Profile
Blog
Photos
Videos
Nu erum vid komin i nordur hluta Laos, til gomlu hofudborgarinnar Luang Prabang. Her er ljuft ad vera og mikid framundan. Svo mikid ad tad er ekki haegt ad stilla a islenska stafi i tolvunni! Ta er gott ad blogga ...
12. juni
Sidasti virki dagurinn i Kambodiu, forum a matreidslunamskeid og sloppudum af. Mjog aktivt sum sagt. I hopnum a namskeidinu var eg og Elisabeth, Elisabeth og eg, vid baedi og oll ofantalin. Kokkurinn og adstodarkokkurinn leiddu okkur um leyndardoma khemr eldhusins, reyndar gerdu taer oft svo mikid ad manni fannst vid vera a matreidslusyningu a koflum. Okkar hluti i fjolublaum eftirretti var t.d. ad skera nidur einn litinn banana - restin var i annarra hondum.
13. juni
Voknudum eldsnemma til ad vera tilbuin i rutuferd sem hofust klukkan 5. Og adur en rutan sjalf for var "free hotel pick-up" en tad folst i tvi ad litill madur kom gangandi og gekk med okkur ut gotuna en tar var rutan. Frabaer kaupauki ad fa svona pickup...
Svo tok vid 12 tima rutuferd, mestmegnis i taegilegri rutu med miklu fotaplassi, faum saetum og ekki alltof morgum stoppum. Komumst afallalaust yfir landamaerin. Reyndar keyrdi bilstjorinn yfir stora slongu rett adur en komid var ad landamaerunum. Og hvad gerir madur ef madur keyrir yfir slongu? Ju, madur stoppar ad sjalfsogdu og stingur daudu kvikindinu i farangursgeymsluna...
Stuttri batsferd seinna vorum vid komin til Don Det, sem er litil eyja i svokolludum 4000 eyja klasa i Mekong anni. Vid sigldum yfir i storkostlegu solsetri en tad tyddi ad vid komuna var ordid koldimmt. Vid gripum tvi fyrsta gistiheimilid sem vid konnudumst vid ur bokinni, Mr. B's Bungalows. Svona kofar eru miklu betri hugmynd en veruleiki.
[Bingó - komst í tölvu með íslensku lyklaborði!]
Eyjan tók vel á móti okkur og fyrr en varði vorum við ekki bara södd eftir hamborgara og laab heldur höfðum bókað kajakdagsferð næsta morgun.
Verður að segjast að verðlagið í Laos er undarlegt: gin og tónik kostar 30.000 en gisting fyrir tvo getur líka kostað sömu upphæð!
14. júní
Allir góðir hlutir byrja á góðum morgunmat og þannig byrjaði kajakferðin, með eggjum og baguette. Svo var reynt að kenna okkur munininn á hægri og vinstri, aftur á bak og áfram. Sem betur fer byrjuðum við á því að sigla niður í móti því þegar áin ber því ljúflega í rétta átt þarf hæfileika til þess að klessa á eða gera eitthvað af sér.
Fljótlega kom í ljós að við Elisabeth eigum framtíðina fyrir okkur í siglingum, spurning hvort maður leggi þetta bara fyrir sig? Til dæmis vorum við rosalega fljót að snúa bátnum aftur rétt og koma okkur upp í hann eftir að hafa prófað björgunarvestin. Ég gæti bara verið með námskeið, slík var færnin.
Annars sáum við tvo fína fossa á leiðinni, rérum yfir til Kambódíu, sáum fullt af ferskvatnshöfrungum og áttum góðan dag úti í náttúrunni. En með okkur í för var líka svaka fínt fólk, fremst þar í flokki breskt par á eftirlaunum. Þau eru á 18 mánaða ferðalagi og plana að ferðast meira eftir það, þegar þau eru búin að heilsa upp á foreldra sína heima við. Í kjölfarið af því að spjalla við þau var ákveðið að þegar við færum á eftirlaun yrði húsið leigt út og svo tæki bara við nokkra ára heimsreisa og ævintýri.
Ótrúlega fallega sólsetrið sem við upplifðum svo við Mekong ánna má sjá á myndunum (sjá fb síðu Elisabethar).
15. júní
Leiðindi. Bátur, ganga, bið, yfirfull skutla, löng bið, svefnrúta með dropum og engu ljósi. Reyndar einn ljós punktur: heimsins stærsta súpuskál (núðlusúpa með kjúkling og alls konar) í Pakse.
16. maí
Komum til Vientenne. Meira um það síðar sem og tubing í Vang Vieng, hræðilega vegi til Luang Prabang og þá ágætu borg. Nú er tími til að fá sér að borða.
- comments