Profile
Blog
Photos
Videos
Jæja þá erum við komnar til Guilin þar sem sjálfboðaliðastarfið okkar er rétt hjá. Þetta er fyrir okkur paradís! Þvílíkur staður og þvílík fegurð!
Við erum búnar að eyða tveimur dögum í Beijing, tveimur viðburðaríkum dögum vægast sagt!
Þegar við lentum vissum við ekkert út í hvað við vorum að fara. Byrjuðum á því að fara í sitthvora lestina því Sóley stakk af óvart, eða Elísa var of sein að hlaupa ;) En það var ekki eina sem við lentum í bara á flugvellinum því þegar við fórum út stóðu tveir kínverskir menn með nöfnunum okkar að sækja okkur. Og Sóley hafði virkilega áhyggjur að enginn myndi sækja okkur og við værum bara fastar þar! En þessir ágætu menn kunnu nákvæmlega ekkert í ensku svo við stóðum þarna og hlustuðum á þá hringja út um allt og rífast um hvor fengi að vera svo heppinn að fá að keyra okkur ;) Þetta var sem sagt maður frá hótelinu og hinn var frá ferðaskrifstofunni sem við höfðum bókað dagsferðir hjá. Þetta endaði þannig að ferðaskrifstofu gaurinn var svo heppin að fá okkur með sér og hinn fór heim í fýlu ;)
Við fórum með honum að ná í leiðsögumanninn, sem var mjög fín stelpa jafn gömul og við. Við fengum alveg að hafa þau útaf fyrir okkur allan daginn. Við skoðuðum tiananmen square (stærsta torg í heimi) the forbidden city, sem er rosalega fallegur staður og ekkert líkt því sem við höfum séð áður. Við hefðum nú viljað fara aðeins hægar þar í gegn og taka allt inn en stelpan hljóp alveg í gegn á methraða. Við komust svo að því af hverju, en þau fóru með okkur í silki-verksmiðju sem var ekki alveg á to-do listanum okkar en Sigga vinkona hafði talað um þetta scam í asíu. Við þurftum að hanga þar í klukkutíma áður en við náðum að sannfæra þau um að við ætluðum svo sannarlega ekki að kaupa eitthvað.
Þá fórum við og skoðuðum temple of heaven. Eftir það héldum við að ferðin væri búin því allt sem við ætluðum að skoða var búið en neinei, vorum við ekki dregnar í perlu verksmiðju þar sem við neyddumst líka að hanga í slatta tíma í. Við vorum þá búnar að vera vakandi í sirka 30 tíma og löbbuðum um eins og zombiear! Jetlaginn alveg að segja til sín, enda 8 klst tímamunur.
Við fórum með sömu ferðaþjónustu daginn eftir, þar sem við pöntuðum ferð í ming tombs og badaling great wall. Þá vorum við í litlum hóp. Auðvitað var eitthvað líka innifalið í þá ferð sem við höfðum ekki bókað, eins og ferð í jade-verksmiðju (við erum samt ekki enn búnar að fatta hvað í helvítinu jade er!!) þar sem við stoppuðum aðeins lengur en við vildum. Svo eftir múrinn var farið með okkur í svaka fínt fótanudd, við og strákur sem var í ferðinni vorum að reyna giska á hvað þau væru að reyna selja okkur þar, niðurstaðan voru kínverskar jurtir! En það var ekki búið þar, heldur var farið með okkur í te hús, dr.tea. Þar náðu þau loksins að plata Elísu og hún keypti sér te, en náði sam að prútta með ókeypis könnu og fékk "peepee man" líka með. Þetta fékk hún á klink bókstaflega.
Kínamúrinn var frábær. Það var reyndar mjög mikil vonbrigði að það var rigning og mjög mikil þoka svo við sáum mjög lítið en bara tilfinningin og upplifunin að vera á kínamúrnum var ótrúleg!
Þar með var skoðunarferð um peking lokið! Hótelið okkar var mjög miðsvæðis en ekki beint túristastaður. Mjög mikið af local fólki á röltinu. Þetta var eins og okkur var sagt, kúkur og piss á götunni og gat á buxunum hjá krökkunum í staðinn fyrir bleyjur, fólk að grilla og djúpsteikja kjöt á götunni, skordýr og fleira. Eitt sem okkur var ekki sagt, kínverjar lifa algjörlega eftir mottóinu "survival of the fittest" því þeir troða sér allstaðar, umferðin er svo klikkuð að það er ekki einu sinni hægt lýsa því. Bílbelti er ekki til í orðabókinni þeirra, hjálmar eru ekki til, gangbrautir eru til skrauts, beyjuljós eru ekki til, götu merkingar ekki heldur og græni kallinn er bara jólaskraut. Ímyndið ykkur að labba yfir miklubrautina kl 4 á daginn og ef þú ert fyrir, þá er bara flautað á þig! Vinur okkar úr ferðinni sagði að besta uppfinning í kína væri persónulegt horn sem maður notar og hann hefur svo sannarlega rétt fyrir sér!
Kínverjar í biðröðum er líka merkilegt fyrirbæri, þeir sem halda að íslendingar kunni ekki að standa í biðröðum hafa augljóslega ekki farið til kína!!
Í morgun þegar við vorum að fara frá hótelinu upp á flugvöll var sko alls ekki slegist um okkur! Við stóðum heillengi að bíða eftir leigubíl því konan í lobbyinu kunni nákvæmlega enga ensku! Loksins fengum við taxa sem skutlaði okkur eitthvert og við stóðum eftir og vissum nákvæmlega ekkert hvar við vorum. Loksins náðum við að láta einhvern leiðbeina okkur að neðanjarðarlestinni en það var ekki nóg því við hlupum þar fram og til baka, allir sem við töluð við bentu okkur bara eitthvað og við vissum ekki neitt hvert við vorum að fara, rosalega þreyttar og genjandi rigning. Þá kom í ljós sálfræði þekkingin okkar, fight or flight. Við sáum að Elísa er flight persónuleiki sem dofnar bara við streitu og vill forða sér úr aðstæðum en Sóley er fight persónuleiki sem öskrar og hleypur þangað til það rétta er komið! Gott samband því ef við værum báðar flight værum við líklegast enn týndar í peking!
Núna erum við í guilin og við segjum ykkur seinna frá þessum æðislega stað. Vonandi getum við líka komist í tölvu bráðum til að sýna ykkur myndir.
Njótið vel, við erum svo sannarlega að gera það! :)!
p.s. Við erum orðnar snillingar að pissa ofan í holur
- comments



Anna Lóa Hahahahaha "gat á buxunum hjá krökkunum í staðinn fyrir bleyjur" ..ég ætla að gera þetta með mitt barn - ath hversu langan tíma það tekur fyrir einhvern að taka það af mér :P Gaman að lesa bloggið ykkar og ég var alveg með ykkur í þessu! Passið nú að týna ekki hvor annarri aftur ;)
Sigga Æðislegt ævintýri! :) Gaman að fá fréttir af ykkur.. já þeir eru alveg einstakir með þessar kynningarferðir í verksmiðjur og verslanir! Þið eruð góðar saman, fight og flight hehe