Profile
Blog
Photos
Videos
Velkomin á þessa bloggsíðu okkar! :) Við ætlum að reyna vera duglegar að henda inn bloggum og aðallega myndum á meðan við erum í þessu ferðalagi okkar.
Það er mæting upp á Keflavíkurflugvöll eldsnemma í fyrramálið þar sem við byrjum á flugi til Helsinki og förum þaðan til Peking. Við eigum að lenda 06:55 í Peking á miðvikudagsmorguninn og verðum þar í 2 daga. Þaðan fljúgum við til Guilin þar sem við verðum í 2 vikur í litlum bæ rétt hjá, Fengyan, í sjálfboðaliðastarfi.
Þann 13. júlí höldum við svo til Hong Kong þar sem við gistum í eina nótt áður en við fljúgum til Balí. En við verðum þar í 2 vikur í bæ sem heitir Ubud, einnig í sjálfboðaliðastarfi.
Svo eigum við flug til Jóhannesborgar í Suður Afríku þann 30 júlí þar sem við verður tvær vikur að vinna í þjóðgarði, kwa madwala private game reserve. Þaðan förum við með BazBuz rútu til Höfðaborgar (Cape Town) og verðum í tvær vikur þar í sjálfboðaliðastarfi.
Þann 3 september ljúkum við svo þessu ferðalagi og höldum heim til Íslands og verðum lentar á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir miðnætti 4 september ef allt gengur eftir óskum :)
Spennan er í hámarki og við ætlum að reyna vera duglegar að uppfæra síðuna, sérstaklega mynda partinn fyrir ykkur heima.
- comments



Anna Lóa Veij veij veij!! Þetta fær mörg stig frá mér :)
Svanfríð D. Línad. Gaman að fá að fylgjast með , GÓÐA FERÐ :*
Gunnhildur Elíasdóttir Líst á þetta. Knús á ykkur og góða ferð í ævintýraheima.
Ruth Ég og Katrín Emma verðum fastir gestir hingað inn á. Góða ferð og farið varlega!
Ágústína Flott, gangi ykkur vel og gætið að ykkur:-)
Taylor willf*** the fateSo the truth is: f*** the fate or be f***ed, there is no 3rd way.A f*** is not just a f*** with love, bscauee when you f*** your love, you f*** each others' brain out.When you guys make a love, you make a new world, and 2 new lives.Most men were not defeated by fate itself, they were defeated by simply the threaten of fate. Yes, the truth is sad.And then under the imaginary prison, the prisoner survives but he never lives.