Profile
Blog
Photos
Videos
Jæja! Þá sitjum við í sólsetrinu á húsbarnum í fengyan. Við erum staddar í heimi sem við gerðum okkur ekki grein fyrir að væri til. 400 manna fátækra þorp í kína og með áherslu á fátæku! Það fyrsta sem við sáum þegar við komum var kakkalakki í rúminu. Elísa var þá að sjá kakkalakka í annað sinn á ævi sinni. Góð reynsla þar ! Fúkka lyktin inn í húsinu er alveg yfirgnæfandi og rakinn hérna er svo fáránlegur að það er ekki hægt að lýsa því. Allt er blautt, pappírarnir í bókunum eru rakir og myglusveppur í koddunum okkar.
Krakkarnir hérna eru samt fínir. Það eru 5 kínverskir krakkar hérna sem eru í internship hérna og eru svona að sýna okkur allt og kenna okkur. Svo er ein Hollensk stelpa hérna, ein frá sviss og ein frá bretlandi. Við vorum nú að vona að það yrðu einhverjir strákar hérna... En jæja, fullt hús af stelpum og einn mjög stelpulegur kínverji verður að duga!
Það er eitt sem við vissum ekki alveg er að þetta er rosalega mikil kennsla, við erum að læra kínversku og um menninguna. Við vissum ekki að við værum að fara eyða vikunni inn í "kennslustofu" að læra svo við erum búnar að vera ömurlegu fúlu bitru og leiðinlegu gellurnar alla vikuna en við bara meikum ekki þessa kennslu. Glampandi sólskín og 33-36 gráður úti og við sitjandi inni í kennslutíma! Ekki sáttar við það og töluðum líka við þau sem eru yfir þetta í dag.
Þetta eru þvílíkar kennslustundir. Ekta kínverskir tímar þar sem maður þarf að gera allt fullkomið. Á fyrsta degi, mánudaginn, lærðum við stafróið og framburðinn. Við vorum að vera gráhærðar því þetta eru bara ekki hljóð sem við getum borið fram og Sóley heyrir nákvæmlega engan mun á sumum orðunum eða stöfunum og þær gerðu sér nákvæmlega enga grein fyrir því fyrr en í gær þegar við fórum að kenna þeim íslensku og þær gátu ekki heyrt muninn á kúka gúrku hahahah. Auðvitað kenndi Elísa þeim líka að segja "sjitturinn titturinn hóran og mellan" og það er nú helvíti góð skemmtun að heyra kínverjana segja það!
Svo eru búnir að vera tveir menningartímar og seinasti er á morgun. Þeir eru líka svo kenndir vitlaust, sitjandi inni í sjóðandi herbergi og við sögðum við þau sem eru yfir að það væri mun betri leið að gera bara hlutina, rölta um og sjá allt saman. Svo var söngtími þar sem við sáum eina stelpuna spila á eldgamalt kínverskt hljóðfæri og lærðum kínverskt þjóðlag. Eða við, Sóley fékk panic attack þegar þau sögðu að við þurftum að syngja ein í einu, ekki alveg hennar te bolli.
Við höfum líka lært allskyns frasa sem eru nytsamlegir. Lærðum að kaupa grænmeti og prútta. Svo var farið með okkur á local markað til þess að prófa versla grænmeti. Þessi markaður er eitthvað sem við höfum ekki upplifað áður. Lyktin þarna inni ólýsanleg, flugurnar út um allt og svo er kjötið og grænmetið bara þarna allan daginn á ógeðslega skítugum bekkjum, sölumennirnir reykjandi ofan í það og móturhjólin spænandi upp ryk og drullu. Fiskarnir eru í "baði" þarna upp úr kranavatni, svo veliru þér bara og hann er slátraður fyrir framan þig. Núna skiljum við af hverju sjúkdómar koma oft héðan, af hverju allt grænmeti er soðið en ekki ferskt og af hverju nánast allir útlendingar gerast grænmetisætur hérna! Við erum klárlega einar af þeim og guð sé lof fyrir herbalife næringadrykkina sem við komum með okkur! Við fáum 3 máltíðar á dag hérna en ekkert þar á milli og það er ekki búð hérna eða neitt svo við erum búnar að vera svangar alla vikuna.. Hrísgrjón í morgunmat, hrísgrjón og núðlur í hádegismat og hrísgrjón og grænmeti í kvöldmat. Ef kílóin fjúka ekki af okkur hérna þá vitum við ekki hvað þarf til þess!!
Fyrsta kvöldið hérna var kynning þar sem við löbbuðum um þorpið og lærðum aðeins um það. Svo var okkur boðið í 10 ára afmæli hjá stelpu sem býr við hliðin á okkur. Við fengum algjört menningarsjokk þar! Að fólk skuli búa svona enn í dag er bara ótrúlegt. Myndin á blogginu er þaðan. Getum ekki lýst því með orðum, vonandi getum við sett myndir bráðum.
