Ko Pha-Ngan, Thailand
Bloggið lifir enn! Sæl veriði! Síðasta blogg endaði þar sem við vorum í Hoi An í Víetnam yfir áramótin. Eftir gríðarlega góðan tíma þar renndum við yfir til Nah Trang með 12 tíma rútu en Nah Trang er strandarmekka Víetnams og voru væntingar okkar því miklar. Því miður þá var áramótaverð á allri gistingu og enduðum við með að borga tvöfalt verð fyrir gistingu. Og til að bæta ofan á leiðindin þá var skýjað allan ...