Profile
Blog
Photos
Videos
Jæja Lúkas og Páll/Paul (eins og við höfum verið kölluð hér, Luther og Pearl virðist vera heldur flókið) halda áfram flakki sínu um Asíu og erum við nú búin að koma okkur yfir til Laos, nánar tiltekið til UNESCO borgarinnar Luang Prabang.
Síðustu dagar hafa verið gríðarlega skemmtilegir hjá okkur og höfum við nýtt þá í hin ýmsu ævintýri en norður Thailand er heldur betur vanmetið svæði hjá mörgum ferðamönnum. Algengt er að þeir sem koma til Thailands eru með hugann við strendur, tanbrjálæði og djammhakk. Þeir sem hugsa þannig ættu ekki að koma í norðrið, en halda sig í staðinn við suðrið. Í norður Thailandi er hægt að kynnast menningu og þjóðfélagsháttum almennilega í stað þessa að chilla með bjór á ströndinni . (Sem er þó að sjálfsögðu ekki svo slæm afþreying í sjálfu sér). Ævintýraferðamennskan blómstrar svo sannarlega í Chiang Mai, og tókum við hana „all in" með trompi.
Á sunndaginn síðasta flugum við sem sagt til Chiang Mai og þar tók á móti okkur þetta fínasta veður, svipað og íslenskt sumar (reyndar um 30 gráður ;) ). Við fundum mjög krúttlegt gistiheimili í gamla bænum og við höfðum það yndislegt þar. Starfsfólkið var með frábæra þjónustu,töluðu þessa fína ensku og gerði dvölina enn sérstakari. Konan sem rekur það er mögulega með krúttlegustu skrækustu rödd sem ég hef vitað um, og þegar Gummi talaði viðhana varð hann alltaf smám saman skrækari og skrækari í takt við hana . Við gistum þarna í 4 nætur og vorum með troðfulla skemmtidagskrá sem var einhvern veginn á þennan veginn:
Dagur 1: Sunnudags næturmarkaðurinn. Þessi markaður er eiginlega „The best of the best „, þar sem „hilltribes" víða frá svæðinu koma saman og sýna hvað þeir hafa verið að brasast og föndrast við.
Dagur 2: Tígraklapp- og kúr (OF gaman), Skordýra- og fiðrildasafn (Perla hélt á sporðdreka) og fílasýning ( Já, þeir kunnu á munnhörpu!)
Dagur 3: Fligh of the Gibbons. Einhvers konar klifur-flug garður, höfum aldrei komist jafn nálægt því að bókstaflega fljúga um eins og Tarzan og Jane í risa frumskógi.
Dagur 4: Fórum í fílabúðir þar sem við lærðum að stjórna fílum, skelltum okkur á þá berbakt og fórum í vatnsstríð með þeim J. Hrikalega gaman að leika við þessi mögnuðu dýr.
Dagur 5: Skoðuðum stórglæsilega dýragarðinn í bænum þar sem m.a. fræg Pöndufjölskylda býr og fleiri loðnir villingar.
Í Chiang Mai hittum við líka Íslendinga(Gísla Loga og Tóta) sem voru hrikalega hressandi, og glöddumst við með þeim og trölluðum langt fram á nótt. Við féllum algjörlega fyrir þessari borg, enda gistum við í krúttlegasta hlutanum af henni og chilluðum mest þar.
Næsti áfangastaður sem við heimsóttum var hippa- og ástarbærinn Pai. Þar sem við erum aðdáendur krúttlegheita og kærleika var þessi bær heldur betur eitthvað fyrir okkur. Eina vandamálið var að Perla asnaðist til þess að byrja heldur snemma á malaríulyfjunum, og var hún því slöpp allan tímann í þessum „Lísa í Undralandi bæ". EN Gummi dó ekki ráðalaus og leigði vespu handa okkur og við brunuðum út um allt. (Já mamma við vorum með hjálm, p.s. reykskynjarinn er enn með í för og snar virkar!) Gaman að segja frá því að vegurinn sem liggur til Pai hefur að geyma 762 beygjur, U-turn'aður í drasl, eins og maður segir á góðri íslensku. Að okkar mati samt klárlega þess virði að skella sér þangað! Umhverfi Pai minnti nú bara einna helst á okkur fögru fósturjörð en svæðið hafði upp á að bjóða, „landsplit", fossa, heitar laugar og hella.
Í dag komum við til Luang Prabang með flugi en það var í raun skyndiákvörðun þar sem rútudagskráin hentaði okkur ekki. Hefðum vel getað hugsað okkur að vera lengur í norður Thailandi en ævintýrin bíða víðar.
Með bakpokabraskveðju, Gummi & Perla. (Knús, knús, knús og aftur knús!)
p.s. Netið er að stríða okkur svo því miður fylgir engin mynd af okkur með í dag, enn í staðinn mynd af Tuk-Tuk, háklassa ferðamátanum hérna.
- comments
Laura Sch. Thorsteinsson Frábært elskurnar - Hjálmar og reykskynjarar hafa margsannað gilidi sitt ásamt plástrum. Farið varlega. Guð geymi ykkur
Gulla En yndislegt! Fílaleikir og gleði og gaman! Kemur mér ekkert á óvart að Perla hafi byrjað heldur snemma á malaríulyfjunum - Öryggið ofar öllu! Þið eruð krútt - Skemmtið ykkur áframhaldandi vel og alltaf gaman að lesa bloggið! p.s. Erfið þessi reiknisdæmi sem maður þarf að leysa til að geta kommentað.
Soffa Æðislegt að heyra! Hljómar svakalega vel. Elska þetta skemmtilega orðalag: "..þar sem m.a. fræg Pöndufjölskylda býr og fleiri loðnir villingar...." : ) Snillingar! Góða ferð áfram : )
Lára Halla Sigurðardóttir Gummi er sannur herramaður og deyr ekki ráðalaus heldur leigir vespu fyrir sætu stelpuna sína! Like á það! :) Ég vissi að þið mynduð finna ævintýri í Asíu og mála bæina rauða! Hlakka til að heyra meira frá ykkur. Þið eruð frábær!
Björg Vá! Ég vil kíkja á þennan Lísu í Undralandi bæ. Gott að heyra frá ykkur elskurnar.
Sigga Ósk Þetta er algjör draumur! svo gaman að lesa bloggið ykkur! Perla ég trúi því ekki að þú hafir haldið á sporðdreka! ómæ þú ert hetjan mín!