Profile
Blog
Photos
Videos
X. júní - X. júní
Veit ekki alveg hvaða númer var á þessum dögum sem hér er lýst, þaðan af síður hvaða númer var á hverjum degi fyrir sig. En held að flestu sé samt gerð einhver skil.
Vöknuðum snemma einn morguninn - raunverulega snemma, um sólarupprás - og horfðum á munkahóp ganga um bæinn og fá hrísgrjón og annað frá bæjarbúum. Allt gekk þetta fullkomlega hljóðlaust fyrir sig, munkarnir gengu berfættir í appelsínugulu kuflunum sínum með skál hangandi í gítaról og fólkið var tilbúið með kúlur af grjónum sem það lét ofan í. Ekkert er sagt og munkarnir stoppa ekki, ganga bara rólega áfram og fólk hefur hraðar hendur til að koma einhverju í hverja skál. Fallegt svona í morgunbirtunni.
Svo voru fleiri hof skoðuð, hjólað um bæinn og þess notið að rata kortlaust um i þessum litla bæ. Skruppum líka til Kuang Si fossanna rett fyrir utan bæinn. Rosalega fallegir fossar og vatnið grænblá og leit einhvern vegin út fyrir að vera þykkara en venjulegt vatn, svolítið rjómakennt að sjá. Þarna tilltum við okkur á fossbrún og óðum um í laugunum á milli fossanna. Mæli með þessu. Mæli reyndar ekki með að hafa tvo Breta með í för sem ákveða að mæta ekki í skutluna á réttum tíma án þess að láta vita af sér því það seinkar manni um rúman klukkutíma. Passið á að spyrja fólkið sem þið ferðist með að fossunum hvort það sé skaufar og gerið viðeigandi ráðstafanir.
Besta vid Luang Prabang er eiginlega fyrir utan borgina: fíladalurinn vid Nam Khan (Khan áin). Við ákváðum að slá upp útskriftarferð í tilefni af formlegri útskrift Elisabethar úr lögfræðinni og bókuðum fjögurra daga fílaferð hjá All Lao Elephant Camp. Ekki skemmdi fyrir að í lok ferðar vorum við útskrifuð með fílahirðisgráðu, þannig að prófgráðunum rignir bara yfir okkur!
Fyrst fórum við í eins og hálfs tíma ferð á fílsbaki í stól (howdah) með fílahirði sem sat á hálsinum. Fengum aðeins að spreyta okkur með að skipa fílnum áfram þegar hirðirinn stökk af. Mjög gaman. Eftir fínan hádegismat og kennslustund í hvað er áfram, afturbak, hægri, vinstri, beygja hné, setjast, sprauta, standa upp og svo framvegis á laoísku var komið að því að setjast á fílsháls og öskra og ýta. Brjálæðislega gaman. Vorum að í nokkra klukkutíma og hápunkturinn var klárlega að stinga sér í ánna með fílunum: að sitja á fílshálsi og baða hann er góð skemmtun. Að láta fílinn sprauta vatni yfir sig og láta hann dýfa sér alveg ofan í vatnið er líka meiriháttar reynsla. Í lok fyrsta dags flutum við svo á slöngum niður ánna að gististaðnum okkar - ákaflega fínum og rúmgóðum kofum. Töluvert öðruvísi tubing heldur en í Vang Vieng.
Svo liðu dagarnir einn af öðrum. Við vöknuðum um sex og sóttum fílana af náttstaðnum þeirra, böðuðum þá, allir fengu morgunmat, meiri útreiðatúrar og æfingar í að stjórna þessum stærstu landdýrum heims (ekkert nitpicking hér um að afríkufílar séu stærri!) í fínum félagsskap og í lok dags þarf svo að koma þeim upp í fjallshlíð þar sem þeir hafa nóg að borða og bíta. Maður gekk svolítið eins og maður hafði verið það heitasta í sterótýpískum fanga-sturtuklefa; vaggandi og með gott bil á milli fótanna. En það gerði ekki til því fílar eru frábærar skepnur og ótrúlega gaman að ferðast um frumskóg á rólegu rölti með fíl á milli fótanna.
Fílinn minn heitir Kam Di, eða Góða gull, en hún er 38 ára fyrrum skógarhöggsfíll sem er frekar ljúflynd, auðveld í umgengi en afskaplega matvönd. Hún er rosalega góð að leggjast alveg niður en kann því miður ekki að sprauta vatni yfir sig.
Fíllin hennar Elisabethar kallast Pönnukaka. Pönnukaka er skapstórt átvagl sem nýtur þess að leggja allt í rúst, mótmælir ef henni er skipað of mikið fyrir en þrátt fyrir "tough girl" actið er hún skíthrædd við mótorhjól. Hræddur fíll = hlaupandi fíll. Ólíkt gullinu mínu gat Pönnukaka sprautað vatni auk þess að vera áhugafíll um köfun.
Á fjórða degi kvöddum við þær og fílahirðana okkar og rérum í gegnum flúðir á opnum kajak (ekki samt kanó) til Luang Prabang. Fjögurra tíma ferð þar sem fátt gerðist í fyrri helmingnum en svo tók fjörið við. Við fórum í gegnum sístækkandi flúðir og höfðum gaman af. En svo valt báturinn, við útfyrir og við enn í flúðunum. Ekkert annað að gera en að ná taki á bátnum, halda í og láta strauminn bera sig. Þegar tækifæri gafst hjálpaði leiðsögumaðurinn okkur að koma bátnum að árbakkanum þar sem við komumst aftur um borð. Versta var að Elisabeth missti gleraugun sín í ánna og þau fundust eðlilega ekki aftur. Restin af ferðinni var því með hálfblindan stjórnanda. Það var því kannski bara ágætur árangur hjá okkur að hvolfa bátnum bara einu sinni eftir þetta? Og þá týndist ekki neitt.