Hérna hvíla allir sig eftir hádegi alveg til hálf 3. Á meðan höfum við gert eitthvað í staðinn. Til dæmis hjóluðum við aðeins um og skoðuðum, fórum í fyrradag að synda í lítilli tjörn sem er rétt hjá okkur. Í hana rennur vatn úr fjöllunum. Þarna baða þorpsbúar sig og konurnar þvo þvottinn. Alltaf fullt af krökkum þarna að leika sér og klikkar ekki að allavega ein kona situr að þvo sænguver. Við höfum líka verið að fara þangað eftir mat öll saman að fíflast eitthvað. Í gær gerðumst við Elísa ofurhugar og stukkum ofan í tjörnina úr tré sem er yfir henni.
Á þriðjudaginn fórum við í annað þorp hérna rétt hjá og löbbuðum upp eitt fjallið. Þvílíkt fallegt útsýnið þar yfir! Þetta hérað er bara aðeins of fallegt. Eftir það fórum við niður að á og leigðum bamboo bát. Þar sigldum við niður og nutum dagsins, algjör snilld.
Það er líka búið að vera glampandi sólskín frá því að við komum og í kringum 33-35 gráður.
Við fórum líka í fyrradag í heimsókn til fjölskyldu hérna í þorpinu og lærðum að búa til oil te, en það er local te sem er gert með sérstökum hætti hérna. Sóley fannst það algjör viðbjóður en Elísa var hrifin af því. Eftir nokkrar skálar var hún samt viss um að það væri eitthvað sterkt leyniefni í því og kínversku stelpurnar sögðu að sumir yrðu fullir af því.
Þrátt fyrir allt þetta þá erum við ekki alveg sáttar hérna. Við erum alltaf svangar og getum ekkert gert í því. Við erum einu sem erum ekki með tölvu og allir virðast bara hanga í sínum og kínverjarnir eru altaf að læra. Það er ekki loftkæling í húsinu svo herbergið okkar er að úldna í sundur, rúmið og lakið svo blautt að Elísa stakk upp á always ultra rakabindandi dömubindi til að hreinsa það og koddarnir. Guð minn góður koddarnir, blautmyglaðir og ógeðslegir!!
Elísa fann uppáhaldsstaðinn sinn í húsinu eftir að breskur maður sem er yfir verkefninu sýndi henni að það er hægt að opna einkabar á neðri hæðinni þegar maður vill. Svo er bara sjálfsafgreiðsla og Elísa er búin að gera sig mjög heimakæra þar ;)
Þar er Mahjong borð og við lærðum eitt kvöldið að spila mahjong á hendi. Það er aðeins mikið meira öðruvísi en í tölvu og við ætlum klárlega að finna minni gerðina og koma með heim.
Föstudagurinn 6/7
Við sitjum í rútu á leiðinni til yangshou (??) þar sem við verðum um helgina. Við tókum allt dótið okkar með því við erum ekki alveg vissar um hvort við viljum fara aftur eftir helgina. Aðstæðurnar þarna eru ekki eins og við bjuggumst við og við erum orðnar þreyttar á að vera alltaf svangar, finnast ógeðslegt að fara sofa og sofa mjög illa. Svo erum við búnar að gera allt sem okkur dettur í hug að gera þarna og vitum ekkert hvað við getum gert í næstu viku. Svo eru líka hinar stelpurnar að fara í annað verkefni á öðrum stað, þær munu ekki koma aftur til Fengyan eftir helgina. Við höfum helgina til að ákveða okkur.
Bloggum aftur eftir helgi með update um hvað við ætlum að gera, kveðja horköggull og moskítóhlaupabóla
- comments



Gunnhildur Elíasdóttir Þið eruð bara SNILLAR....
Hafrún Pálsdóttir Þetta er ótrúlega lífsreynsla hjá ykkur stelpur, gangi ykkur vel með framhaldið! Takk fyrir að lofa okkur að fylgjast með. :-)
Svanfríð D. Línad. gaman að fá fréttir af ykkur, þetta á örugglega eftir að verða betra . Gangi ykkur vel :*
Anna Lóa Vá hvað þetta er allt ótrúlegt!! Njótið þess í drasl að vera að upplifa þetta og vá hvað það verður gaman að fá ykkur heim og fá margar klst fyrirlestur með myndum um allt sem þið eruð búnar að sjá, gera og læra :)
Iglesia deetta er mikif0 re9tt hje1 fee9r .. en breytast ekki fodnesrur bre1f0lega ledkt og fefa segir ... sem gerir fee1 feessi skrif feedn farelt sem tapaf0 me1l og jafnre9ttis stredf0 ?Velkomin aftur ed bloggheima. Valur Geislaske1ld