Profile
Blog
Photos
Videos
Elísa & Sóley
Enn eitt rútubloggið hjá okkur hérna í kína.
Byrjuðum helgina á rölti í gongchen og skoðuðum tvö hof þar. Það er stærsti bærinn nálægt okkur og við getum líklegast beðið Mr. Mong (bílstjórann okkar) um að skutla okkur þangað í vikunni ef okkur langar. Helgin í Yangshuo var mjög fín, þetta er svo fallegur staður (eins og allir sem við höfum farið á)! Við vorum nú ekki vissar hvort við ætluðum að fara til baka aftur eftir helgina en erum búnar að ákveða að fara. Augljóslega fyrst við erum í rútu á leiðinni "heim" til Fengyan. Þegar við mættum hingað byrjuðum við á því að týnast, ekki við samt heldur kínverska stelpan sem kom með okkur (fórum allar sem erum í sjálfboðaliðastarfinu). Ekkert skrítið því hostelið okkar var inn í pínulítilli götu sem var mjög erfitt að spotta inn á milli allra búðana. Það var nú meira ruglið þetta hostel! Við báðum um einkaherbergi og það var bara til með einu rúmi, stóru lofuðu þau. Við borgum og púluðum upp 4 hæðir með allt draslið okkar, opnum herbergið (sem var hliðin á eldhúsinu) og fengum kast! Þetta pínu litla herbergi og jújú, rúmið var alveg tvíbreytt en dýnan ofan á því ekki! Við þökkuðum bara pent fyrir, heimtuðum peningana aftur til baka og leituðum af betra hosteli. Fórum þá fyrst og skoðuðum herbergin og note to self: alltaf að gera það áður en maður borgar! Okkur leið eins og við værum í íbúðaleit en fundum svo eitt í sömu hliðargötu sem var mjög fínt. Á okkar standard eftir síðustu viku þá var þetta 5* hótel! Hinar stelpurnar færðu sig líka á þetta hostel daginn eftir. Um kvöldið fórum við á roof barinn á hostelinu, sem hefur klikkað útsýni og þaðan á ktv bar. Við vissum ekkert hvað það var en héldum að það væri ósköp venjulegur karioki bar (sem Sóley var nú ekki hoppandi kát yfir). Við fórum svo inn í eldspítu búð og þaðan í gegn á staðinn. Við vorum þá vissar um að nú væri sko verið að draga okkur inn í eitthvað kínverskt hóruhús og fór að renna tvær grímur á okkur allar! Við löbbuðum upp stiga og sáum að þetta voru allt upplýst rauð herbergi og blár gangur og sannfærðumst enn meira um að við værum staddar í hóruhúsi en ekki á kariokibar! En svo var okkur vísað í herbergi og þá var þetta kariokibar en maður leigir herbergi, fær bjór og einhvern mat og getur sungið að vild! Okkur leist nú ekkert á þetta og forðuðum okkur. Kínverjar eru smekklausasta fólk sem við höfum hitt, með áherslu á það í sambandi við tónlist! En á laugardeginum fögnuðum við með ristað brauði og eggi, en við höldum að það hafi verið of mikið fyrir magann okkar sem er orðinn vanur hrísgrjónum og engu öðru en hrísgrjónum. Fórum á bamboo bát niður Lijiang River sem er svo ótrúlega falleg! Mælum með að þið googlið hana, svo ættu að koma myndir inn bráðum. Þar vorum við í einn og hálfan tíma og þetta var algjört æði :) Um kvöldið vorum við bara á röltinu þegar við ákváðum að við gætum nú eiginlega ekki farið til kína og ekki keypt okkur kínverkst nudd, happy ending væri bara bónus með ;) þetta var nú fínasta nudd og mjög afslappandi, við héldum nú aftur að við værum komnar inn í hóruhús (kannski búnar að horfa á of margar bíómyndir, lesa of margar bækur og heyra of margar slæmar reynslusögur) en þetta var bara heima hjá einhverjum höldum við. Við ákváðum líka að splæsa í great wall rauðvín og það var alveg jafn slæmt og það hljómar! Við erum líka orðnar snillingar í prútti og náðum okkur í nokkra fína minjagripi :) Elísa splæsti til dæmis í þessa fínu flautu, Sóley er reyndar ekki sammála um að hún sé svona fín eins og Elísa heldur og mun reyna láta hana hverfa eins fljótt og hægt er! (Sóley: trúið mér, þið verið mjög fegin ;)) Við vildum njóta loftkælingunnar eins lengi og við gætum, tölum nú ekki um hreinu rúmin áður en við færum aftur til Fengyan. En vonandi verður vikan skemmtileg hjá okkur, verðum að kenna 6-12 ára krökkum ensku á morgnana og höfum restina af deginum frí. Þau ætla að reyna útbúa eitthvað fyrir okkur að gera, ferðir og annað :) svo á Sóley afmæli á fimmtudaginn svo vonandi verður stuð í húsinu þá ;) Sendum kæra kveðju heim, endiega kommentið :)- comments



Svanfríð D. Línad gangi ykkur vel í kennslunni ,,, hahaha stórt rúm já en ekki stór dína, díses :) :*
Anna Lóa Ég er alltaf í kasti þegar ég les þetta hjá ykkur :) Aðeins of ótrúlegt að reyna að tengjast því að þið séuð virkilega að upplifa þetta allt sem maður sér á myndum og er að lesa. Knús á ykkur hérna úr viðburðalausa Þýskalandi ;*
Gústa Þetta er greinilega heilmikið ævintýri, gaman að fylgjast með ykkur og gangi ykkur rosa vel:-)
Ruth JæJ, loksins erum við komin úr ferðalaginu og er búin að lesa yfir öll bloggin ykkar. Æðislegt að geta fylgst með.
Katrín Erna Gaman að fylgjast með ferðum ykkar og öllu þessu skrítna sem kemur upp á. Ég verð fasta gestur hér :D
Hanna Fríður Það er svo gaman að lesa bloggið ykkar og fá að fylgjast með ævintýrunum sem þið lendið í. Gott hjá ykkur að gefast ekki upp og fara til baka til Fengyan. Þetta er lífsreynsla sem gaman verður að rifja upp seinna. Kv. frá Akureyri
Sigga hahaha svo týpískt að þið eigið eftir að enda á hóruhúsi og nuddi með happy ending þegar þið eigið síst von á því!! ;)
Pálína Finnst svooo gaman að lesa bloggin ykkar! ;) þó að þetta séu ekki bara frábærar upplifanir, en það gerir þetta bara enn eftirminnilegra!
María Frábært að fylgjast með ykkur svöngu ævintýra-prinsessur. Innelegar afmæliskveðjur til þín elskur Sóley.