Profile
Blog
Photos
Videos
16. júní
Vorum komin fyrir flestar aldir til höfuðborgarinnar og eftir að hafa skilið farangurinn eftir á gistiheimilinu var Scandinavian Bakery leitað uppi. Heppin við að það var bara rétt hjá og við gæddum okkur því á sænsku bakkelsi og fleiru góðgæti þar í nokkurn tíma. Skyldustopp fyrir Nordista.
Eftir að hafa nælt í þann heiður að vera viðskiptavinir númer 1 á höfuðstöðum Lao Airlines og tveimur flugmiðum ríkari héldum við göngunni áfram til Cope Center. Þar fræddumst við um langtíma afleiðingar leynistríðs Bandaríkjana gegn Laos. Leiðinlegur fróðleiksmoli 1: ekkert land í sögunni hefur verið sprengt jafn mikið (per íbúa) og Laos. L.f. 2: sprengurnar eru enn að springa, fólk lætur lífið og missir útlimi enn í dag út af þessum sprengjum. Gott er að söngla þetta lag á meðan maður styrkir hið góða starf sem fram hjá Cope við að aðstoða fórnarlömbin og koma í veg fyrir að fleiri verði fórnarlömb.
Bókin góða lofaði mér taekwondo tímum í höfuðborginni en slíku var ekki fyrir að fara (amk ekki þar sem þeir áttu að vera) og því gengum við bara aðeins meira um, fórum í Lao nudd, fengum okkur meira að borða og slöppuðum af í baði.
17. júní
Síðasta sem við gerðum áður en við vorum sótt af rútunni til Vang Vieng var að fá okkur morgunmat á La Benneton, frábæru frönsku bakaríi í höfuðborginni. Þannig að það helsta sem við gerðum í þessu stutta stoppi var að fá okkur gott að borða, skandinavískt, belgískt og franskt. Virkilega góð matarborg.
En eftir sveitta rútuferð vorum við komin til bæjarins þar sem er alltaf 17. júní stemming, Vang Vieng. Við vorum staðráðin í að láta ekkert stoppa okkur í því að halda upp á þjóðhátíðardaginn fljótandi niður Nam Song með fljótandi næringu í fötu og vorum því fljót að koma okkur af stað. Þar kynntumst við bresku og norsku pari sem við vorum svo samferða niður ána, út á stökkpallana, út að borða og á skemmtistaðina eftir allt saman.
Það verður að segjast að það að láta sig detta í dekkjaslöngu, grípa í flot og vera dregin í land af barþjóni, fá fötu af vodka og orkudrykk, drekka og stökkva svo út í fljótið af háum palli er bæði heimskulegt og barnalegt. Sænska öryggisstaðlanefndin samþykkir ekkert af þessu og mælir eindregið með því að blanda þessu öllu saman. Taka má undir slíkar viðvaranir.
En þetta er alveg fáranlega gaman. Ef ég hefði getað gert eitthvað daginn eftir hefði ég sennilega farið aftur. Í staðinn lá ég fyrir, drakk ávaxtashake og horfði á family guy.
19. júní
Rúta fer 210 kílómetra leið, hún leggur af stað kl. 11:00 og er komin á áfangastað kl. 18:00. Hversu mikið leiðist farþegunum á leiðinni?
Reyndar var útsýnið á leiðinni frá Vang Vieng til Luang Prabang eitt það fallegasta sem ég hef séð í einni bílferð svo manni leiddist ekki bara. En á móti kemur að fótapláss var ekki til staðar og loftkælingin virkaði ekki. Hversu mikill var pirringur ferðamanna á leiðinni?
Við nældum í gott tilboð á netinu og gistum á góðu hóteli á verði gistiheimilis, alveg við Mekong ánna og í miðbænum. Staðsetning verður sum sé ekki mikið betri nema maður fái að gista í næsta húsi (konungshöllinni gömlu). Við fengum okkur að borða á Lao-kóresku-vestrænu veitingahúsi við ánna og gengum í gegnum næturmarkaðinn. Allt frekar afslappað og rólegt, mikið af hofum og fallegt yfirbragð yfir bænum. Enda er allur bærinn á heimsminjaskrá UNESCO.
20. júní
Eftir amerískar pönnukökur byrjuðum við Lonely Planet approved göngutúr um borgina, í gegnum morgunmarkaðinn (m.a. lifandi froskar og fuglar til sölu), á safn um minnihlutahópa í landinu og upp á og allt um kring á hofhæðinni. Áður en við náðum að fá okkur hádegismat kemur askvaðandi belgi til okkar, með sömu bók í höndunum og að kíkja á sömu göngutúrinn. Hann stoppar og spjallar, kemur í ljós að hann er á leiðinni ásamt öðrum að kíkja á Pak Ou hellana og hvort við vildum ekki bara skella okkur með? Að sjálfsögðu játtuðum við því og stuttu síðar var Frakki buinn [her runnu islensku stafirnir ut] baetast vid. Flottur hellir, gaman (og naudsynlegt) ad sigla a Mekong, og frabaert utsyni yfir borgina i gonguturnum sem vid tokum. Aevintyrid var reyndar adallega ad taka annan bat yfir anna ad loknum gongutur - tar var skipstjorinn blindfullur en hann helt baedi uppi godu studi med song og dansi og kom okkur heilu og holdnu yfir anna.
Meira, vonandi med islenskum stofum, seinna - m.a. allt um fila og rottur!
- comments
Valli Þetta er frábært blogg, gott að geta fylgst með ykkar ævintýrum. Ég hvet ykkur til þess að borða slöngur, froska, pöddur og s.f.r. í staðin fyrir skandi-, belgi- , amer-ískt; það er efni í gott blogg.
Kalli Kongulaer eru a dagskra fyrir Kina en tangad forum vid naest. Um slikan herramannsmat verdur ad sjalfsogdu bloggad. Froska hef eg smakkad i Belgiu og totti bara nokkud godir. Kannski spurning um ad fa ser svoleidis aftur her - orugglega odyrara!