins ógeð höfum við sjaldan séð! Og þetta átti að vera fínn veitingastaður!! Við fengum heilan kjúkling, með höfðinu og öllu saman, vantaði bara fjaðrirnar. Klærnar komu svo í súpunni! Við og svisslenska stelpan sprungum úr hlátri og móðguðum kínverjana :/ hrísgrjónin sem fylgdu voru soðin upp úr kranavatninu og það var ógeðslegt bragð af þeim. Eftir þetta höfðum við ekki lyst á meiru. Við erum samt búnar að læra miklu meira um lífið, menninguna og landið í þessari viku heldur en síðustu bara með því að fara og gera allt þetta. Við vorum líka alveg hreinskilnar og sögðum þeim sem eru yfir það.
Það sem var samt besta við þessa viku voru sætu krakkarnir okkar. Við vorum að kenna 12 og 13 ára krökkum ensku og þau voru svo æðisleg! Hverjum datt samt í hug að láta okkur kenna þeim ensku? Komumst að því að við kunnum hana varla sjálfar hahah! En aðalmálið var að leika við þau og hafa gaman. Sem við gerðum svo sannarlega. Þegar okkur var líka sagt frá uppeldinu og meðferðinni sem þau fá brotnuðum við alveg. Eitt bros til þeirra er meira en mörg fá og þau eru vön að það sé lamið þau ef þau sitja ekki rétt í skólanum. Ekki vön að kennarar gefi þeim hrós eða neitt og við gerðum ekkert nema hrósa þeim og gefa þeim high five. Það sem manni getur þótt vænt um þau eftir bara aðeins eina viku. Það var svo erfitt að labba út úr stofunni og kveðja þau í gær en við munum hitta annan hóp á balí og enn annan í suður afríku svo vonandi getur maður gert eitthvað gott þar líka. Okkur langaði samt að vera áfram hérna með þeim.
Sóley átti afmæli í gær og auðvitað var haldið upp á það. Risa afmæliskaka og afmælissöngurinn sunginn á alltof mörgum tungumálum. Svo var sungið, dansað og skemmt sér. Mjög góður afmælisdagur sem seint mun gleymast! Svo ætlum við að splæsa í góða máltið í kvöld í hong kong í tilefni dagsins. Vonandi verða aðeins almennilegri veitingastaðir þar sem við ætlum að fara heldur en við höfum farið á í Kína! Það var svo erfitt að kveðja alla og hélt Charlie, besti vinur okkar hérna (66 ára btw) ótrúlega hjartnæma ræðu. Við eigum klárlega eftir að sakna hans mest af öllum og yndislegu konunni hans.
Elísa fékk bit sem henni þótti ekki alveg líta út eins og moskítóbit og við nánari skoðun var þetta bit eftir skógarmýtil. Núna er hún skíthrædd því henni var ráðlagt frá því að bólusetja sig gegn honum því það væri svo dýrt. Góður læknir eða þannig því Sóley lét bólusetja sig gegn honum og var það alls ekki dýrt! Núna er reyndar handleggurinn á Sóley allur að bólgna upp og lítur líka út eins og mýtilsbit. Einn sagði að þetta væri líklega kóngulóarbit :/ Svo er Elísa með einhverja furðulega punkta á hendinni sem hún er búin að hafa í einhvern tíma en virðist vera að breytast eitthvað núna hahaha við erum alveg með þetta! Út ètnar! Kínverjarnir eru nú stórskrítnir þegar kemur að þessum skordýrum. Þeim datt í hug að taka risa skordýr, sem við vitum ekki einu sinni hvað er, lítur út eins og ofvaxin fluga eða kakkalakki með vængi og gefur frá sér fáránleg hávær hljóð, og setja það í band og leika sér með það. Við héldum fyrst að þetta væri leikfang en neinei, alvöru skordýr í bandi!
Hitinn er búinn að vera alltof mikill, það er ólíft úti. Við verðum að vera með regnhlíf til að hlífa okkur frá sólinni og ekki sens að setjast út í sólbað! Reyndum það en gáfumst upp eftir nokkrar mín, stéttin var að brenna okkur í gegnum teppin og handklæðin og við bókstaflega að steikjast!! Elísa er líka svo orðheppin að hún sagðist þurfa hattinn sinn flotta til þess að láta ekki gufa upp úr hausnum á sér! Hahahah En jæja, maður trúir því ekki að þessi partur ferðalagsins sé búinn og við séum að fara frá kína! En hlökkum mikið til fyrir restinni :)
- comments



Sigga Hljómar eins og svaka partý! Allskonar skordýr, mygla og hiti ;)
Anna Lóa Yndislegt að lesa þetta og ég get alveg lifað mig inn í þetta hjá ykkur, þó svo að það sé ótrúleg tilhugsun að þið séuð þarna að gera alla þessa ótrúlegu hluti. Skemmtið ykkur ótrúlega vel og það var gaman að fá blogg þó það væri gamalt ;)