En við fengum reyndar líka eitt í kaupbæti í þessari ævintýrabátsferð: sólbruna. Viku seinna var ég að taka af húðflögur á stærð við lítið Evrópuríki af lærunum á mér. Versta við sólbrunan var samt það sem hann gerði fyrir maurabitin (sem eru örugglega á aðra milljónum frá ökklum upp að hnjám): það kom einhver gröftur í þau. Kemur sér vel að vera með helmingin af lyfjabirgðum Landspítalans í farangrinum. Vonandi er ég að bera rétt smyrsli á þetta, hef amk fulla trú á að þetta verði allt í góðu lagi - þannig að Placebo áhrifin ættu amk að vera töluverð.
Annað áhugavert en lítt gleðilegt úr fílatúrnum mikla: inn í kofann okkar komust rottur. Þær átu gat á litla bakpokann minn og skildu eftir skít út um allt herbergið. Kom sér vel að sofa með moskítónet!
Þrátt fyrir þetta fékk fílafyrirtækið fína einkunn hjá okkur og við mælum tvímælalaust með því að fara á Mahout (fílahirðis) námskeið. Passið ykkur bara á að hafa ekki mat inn á herbergi og að nota sólarvörnina, jafnvel þegar það lítur út fyrir að vera skýað.
Áfram hélt svo ferðin, með Lao Airlines, til Hanoi en meira um það seinna. Nú verður farið út að borða á KOTO (frábær matur, gott málefni) og síðast dagsins í Víetnam notið því í kvöld tökum við lestina til Kína.
- comments
Katherine Tricky en samt vel he6gt.Til af0 stpopa City fearf nfamer eitt af0 stpopaa0Silva, nfamer 2a0koma ed veg fyrir af0 af0rira0eigi stf3rleik ed staf0inn.deaf0 er engin ed feessua0Liverpool lif0i af0 fara af0 halda eda0Silva e1 hlaupum, fefdf0ir ekkert af0 e6tlar se9r af0a0taka hann maf0ur e1 mann.a0a0Gf3f0u fre9ttirnar eru af0 ef feaf0 er he6gt af0 koma ed veg fyrir af0 hanna0fe1i boltann fee1 er stf3r sigur unninn.a0 deaf0 er samt meira en af0 segja feaf0.a0 Held af0 til feess af0 vinna feurfi Kuyt og Lucas af0 eiga stf3rleik saman og setja pressu e1 alla bolta e1 mif0junni.a0 Unun af0 sje1 fee1 vinna saman eda0 pressunni e1 mif0junni.a0 Se9 eiginlega ekki neinn tilgang ed af0 hafa einhvern annan e1 he6gri kantinum ed feessum leika0en Kuyt.a0 Finnst ledka af0a0Downing feurfi af0 vera mef0, fef3 hann se9 ekki bfain af0 vera af0 spilaa0vel fee1 gengur alltaf betur af0 koma boltanum fram e1 vf6llinn mef0a hann ed lif0inu.a0 Hefur feaf0 ledka framyfir Maxi af0 hann er kantmaf0ur og veita0hvaf0 stf6f0u hanna0spilar.a0 deaf0 er bara feved mif0ur feannig af0a0mef0an Kenny veit ekki hvaf0a stf6f0u Maxi spilar fee1 verf0ur hann e1 bekknum.a0a0 Grunar ledka af0 Carrol se9 nauf0symlegur ed feennan leik, ekki bara af feved hann stf3f0 siga0e1 mf3tui feeim ed fyrra.a0 Heldur af0allega til feess af0 kaupa sme1 tedma til af0 byggja upp sf3knir og f3gn ed ff6stum leikatrif0um.a0 deessi vf6rn feeirra er svakalega tekknedsk, en veit ekki hvort hfan se9 eins gf3f0 ed gamla gf3f0a enska barningsboltanum.a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0ReinaJohnsona0a0a0Skrtela0 a0Aggera0 Enrique Kuyta0a0 a0Adama0a0 Leivaa0a0a0 Downing a0a0a0a0a0a0a0a0 Carrola0 a0SuarezSet feettaa0svona upp.a0 Finnst feetta er ed raun vera besta lif0if0 sem vif0 getum stillt upp, draumurinn ve6ri af0 hafa Gerard mef0 e1 kostnaf0 carrol, ef0a jafnvel fat e1 he6gri fyrir Kuyt.deetta verf0ur sigur, ekki fallegur.a0 Ff6st leikatrif0i er eitthvaf0 sem vif0 verf0um af0 nfdta okkur.a0 Se9 fyrir me9r mikla pressua0og af0 lif0i verf0i ed vf6rn stf3ran hluta leiksins,a0a0City er komif0 mef0 brje1laf0a0possession lif0, 65% mef0 boltanna0ed flestum leikjum.a0 Til af0a0vinna e1 feved fearf af0 se6kja hratt, le1ta Carrol taka e1 sig varnarmennina og Reyna af0 fe1 Suarez i gegn til af0 skora. Ef ekki fee1 ne1 mf6rkunum far hornspyrnum ef0a aukaspyrnum.a02-1a0 mark far vedti og horni,a0 Carrol mef0 annaf0 oga0Kuyt tekur vedtif0 a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0a0 1